Wednesday, March 26, 2008

Síðasti frídagurinn.

Miðvikudagskvöld, og skóli á morgun. Væri ekkert mál ef maður mætti sofa lengur. Það er ekki beint hægt að segja að maður hafi minna að gera þó frí sé. En maður er vel útsofinn. Við erum bara harla ánægð með fríið. Margrét komst tvisvar í bíó, í bæjarrölt í BS., í Celle, í Hannover, og gisti hjá Maríu, og hjá Birthe. Las helling, og er núna að lesa Oliwer Twist, sem Affí gaf henni um jólin. Ég náði að gera heilmargt þó að bakið hafi sett strik í reikninginn til að byrja með. Það er næstum búið að setja upp gifsplötur um allt á loftinu. Búið að grunna, spalsa, og mála norðan megin, og færa svo til allt draslið svo hægt sé að grunna, spasla, já og rúlla á "fljótandi"veggfóðri, og svo mála. (Setjum efni með litlum bútum í á undan málningunni. Þekur betur óslétturnar.)
Verst er að flytja alltaf draslið fram og til baka, en það er svo lítið pláss. Reyni að losna við sem flest. Susanne mágkona ætlar t.d. að taka plasttjald,sem er notað úti á sumrin ef rignir, en hér er alltaf svo mikið rok að slíkt þýðir hvort sem er ekki neitt. Og svo er bara stefnt á næsta flóamarkað. Klaus klúðraði smá planinu því hann keypti vitlaust efni fyrir fúggurnar. En það er nú í lagi að gera þetta ekki allt í einu. Hann fór svo að vinna á þr.,- í gær. Ég barðist í tiltektinni á loftinu, og ók svo Margréti til Celle. Hún gisti sem sagt í nótt sem leið hjá Birthe. Þær sáu myndina "Juno". Ætlaði að skreppa í bæinn, en veðrið var svo leiðinlegt að ég ók beint heim aftur.
Það er búið að hríða á hverjum degi frá því á skírdag. Meira og minna. Haglél, risa snjókorn og slydda. En á páskadaginn var verulega fínt veður, þó kalt væri.
Var svo að strauja í morgun, og sótti M. svo eftir hádegið. Sól af og til. Við fórum í bæinn í Celle. Sýndi M. æðislega búð, sem selur danskar vörur. Fór þangað með pabba og mömmu í haust. Þar fást æðisleg fuglahús, sem M. dreymir um. En við keyptum hins vegar 6 bolla í stálgrind, -bollarnir í mismunandi munstrum, og voða sætt. M. keypti sér svo teketil með rómantísku blómamunstri, og bolla við. Ég er svo fegin að hún skuli hafa snert af rómatík í sér. Svo var keypt fullt af brauði og rúndstykkjum, þar sem bakaríin í Celle eru miklu betri en hér. Og við fengum okkur kakó og kökur á litla kaffihúsinu, sem ég fór með þau gömlu á. Þröngt, en góðar kökur og ódýrt.
Enduðum inni í tebúð, og svo var stefnan tekin heim, og hellt uppá nýja teketilinn.
Susanne, Daniela og Gregor komu í hádegismat á páskadaginn. Ég var með svínasteik, sem var fullmikið steikt, en ok. Keyptur ís í eftirmat, og rjómaterta með gamla góða ananaskreminu, sem ég gerði oft í den. Að vanda komu þau með gjafir. Bók handa Klaus, disk með lögunum úr myndinni Keinohrhasen handa M. ,alls konar blómafræ handa mér og hortensíu. Þau hjón fengu hvítvín ,og Daniela pening frá okkur. Voru óvenju hress og mikið hlegið.
Las líka í fríinu. Horfðum á myndina um bækurnar eftir Lemony Snicket, og í örvæntingu út af afspyrnu lélegri dagskrá líka á teiknimyndina Madagaskar!
Jæja. Vekjaraklukkan hringir á morgun klukkan 6.15. ----- Enn verra er svo á mánudaginn kemur. þá er tímanum breytt--- tekinn af okkur heill klukkutími. Það tekur sko tímann sinn að venjast því. Góða nótt heim á Frón og sofið vel.

4 comments:

Anonymous said...

Hei ég hef sko oft horft á Madagaskar, hún er bara alls ekki verri en hvað annað ;) Fyndin og hress :) Kv. Malla

Thordisa said...

Búið að vera kalt síðan á annan í páskum en ég vona að þetta fari að hætta. Enginn snjór og maður verður bara að klæða sig vel. Hlakka til að sjá nýja herbergið verður nú lítið má að sofa þar uppi.

Kristín E. said...

Hvernig fannst þér Madagaskar?? Börnin hér tóku tímabil þar sem horft var á Madagaskar við hvert tækifæri (sem mamman og pabbinn leyfðu þeim heheh)

Anonymous said...

Flottar myndir! Er komin heim eftir stranga en mjög vel heppnaða ferð með nemendur til Rvíkur, þar sem m.a var farið í frábæra heimsókn til Gumma/Sigynar ofj að skoða fatahönnun, myndlist ofl. Síðan mín enn í lamasessi, hef ekki getað sinnt mínum uppbyggilegu skrifum of lengi, stendur vonandi til bóta. Kv affí