Sunday, March 2, 2008

Rok og rigning

Hér er ekki gengið á gönguskíðum eins og við Álftavatn, heldur veður maður pollana og berst á móti rigningunni. Ekki hefur hann Steindi fengið gott veður í þessari ferð til Hamborgar. Við hjónakornin skruppum út og sluppum nokkuð vel. Það er búið að vera skelfilegt veður frá því á fö.kvöld. Við sluppum samt vel. Víða féllu tré á vegi, og seinkun var á lestum. 5 hafa látist.
Hins vegar var hið besta veður á fö. Ég er fegin að hafa notað tímann til að hreinsa illgresi og klippa dauðar greinar. Ekki hefði ég getað það um helgina.
Margrét var á fullu. Hún mætti í skólann kl. 9 í gærmorgun. Ég sótti hana í hádeginu, og ók 3 stelpum heim í leiðinni. Sótti þær svo aftur fyrir 1. Og náði í þær um fjögurleitið. Síðan var hún að passa stelpurnar frá 7 um kvöldið. Kom heim fyrir hádegi. Búin að fara í spil og borða morgunmat með þeim. Ég var frekar lítið dugleg í gær. Rétt gerði það nauðsynlegasta.
Það var vesen á tengingunni milli tölvunnar og lyklaborðsins. Klaus endaði með að setja fartölvulyklaborðið aftur við. Og það tók sinn tíma. Núna er ég að pikka á það, og búið að tengja íslenska stafi við. Finn bara ekki spurningarmerkið.
Hringdi í Susanne í morgun, og bauð þeim í mat um páskana ef þau vildu. Á svo eftir að frétta hvort þau komi í mat, brunch eða kaffi. Talaði líka við þau gömlu í gær. Frétti að mamma væri komin í kórinn með Lillu. Efa ekki að hún sé sæl með það.
Arnhildur hringdi á fim. til að segja að þau væru að fara suður. Við fréttum svo vonandi af dvölinni seinna.
Það var heldur betur unnið í íbúðinni við hliðina. Búið að brjóta flísarnar af á baðinu og af stofugólfinu. Þau ætla greinilega að gera allt voða fínt.
Best að fara að taka meira til. Hvaðan kemur allt þetta drasl. Svo að elda kjúklingabringur í Onkel Bens sósu, voða flókið. Í gær var lax, steiktur í ponnu. Ég á minnst 20 kokkabækur, en samt er alltaf eldað það sama. Þau feðgin eru að horfa á Drake og Josh. Greinilega gaman.
5 dagar eftir. Þá er komið páskafrí. Njótið kvöldsins. Er ekki síðast danski þátturinn.

10 comments:

Anonymous said...

Hæ, hefðir bara átt að segja liðinu að ef það kvartaði yfir einhverju í gæslunni hjá þér þá létirðu íslenskt eldgos hita þeim ærlega undir rassgatinu.. þau hefðu þá að minnsta kosti yfir einhverju almennilegu að kvarta! Vorum að koma að sunnan, höfðum bara laugardaginn,skoðuðum íbúðina og ætlum að gera tilboð, veit ekki hvort því verður tekið, sjáum til. Hittum Þórdísi smá, teingdó líka, ekki bróa því hann var með gubbupest, fórum á pottinn og pönnuna með börnin okkar,gistum hjá guggu, og þar með upptalið! Kv affí

Kristín E. said...

HæHæ....
Til að finna ? þá er fyrst p svo hægra megin við það er Ð og svo kemur ?
:o)
Bið að heilsa
kv
Kristín

Anonymous said...

Hvar er þessi íbúð Affí?
Er hún ætluð fyrir VÖ meðan hann er í náminu? Maður fær kannski að sjá ykkur oftar hér sunnan heiða...
Gaman að fylgjast með ykkur Ádda.
Tel að ef syndirnar væru ekki alvarlegri en þær sem þú taldir upp myndum við lifa í betri heimi!!
Nauðsynlegt að gera smá klaufaskap af og til , verðum að geta helgið að e-u (eins og innkaupakerrunni og Affí, og reyndar Möllu líka þegar hún bað konuna um að bakka henni út úr rassinum á sér...)
Held áfram að fylgjast með ykkur systrum.
Kv. Þorgerður

Anonymous said...

sagði að vísu að hún ætti að bakka kerrunni út úr rassg**** á mér, þú ert of pen með þetta systir, tihi. Hér er búið að vera yndislegt veður inn á milli, frábært á laugardag og geggjað í dag :) Fór báða dagana með strákana í sund, best að nota góða veðrið þegar það gefst. KV. Malla

Anonymous said...

'ibúð keypt undir vö og aldísi sem er að fara í iðnskólann næsta vetur. Búið að samþykkja tilboðið, eftir að fá grænt ljós á öll lán. Er á Snorrabraut, miklubrautar megin, keyrt inn götuna neðan við, ferlega kosi þeim megin, sést beitn út á miklatún.Kv affí

Anonymous said...

Frábært!
Vissi ekki að Aldís ætlaði að vera hér næsta vetur, farið þið ekki bara að koma líka???

Kristín E. said...

Glæsilegt :o) Til lukku með íbúðina Affí... þá verður stutt fyrir þau systkinin í heimsókn til mín í vinnuna, vinn á Snorrabraut 60

Anonymous said...

Við eigum örugglega eftir að enda í smáborginni líka einhvern daginn. Erum að keppast við að ná marki Ella sem er að vera skráður fyrir 50millum þegar hann verður fimmtugur,og það styttist nú heldur betur í það skal ég segja ykkur! Til allrar hamingju er ég bara fjörutíu og eiginlega ekki neitt, en hann auminginn verður fimmtugur innan 12mánaða.. Kv affí

Anonymous said...

Hverig er þetta Áslaug, nennirðu bara hreint ekkert að blogga kona? Við vitum að þú ert frekar treg til skrifa, en fyrr má nú aldeilis fyrrvera, ekkert komið í tvo daga. Kondu nú út úr skápnum( hljómar skemmtilegar en skápunum..) og sendu okkur línu
Kv affí

Anonymous said...

Hahahahahaha...