Takk fyrir skrifin. Mikið var ég hamingjusöm að sjá Maddý skrifa líka. Vona að hún verði áfram dugleg við það. Hér er bara kalt og blautt. Annað slagið hríðar, og svo kemur haglél, eða rigning. Ekki beint veður til að vera úti. Klaus dreif mig samt í göngutúr í gær. Erum næstum búin að setja gifsplötur á alla veggina. Sem sagt það, sem var eftir. Smá "kassi" eftir, sem gera þarf utan um rör. Og þá er bara eftir efst í loftinu, og það er smá höfuðverkur. Svo náttúrlega að mála grunninn, spasla og mála. En þetta er allt í rétta átt. Svo að setja saman skáp, sem við fengum úr íbúð tengdó, og hillu. Kannski það komi bara að því að það verði eins og í mannabústað þarna uppi.
Það er ekki eins mikið fjör hjá okkur og ykkur. Skíðaferðir og heimsóknir. Æðislegt. Mikið var gott að þið skylduð fá svona yndislegt veður fyrir norðan. Og svo var afmæliskaffi í Norró, ekki við öðru að búast.
Frau Kuhle kom í kaffi í gær. Annars sjáum við ekki marga. Meiningin var að reyna að hitta Aldísi Björns, en Lárus Máni er lasinn, og ég veit ekki hvort þau hafa getað ekið norður í dag. Og þess utan má ég ekki vera að neinu út af háaloftinu.
Það komu tveir pakkar til Margrétar. Mamma sendi henni páskaegg, og kókupuffs og Cheerious, --takk, takk, og Diddi sendi henni páskaegg. Við gömlu fengum líka lítil egg, og súkkulaðirúsínur. En aðalgjöfin var þessi rosalega fína peysa frá Mundi design. Hún er æðisleg. Margrét hefur ekki farið úr henni síðan nema þegar hún sefur. Elsku Sigyn --takk kærlega, frábær hugmynd. Mér skilst að Ásta eigi líka svona, en i öðrum lit.
Setjum myndir á bloggið fljótlega.
Doreen kom til M. í dag. Ég fór að versla. En annars er bara legið í bókum, horft á sjónvarpið, eða unnið á loftinu. Er ekki enn búin að ganga frá pakka til Arnhildar, sem átti að vera páskapakki, en það koma aftur páskar. Verður þá bara afmælispakki til hennar og Alexanders.
Bíð svo eftir frettum af ferðum systra norður, --vonandi komst Malla. Og af ferðum Didda og fjölskyldu. Njótið þess að vera saman og í fríi.
Gleðilega páska.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Hæ, gott að pakkinn er kominn. Erum enn uppi í sveit vegna óveðurs. En í ekkert smáræðis góðu yfirlæti. Í kvöldmat á Gautlöndum í fyrrakvöld hjá Jóka/Ingó og svo komu Siggi/Magga og Biggi í kaffi á eftir, hjá Gerði í gær og strákar á snjósleða hjá Láka (voru líka á sleða á Gautlöndum), vorum í Baldursheimi hjá Tótu og Eyþóri og svo í kvöldmat hjá Agli/Dagbjörtu í gærkvöldi. Að ógleymdu kvöldkaffi í fyrrakvöld og morgunkaffi í morgun hjá Láka/Ingu. Svo hjá Gylfa/Auði áðan og að fara í kvöldmat til Láka á eftir. Mikið spjallað og haft gaman. Stefnum inneftir og suður á morgun. Búið að vera voða gaman og vona að það sé eins hjá öllum sem lesa þetta. Kv. diddi
Mikið fjör hjá Didda og fjölskyldu, dauðöfunda hann af þessum Myvatnsheimsóknum. Er svo mikill rati að keyra í hálku að ég fer ekkert ein út fyrir bæinn. Snjóar hér á fullu, en brjálaða veðrið sem spáð var hefur ekki komið í bæinn okkar. Elli á fjöllum, kemur heim á laugard. Elduðum hér purusteik og ananasfrómas í eftirmat í tilefni skirdagsins. Kv affí
Rigndi á miðvikudaginn og í gær var hundkalt en í dag föstudaginn langa er æðislegt verður. Sólin skín og við förum pottþétt í ræktina á eftir og svo kannski bara í sund þar á eftir. Ingó að fara á Krókinn í dag veit ekki enn hvort ég fer með honum eða ekki.
Post a Comment