

Laugardagskvöld. Margréti tókst að setja inn myndir. þær fyrstu ekki alveg á réttum stað, en hinar betri. Himneskt veður. Smá gola, sól og kjörið til útivinnu. Nýju nágrannarnir (í húsi Söndru) sögðu mér hvert ég gæti farið með greinarnar. Þau voru með troðna kerru, og ég reddaði þessu bara ein. Það verður myndarlegt bál með þessu á páskunum. Fór 3 ferðir. Klaus kom út og klippti með mér. Svo verkaði ég illgresi, og við hjón þrifum plastdallinn, sem tjörnin góða er í. Grænt og geðslegt! Margrét og Doreen voru að líma inn myndir í albúm. Litla Sonja hélt uppi fjörinu, standandi á girðingunni. Alveg sérlega indæl stelpa. Kát og falleg. Ég er frekar þreytt eftir einar 8 klukkustundir í garðinum. Fyrir utan að fara þrisvar að gefa kettinum, sem nuddar sér upp við lappirnar á mér. Veit náttúrlega hvað ég er hrifin af köttum!
Endaði á að fara í bað. Svo horfðum við á mynd, sem við tókum á leygunni í gær.
Var að laga til í gær. Þvo þvott, og horfa á sjónvarpið.
Fyrir utan vonbrigðin vegna dýru ferðarinnar var ökutúrinn til BS fínn. Versluðum í Body shop, og fengum okkur kaffi á Miners. Gaf M. rauðan sumarstakk. Hún keypti líka tvo toppa.
Fékk lánaða bók hjá Frau Kuhle. Valkyrjur, eftir Þráinn Bertilsson. Fínasta bók. Vissi ekki að hann hefði skrifað krimma.
Góða helgi, --það sem er eftir af henni. Og gleðilegt páskafrí öll lítil og stór börn!!!!
2 comments:
Gleðilegt páskafrí sömuleiðis... við förum norður á miðvikudag, þarf að vinna í 22 tíma á morgun og svo ekki meira fyrir páska :S
Flottar myndir af ykkur mæðgum og vinkonu Margrétar :o)
kv
Kristín E.
Fínar myndir, mikið svakalega ert þú dugleg í garðvinnu kona ;) 13 mans í mat í gær, þreif allt og skreytti áður en liðið kom, en Össi sá að mestu um að elda. Mikið fjör og skemmtileg helgi :) Kv. Malla
Post a Comment