Saturday, February 16, 2008
Föstudagskvöld
Klukkan orðin 9. Ekkert í sjónvarpinu, og ætli maður fari ekki að fara í bælið. Margrét liggur yfir nýju bókinni, rosa spennt. Við vorum bara dugleg í dag. Ég fór á fætur klukkan 7.15, útsofin. Í sturtu, og svo að gefa kettinum hennar Frau Kühle. Kom við í bakaríinu. Klaus reyndar búinn að hella upp á kaffi er ég kom heim, og Margrét var mætt niður um klukkan 9. Enda ekki slæmt að vakna í sólinni og kuldanum. Það voru um 7 stig í nótt, og ekki veitti af að setja tvo hitapoka í bílinn og skafa hressilega. Við tókum til í herbergi Margrétar. Klaus setti upp nýju hillurnar, og var næstum búinn að slasa sig í leiðinni. Rann til í tröppunni, og rak öxlina í hana. En hann náði sér nú fljótt. Svo setti hann peru í afturljósið á rauða gamla. Duglegur strákur. Við Margrét börðum allar bækurnar í herberginu hennar úti í glugga. Drógum fram skrifborðið, og veitti ekki af að hreinsa rykið, hí,hí.--- Settum hreint á rúmin. Og svo var þveginn þvottur í gríð og erg. Farið aftur að gefa þessu átvagli, honum Willibald , kettinum. Verslað í Rewe, og loks endað á að gera fiskrétt. Fjögurra laga lostæti, sem minnir mig alltaf á Didda og ferð hans hingað þegar hann var piparsveinn. þá var eldað svona hjá Vilborgu og Gunnari. Nú, eins og sést er Klaus búinn að tengja gamla lyklaborðið við fartölvuna. Nú eru loks almennilegir stafir, jibbí. Og takk fyrir athugasemdirnar Kristín. Margrét gat reddað þessu með anonyn--. Vonandi getið þið þá skrifað inná. Hlakka mikið til að fá kveðjur frá þeim, sem annars skrifa sjaldan. Þetta er allt annað líf. Nýju nágrannarnir voru i mest allan dag að mála og bora.--- Litla Sonja er kotroskin. Margrét spjallaði lengi við hana úti í garðinum. Hún vildi vita hvað Margrét héti. Hún sagði -ég heiti Margrét --af hverju? vildi sú stutta þá vita! Þegar ég var að hengja upp þvottinn vildi hún vita af hverju ég væri að þessu. Til þess að þvotturinn þorni vel og komi góð lykt af honum.--Því trúi ég nú ekki--var þá svarið!---- Já. menn geta verið klókir þrátt fyrir bara fjögurra ára aldur, ekki satt. Jæja. Ekkert bíó, engin krá, ekkert kaffihús, engir vinir að fara til, og ekki nein bók að lesa. Og ég nenni ekki út að ganga í svarta myrkri. Svo ég fer bara í háttinn og vakna þá vel hress í fyrramálið til að klára efri hæðina. Vona að það sé meira fjör hjá ykkur, hí,hí.- Hafið það gott.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Sæl aftur. Held að mér hafi tekist að setja komment inn hjá þér. Eg er ferlega léleg að fatta hvort ég er að gera rétt eða ekki. Annars allt gott að frétta, elli á fjöllum svo við mæðgur erum bara tvær í rólegheitum núna. Kveðja til allra, þín sys, affí
Bæ aftur,að sjálfsögðu átt þú þjóðverjasnýtið, allt of flókið að gera skýra mynd af píslavætti hí hí. Var að reyna að kommentera rétt áðan, veit ekki hvort það skilaði sér, kannski færðu tvö svipuð komment hí hí. Kveðja affí
hæ hæ gengur vel með Kristínu og Guðnýju sem eru voða góðar saman. Fóru í bíó tvær einar í dag og eru að leika sér núna óráðið hvað við gerum á morgun.
ji hvað ég er ánægð með allt þetta blogg hjá ykkur systrum ;) Ég lofa að vera dugleg að komennta :) Kv. Malla
Jæja - þá getur maður gert komment hér! Til lukku með síðuna, mun fylgjast með hér eftir. Var hætt að fá bréfin þínþví ég nota annað netfang
thorgerdure@salus.is
Bættu því endilega á listann þinn.
Kveðja, Þorgerður
hæ systir. Er að sýna mömmu og pabba hvernig þau eiga að kommentera hjá þér. Kveðja affi
Post a Comment