Það er svona með okkur mið-gömlu systur. (gömlu eru mamma og hennar systur). Við erum bara með ræpu þegar við komumst í takka. Ekki munnræpu, heldur ritræpu. Orðaflaumurinn bara streymir fram eins og fossandi vatn. Henni Arnhildi minni líst bara ekkert á þessar systur, okkur Affí sem sagt. En eins og Affí bendir henni á erum við á leið að komast á spjöld sögunnar með þessu upphafi á ritverkum. Líklega hefur nálægð Skútustaða við Álftagerði þar sem allt var svo stórt, orðið til þess að við erum ekki með neinn tittlingaskít. Affí fór reyndar aldrei í stóru skóna hans Jóa, en þær Silló hoppuðu á tánum á þeim. Já, sú var tíðin.
En þar sem ég er hrædd um að Arnhildur nenni ekki að lesa langlokur hef ég þetta stutt (í dag!)
Bestu kveðjur úr þessum rokrassi.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Aldrei hægt að skrifa og mikið ef það er gáfulegt. það var Fríða sem hoppaði með mér á aumingja jóa hí hí, silló eflaust dauðlangað að prófa! Kv.affí
Stutt og gott. Hér er bjart og fallegt, nýr snjór og sól og barasta ofbirta í augum. Haldið þið svo bara áfram að ritræpa systur mínar. Gaman að lesa afurðirnar ykkar.
Diddi
:o) kvitta fyrir lestri... það má sko alveg skrifa langlokur í blogg þegar maður hefur frá miklu að segja :o) eins og vaninn er í þessari fjölskyldu okkar :þ
Ég les hvern staf sem þið systur allar 3 bloggið um, svo ég sendi stóran broskarl :) Kv. Malla
Ég les allavega þriðja hvern staf í þessum langlokum þeirra systra...nei nei þetta er nú ekki svo slæmt! Ætli ég verði nú ekki bara að viðurkenna að ég hef lúmskt gaman af þessu öllu saman, sérstaklega af því að þær tölvufælnu systur eru svvooona duglegar að blogga!!! Peace out man, Arnhildur
Alltaf gaman að lesa stutta og langa pistla!
Hafið það gott allar :)
Hilsner, Svanhildur
Post a Comment