Laugardagskvöld.
Þetta er heldur betur lélegt. Hef ekki skrifað síðan á fimmutdaginn. Þá var hringt frá tannlækninum til að vita hvort við gætum ekki komið halftíma fyrr. Eins gott--því við mæðgur vorum alveg búnar að gleyma tímanum!!! Allt reyndist í sóma. Engar holur. Eigum að fara til sérfræðings til að láta athuga um tannréttingar. Sem ekki er talið nauðsynlegt, en samt betra að fá álit sérfræðings. Kominn einn nýr til Gifhorn, og ku vera ungur og hress.
Svo skelltum við Margrét okkur til BS á föstudaginn. Tókum bláa bílinn. Og mættum í bíó kl 18, í annað sinn í sömu vikunni, og við hittum Danielu frænku Margrétar. Horfðum þar á 27 Dresses. Fín gamanmynd, og hugguleg ástarsaga. Eitthvað fyrir vorkomu og hækkandi sól.
Á eftir skruppum við á uppáhaldskaffihús Danielu, sem er við Schloss-Arkaden. (nýju innkaupahöllina) .Höfðum það huggulegt til tíu, og vorum mjög ánægðar með ferðina. Það var reyndar vel hvasst á leiðinni og ég ekki vön að aka í vindi, en var ekki stressuð (að ráði,hí,hí)
Við erum staðráðnar í því að gera þetta oftar. Og eftir því sem birtir meira, er meira gaman að vera á feðinni á kvöldin.
Svo var þvegið í dag, settur út þvottur, farið í innkaupaferð með Klaus til Gifhorn. Fylltur innkaupavagninn. Var eitthvað frekar slæm í maga af og til, en það er ekkert alvarlegt. Við Klaus drifum okkur svo út í góðan göngutúr. Hitaði pizzu, og horfði á krimma.
Margrét er búin að æfa sig tvisvar á píanóið í dag, og á gítarinn. Lesa og horfa á sjónvarpið.
Takk-takk fyrir öll skrifin.
Diddi. Við erum ekki með þetta, sem þú talar um. En það hljómar spennandi.
Elsku Ássý. Til hamingju með daginn. (er ekki öruggt að hún kunni að lesa bloggið?)
Svo er eitt.
Hann faðir minn, sem er alþekktur fyrir að gera alltaf það, sem konan hans biður um, hefur brugðið út af vana sínum. Hann hefur sko ekki áhuga á því að lesa af skerminum!!!! Og þess vegna fer hann ekki inn á bloggin okkar. (Klaus segir að hann geti víst prentað það út--?Elli er það rétt?) Það þyrfti einhver að tala ærlega yfir hausamótunum á honum. Og svo bara að kenna mömmu að fara ein inn á netið. Ef það dugar ekki, þá verður hún bara að lesa þetta allt, sem elskulegu dætur hennar þrjár skrifa, hjá Lillu.----
Er ekki enn búin að hringja í Ástþór Örn, en sendi honum og litla stubb pakka. Veit ekki hvort Svanhildur les bloggin. Ef--bestu hamingjuóaksir til ykkar með fimm ára strákinn ykkar!!!!!
Þarf svo að fara inn á síðuna þeirra á morgun.
Núna er ég á leiðinni í bólið. Vona að þið hafið það sem best.
Malla mín-- njóttu dagsins, og til hamingju.
Vill einhver skila rosa góðri kveðju til Sólveigar frænku og segja henni að fara nú varlega.
Eru þær frænkur okkar, pabba megin, í höfuðborginni komnar með bloggin? Ekki væri nú verra að komast í samband við þær líka.
Vona að helgin verði löng og góð, - eins og Diddi segir.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
hæhæ var hjá Ássý í gær voða gaman. Er svo að fara til Birnu á eftir og Möllu þar á eftir sem er gott þá líður tíminn hratt þar til hann Ingó minn kemur :-) Úti er sól og stilla og snjór yfir öllu og voða fallegt veður.koss og knús til ykkar.
epcmjHæ Áslaug. Gaman að bæta þér inn í bloggrúntinn og lesa fréttir af ykkur. Hafið það gott!
Bestu kveðjur, Svanhildur og co
KvittKvitt... hef ekkert að segja, orðin rosalega þreytt hehehe en vildi samt kvitta fyrir komunni :D
Hæ. Komin aftur til Rvíkur, ágætt færi og við ekki lengi á leiðinni. Vorum minna á skíðum en til stóð því það var svo hvasst uppi í fjalli. Það var sorglegt því færið var frábært. Komum við hjá Möllu og fengum þessar fínu veitingar, hittum Maddí á þröskuldinum og svo komu Bjössi og Gunnhildur. Við spjölluðum og svo var rokið af stað til að ná í Forbrydelsen sem verður alltaf meira og meira spennandi. S.s. vel heppnuð ferð og mjög gaman að hitta norðanfólk.
Diddi
Já hér er góður dagur að kveldi kominn, súpa í hádeginu og svo kaffi klukkan 15, 34 gestir og stóð þetta yfir frá 12:30 til 21 þegar síðustu gestirnir fóru. Rosa gaman, mikið borðað, hlegið og allt það ;) Kv. Malla
Post a Comment