Mánudagskvöld. Og ekki skóli. Himneskt. Aumingja Klaus þurfti í vinnuna.En hann fer að skifta um verkefni, og verða húsbyggjandi, eða þannig, þegar hann fer í frí eftir næstu helgi. Háaloftið bíður hans. Svo honum er líklega rétt sama hvort hann vinni hér eða þar. Ég er aftur orðin góð í bakinu. Í dag var hið indælasta veður. Sól mest allan tímann. Var rokin á fætur klukkan 8, og farin út í garð um leið og ég var búin að lesa blaðið og borða muslíið mitt. Þar beið mikil vinna. Klippti greinar í gríð og erg. Gróf upp tvær rætur með miklum tilþrifum. Staðráðin í því að það sé ég, sem stjórni í vexti gróðursins en ekki hann sjálfur. Mokaði kurluðum berki á lengjuna við akurinn. Og var aðvitað orðin þreytt í gigtarhendinni og fótunum. En bakið blífur!
Neyddi mig til að gera hlé eftir hádegið, og horfði smá á sjónvarpið. Drakk kaffi og var löt. Svo horfðum við Margrét á sápuna hennar ömmu-það er að verða tími til kominn að hún komi aftur til að horfa á þetta með okkur--aðalfjörið að hafa hana. Fórum í gegn um fataskáp Margrétar, og svo tók ég aftur stutta törn úti.
Hjónin frá Póllandi fluttu inn við hliðina á okkur á laugardaginn. Ekki komið eldhús, og skúrinn er troðinn af dóti. Þau hafa líklega þurft að losa hina íbúðina. Eru voða indæl, og vonandi loks fólk, sem ekki dregur fyrir alla glugga um leið og skyggir.
Skrapp út í búð, og lenti á kjaftatörn við eina úr skólanum. Vel á minnst. Ég var svolítið nasty nýlega í Aldi.- Líklega eftir skrifin um framkomu Möllu í Bónus, hí,hí. En samt alveg meinlaust. Það var kona,sem teppti umferðina með vagninum sínum. Eldri kona bað hana að færa vagninn. Ég tók undir og sagði að ég færi þá líka fram hjá. Þá segir sú gamla--Þér hafið líklega verið of mikill heigull til að spyrja. Ég svaraði um hæl---nei, ég var of kurteis!--------
Sko. Þetta var á minn hátt alveg jafnt rosalegt og þegar Malla bað konuna að taka kerruna úr r..... á sér. Svo þið sjáið að ég læri vel af blogginu.
Afskaplega sorglegt með ástandið á bloggi Affíar. Vona að það komist sem fyrst í lag.
Mikið var gaman að finna komment frá Aldísi Björns, og vonandi verður það oftar. Hún er líklega að fara í páskafrí þegar við byrjum í skólanum. Mætum aftur miðvikudaginn eftir páska. En það er nú samt hægt að hittast í Hannover.
Það er kominn tími til að Malla komi til mín og sjái að ég sé alls ekki jafn dugleg að þrífa og látið er af. Það var í den tid. Núna er þetta allt í drasli, þó að "hreint" sé.
Hundleiðinleg spá fyrir næstu daga. Við Margrét förum þá í sorteringar á háaloftinu og bakstur.
Hverjum datt í hug að láta Þórdísi fara eina með Ingó ræflinum norður? Hún gekk greinilega fram af honum, og nú er hann lasinn veslingurinn. Og það einum degi áður en Ásta á afmæli.
Og í lokin --- hjartanlegar hamingjuóskir til Léttfeta, Einars aumingjans, og vonandi hefur hann fengið að drekka wiskíið í herraherberginu sínu á sunnudaginn.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Góð athugasemd við kerlinguna. Þetta getur þú svo sannarlega, ekki síst ef þú trúir á það sjálf. Hér er allt gott, Sigyn auðvitað sæl og syfjuð eftir vökunótt með Signýju. Ég á endalausum fundum, í Menntaráði í morgun, með VG síðsdegis og skrópaði á fund með VG í kvöld vegna anna við prófyfirferð, í umhverfisráði á morgun. Þetta kemur s.s. í törnum. Svo styttist í páskafrí og norðurferð á skíði. Hafðu það sem best.
Diddi bróðir
Aumingja Ingó what hehe hann er nú hressari í dag og þetta var mjög skemmtileg helgi. Ég var aðeins að reyna að finna á netinu fyrir þig en ég held að það sé best að gera þetta í gegnum ferðaskrifstofu svo bara drífa í þessu hlakka svo til að fá viku með þér úti.
Bara að láta vita að ég les nú alltaf bloggið þitt mamma mín!Áfram svona!!Þín elskulega dóttir Arnhildur sem er komin með myspace síðu!
Ég á alveg örugglega eftir að halda áfram að kíkja hérna á þig Áslaug og lesa öll kommentin við færslurnar þínar-sem mér finnst reyndar frekar skondin upplifun- því mér líður eins og ég sé komin í saumaklúbb í "presshúsi" eða hafi smyglað mér inn í fjölskylduboð! he,he,he...
Ég er líka einstaklega ánægð með þig að hafa svarað fyrir þig þarna í Aldi -þessir þjóðverjar eiga það til að láta ótrúlegustu hluti út úr sér og ég held það hljóti að vera heilög skylda okkar sem íslendinga og mývetninga að reyna að troða einhverju ofan í þá til baka...
Bestu kveðjur frá hinum Mývetningnum.. (ja ekki kannski einu sinni "hinum" því nú er Hjörtur þránins náttúrulega kominn líka og við þess vegna orðin þrjú!!!)
Hahaha... gaman að sjá þig hér inni Aldís, get vel skilið eins og þetta virki eins og hálfgert fjölskylduboð!
Dagur loksins að hressast af lungnabólgunni, fer vonandi í leikskólann á morgun. Nóg komið eftir rúmlega viku veikindi!!
Norðurferð á föstudaginn og vonandi kemst maður á skíði. Pabbi örugglega verið í herraherberginu á afmælisdaginn og undirbúið sig andlega undir innrás dætranna!!
Dugleg að svara fyrir þig :o) gaman að fylgjast svona vel með og það er svo auðvelt að skrifa nokkrar línur í komment, auðveldara en að myndast við að senda e-mail :o)
Post a Comment