Ég held barasta að vorið sé komið. Sólin skín, fuglarnir syngja, og það er logn.Reyndar er spáin ekki góð. Þungbúið og skúrir, en kannski við verðum heppin. Himininn er ansi grár, en sólin komst í gegn.Mig klæjar í lófana að komast út, en nú er ég að drepast í mjóhryggnum. Get varla beygt mig niður. Var að koma úr heitu baði. Ætti kannski að fara eftir ráðleggingum Vigfúsar, og leggjast á dýnu, teygja úr bakinu og fá mér túllara. Ég sem ætlaði að vera SVO dugleg. Fæ tíma hjá sérfræðing í lok mánaðarins. Ætla að láta hann líta á hnakkann og fá nudd. Kannski hann finni eitthvað fleira.
Í gær sótti ég Margréti og Mariu vinkonu hennar í skólann hálf þrjú. Eftir pizzur og pökkun, fatnaðurog rúmföt sett í poka, var ekið til BS. Þær fóru í bíó, og skemmtu sér vel. Ég reyndi að versla, en var ekki vel góð í bakinu. Hafði verið að laga til og þrífa áður en helgin byrjaði, og áður en Maria kæmi. Ekki gaman að fá gesti í draslið. Varð verri og verri eftir því sem á daginn leið. Ég endaði því á apóteki, fékk mér verkjalyf, og gigtarplástur. Hann setti ég á mig inni á klósetti á Möwenpick, eftir að vera búin að fá mér kaffi og tertu! Ekkert verið að spá í kaloríurnar. Keypti mér tvær bækur, eina bók fyrir skólann fyrir M., smotterí eins og brauðnauðsynlegan eggjaskerara og teegg. Espressi kaffi og Betty C.Brownies. Karstadt er með þær. Eina búðin, sem selur útlenst gúmmelaði. Varð svo fyrir þeirri ömurlegu lífsreynslu að passa ekki í vindstakk nr 46 hjá H&M. Það er ekkert eðlilegt við þessar stærðir þegar ég passa í 42 hjá öðrum fyrirtækjum.
Svo ekið heim, og dótið þeirra stelpna tekið með. Margrét gisti hjá Mariu í Muden í nótt, og verður sjálfsagt fram á kvöld.
Haldiði að við Klaus hefðum átt rómantískt kvöld ef ég hefði ekki verið fársjúkur aumingi.
Svona fór með sjóferð þá.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Iss það er sko alveg hægt að hafa helling af rómantík, þó svo að þú getir bara legið á bakinu!!! Um að gera að vera frumlegur ;) Kv. Malla
p.s. vonandi batnar þér fljótt í bakinu :)
er hjá m og p. póstforritið hans er ekki að virka, svo hann er frekar pirraður en ég gat glatt hann með því að sýna honum nýtt blogg hjá þér.KV affi
Vont að vera slæmur í baki... ég er í sjúkraþjálfun núna, á einmitt erfitt með að rétta almennilega úr mér og beygja mig fram :þ
Vonandi skánum við frænkur í bakinu þegar fer að hlýna :o)
Er að spá í hugmyndinni um sumarfrí í Þýskalandi, það kæmi ekki í ljós fyrr en kannski í júní en við erum að hugsa þetta, það væri ekki slæmt að kíkja í Hyde Park með litlu gormana mína :) kemur í ljós síðar :D
Eruð þið mæðgur búnar að ákveða ykkur með Lanzarote???
Þið drífið ykkur að sjálfsögðu til Kanarí, sjáið ekki eftir því. Ef okkar ferðalag er eitthvað að trufla plönin þá endilega ekki pæla í því. ef þið verðið heima þá er síðasta plan að koma við hjá ykkur kvöldið 11 og fá að gista og keyra strax um morgunin til köben, og koma svo til baka 14 um kvöldið og stoppa til 18 morgun, þá keyra til Frankfurt. Væri hægt ef þið væruð heima að fá að koma við þann 11 og vera yfir blánóttina? Þurfum að skipta ferðinni norður í tvennt og þið erum uþb í miðri leið. Kv affí
Post a Comment