Föstudagur að verða að kvöldi kominn. Dásamlegt að það skuli vera helgi framundan. En samt getum við ekki sofið lengi á morgun, þar sem Margrét þarf að mæta í skólann kl.9. Hún er að fara í þýskukennslu og stærðfræði, sem veitt var aukafjárveiting til. Út af því að þessir ASNAR styttu árin til stúdentsprófs, og minnkuðu ekki námsefnið. Hún fer ekki á hjóli því hér er skelfilega slæm spá. Von að stormi með 140 km hraða. Gefur Kyril ekki eftir, en hann eyðilagði ótrúlega mikið af skóglendi í fyrra. Margrét var annars vel utan við sig í morgun. Fór á fætur og af stað á hjólinu til að mæta í fyrsta tíma, en þá var frí í fyrsta tíma. Hún bara gleymdi því! Fattaði það þegar hún sá að verið var að draga frá gluggunum hjá Leu, sem hjólar með henni. Klaus spurði hvort hún væri komin í hópinn, sem væri með gatasigtaheila.
Það var voða ljúft að lesa fallegu kommentin frá ykkur við síðustu skrifin mín. Það væri nú dæmalaust gott ef satt væri. Ég hef nefnlega svo hrikalega margt á samviskunni, sem flestir vita bara ekkert um. Það er svo margar syndir á mínum reikningi að það hálfa væri nóg. En ef það er satt að maður fái fyrigefningu ef maður iðrist þá ætti mér að vera óhætt að berja á dyr himnaríkis. Ég ætla samt til vonar og vara að vera með skjóðu með mér.
Ein nýjast syndin mín er kæruleysi mitt. Ég sýndi krökkunum í gæslunni þátt um Nonna og Manna, sem var sýnt hér í landi fyrir einum 10 árum. Og af einskæru kæruleysi horfði ég ekki fyrst á myndina. Barnamynd, og ætti allt að vera í lagi. Við horfðum spennt á góða vininn og vonda kærasta mömmunnar, dáðumst að fallegu landslagi og úrvals hestum. Spennandi og hugljúft. Stelpurnar vissar um að vinurinn, sem bar fregnina um dauða föðurins myndi verði nýji maður mömmunnnar. --Hvað ætli Jón Sveinsson blessaður segi um þessa útgáfu á sögunni. það er annað mál.-- En nú kemur að ósköpunum. Í kæruleysi mínu set ég svo vitlausa spólu í tækið þegar við ætluðum að horfa á framhaldið í gær. (þar með átti svo að slá botninn í þetta, enda minnt mig að eitthvað gengi á í síðari þáttum) Og er nú komið að lokum, og Nonni og Manni farnir að leita að Haraldi hinum góða, og Magnús hinn vondi á eftir þeim, móðirin með sýslumanninum að leita að drengjunum og til að kóróna þetta allt hefst ELDGOS! --Er þetta alvöru gos, er ekki hættulegt að vera nærri þvi- spyrja blessuð saklausu börnin, -mikill spenningur, vondi Magnús fær stein í höfuðið, er hann dauður?-- og nokkrar stúlkur setja upp hræðslusvip. Og brestur nú ein stelpan í mikinn grát og er ekki hægt að hugga hana.--Hún þorir ekki að ganga ein heim. Endar með að ég ek barninu heim og marg biðst afsökunar, og mamman er hin besta , og segir að Lisa sé bara mjög viðkvæm og að þau horfi aldrei á svona myndir.--- Þarna er ég með það á samviskunni að barnið fari í háttinn með myndir af eldgosi og strákum úti ískaldri á, með spúandi eldfjallið á bak við sig.
Ef þetta er ekki synd, hvað þá!!!---------
Ég notaði daginn svo í tiltekt í garðinum, og fékk útrás á illgresinu. Hélt svo áfram í dag. Búin með stórt beð, og tvær fullar fötur af illgresi.
Ekki nóg með það. Tók baðið svona hriklega vel í gegn. Svo og svefnherbergin, og setti hreint á hjá Margréti. Var að reyna að halda mér í gangi því ég er eins og gömul hæna eftir leikfimina í gær. Komst varla upp af dýnunni. Fann mikið til í bakinu. Ekki furða eftir að hafa ekki farið í leikfimi í hálft annað ár.
En hálfnað verk þá hafið er.
Nýja nágrannakonan kom í gær, og sagði að þau væru að fá gám til að setja ruls í. Var eitthvað með áhyggjur af því að hann yrði ekki setur á þeirra hluta. Yrði fyrir okkur. Sagði líka að þau væru að fara að brjótu upp flísarnar í stofunni, og það yrði mikill hávaði um helgina. Það er nú fallega gert af henni að koma til að tala um það. Okkur líst mjög vel á hana. Og litla Sonja er algjör dúlla. Vona að við höfum verið heppin í þetta skiftið.
Þarf að fara að gefa kattarskrattanum hennar Frau Kühle.
Góða helgi þið öll.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Þessi skrif þín eru alveg yndisleg... það var sko alls engin synd að sýna börnunum smá eldgos og smá áhættu hehehe bara álíka klaufaskapur og þegar Affí keyrir innkaupakörfu á ókunnuga en ekki vini sína hehehe
Iss piss, þú hefðir bara átt að segja foreldrum stúlkunnar að hætta að vefja henni inn í bubbluplast, börn þurfa líka að læra um náttúruöflin og annað í lífinu !!! Ekki alltaf bara grenjað á gresjunni þætti :) Góða helgi, kv. Malla
hmmm á ég að viðurkenna eitt... mín börn eru búin að sjá allar Star Wars myndirnar nema eina (nr. 3 þar sem deathcount er hrikalega hátt!!!) og svo voru þau að horfa á Spiderman í síðustu viku hehehe Ingibjörg var reyndar ansi hrædd við það heheh
Eina sindin sem ég sé í þessu máli (og þar með taldar allar hræðilegu dauðasindirnar sem við hin erum ekki búin að frétta af (sem ég skil ekki hvernig stendur á (og er reyndar ansi óhress að hafa ekki fengið að velta mér upp úr þeim))) er sú að telja að venjulegt fólk sé sindsamlegt við það að lifa venjulegu lífi, með velgengni og klaufaskap, skammsýni og framsýni. Enginn er fullkominn og mistök eru staðfesting á því en ekki sindum.
Svo tek ég alveg undir með Möllu að þegar foreldrar reyna að einangra börnin sín frá öllu sem er óþægilegt þá eru þeir að gera krakkanum ferlegan óleik - jafnvel að fremja sind. Já það ættu ýmsir að lesa bókina "Að elska barnið sitt - of mikið". EF þau takast ekki á við litlu vandkvæðin, hvernig eiga þau að vita hvað á að gera í stóru málunum sem munu koma, hvað svo sem foreldrarnir reyna að gera til að stoppa það. Þetta segi ég nú bara, um miðnætti við Álftavatn, eftir að hafa gengið á gönguskíðum og farið í göngutúr með konu minni í frábæru veðri, snjó og sól. Sorglegt fyrir ykkur að vera ekki hérna hjá okkur. Sendi myndir fljótlega. - Já, þær verða sjálfsagt margar.
Diddi
Post a Comment