Tuesday, February 26, 2008

Aftur tveir dagar liðnir.

Þriðjudagsmorgunn. Klukkan að verða 8. Vaknaði við klukkuna þegar Klaus fór á fætur 5.20 í morgun. Hann er farinn til Frankfurt, og kemur aftur í kvöld eftir 7. Að sjálfsögðu fær hann ekki greidda yfirvinnu fyrir ferðina. Hvað þá dagpeninga, en allavega er lestarferðin greidd.
Sofnaði og vaknaði til skiftis þar til mín klukka hringdi. Úti er bara meinlaust veður. Komið upp í ein 8 stig. Spáð regni og roki, en er á meðan er. Margrét er í skólanum til 2.
Við Klaus mættum á fund í gær, sem haldinn var út af Internetsambandi hér í héraðinu. Allir borgarstjórarnir og fulltrúar frá Telekom, þýska símfyrirtækinu mættir. Í stutt máli sagt mun ekkert breytast hjá okkur hérna vestan við Dalldorferstrasse, sem er gatan, sem liggur til Dalldorf, og skilur nýjasta hverfið frá hinum. (þarna býr t.d. Katie, skólasystir M.) Þetta hverfi á að fá nýjar leiðslur. Við hin erum nefnilega á RAUÐU svæði, sem merkir að við eigum sko að vera með möguleika á hraðsambandi. En hér gerðu menn þau mistök að setja þvers og kruss gömlu glerþræðina (hvað sem það nú kallast heima) og koparleiðslur. Koparinn er góður, hinar ekki. Ekki nóg með það, heldur eru mörg hús tengd á hvern "þráð", og þar með ekki hægt að bæta meiri nýtingu á. Svo er kannski laus tenging hjá einum, og er einhver , sem býr lengra í burtu tengdur inn á hana. það er nefnilega ekki til biðlisti hjá Telekom, sem farið er eftir hverjir komist að ef losni leiðslur. Þannig eru sumir búnir að bíða í tvö til þrjú ár, og nýr nágranni, sem kemur í bæinn, fær tengingu eftir tvo mánuði. Skilji það hver sem getur. Allavega er ekki mikil von á góðu, en formaður sambands sveita og þorpa var líka mættur. Er verið að berjast í þessu, enda mikilvægt mál. Hann sagði að ríkisstjórnin væri búin að leggja einhverjar milljónir í það að koma á sambandi við þorp þar sem enginn hefði tengingu. En sú upphæð samsvaraði því, sem 2 km af hraðbraut kosti. Svo mann sjá hvað skilningurinn er mikill fyrir þessu.
Og af hverju þetta allt saman?
Einfaldlega af því að fólkið kýs hægri stjórn. Sem stendur fyrir hlutabréfafélögum. Sem eru skyldug til að hugsa um hag hlutabréfaeiganda. Og ekki um hag hins almenna borgara.
Á hvaða leið er þjóð, sem hugsar um þá, sem geta keypt verðbréf, en ekki um hag hins almenna borgara? Æ, best að taka upp léttara hjal.
Ég var á tveimur fundum í gær í skólanum. Fór svo með Margréti til að láta taka mynd af henni í Dit og Dat bókaversluninni. Nú er hún komin með allt, sem hún þarf til að geta sent umsókn til Hótels Möwenpick fyrir verklegt nám þar í haust. Henni þykir þetta frekar spennandi, og vill fara að fá svar um það hvort hún komist að. Það er um tvær vikur að ræða. frá klukkan 7 eða 8 á morgnana, og sennilega í 7 klukkutíma á dag.
Fyrir utan þetta snatt svaf ég til 10 í gær. Var svo þreytt þegar þau feðgin voru farin að ég lagði mig aftur. Enda kom ég ekki miklu í verk. En náði þó að skera niður í ávaxtasalat handa Margréti, sem kemur alltaf heim klukkan 12 á mánudögum.
Sunnudagurinn var að því leiti óvenjulegur að við Klaus sváfum fram yfir 10. Margrét mætti klukkan 11. Hún er búin með bókina, sem Ásta gaf henni um jólin. Fannst hún bara ágæt.
Við Klaus fórum í göngutúr. Frau Kühle kom að ná í mig þegar hún fór að ljósrita í gamla skólanum. Ég þurfti að ljósrita nótur fyrir Margréti, en komst ekki að í stóra skólanum, og svo var pappírsstífla, sem ég kann ekki á! Gott að Frau Kühle er með lykil að gamla skólanum.
Hún fékk sér kaffi með okkur, og köku, sem keypt var í Real daginn áður. Gott að geta spjallað við hana i næði af og til. Í skólanum er lítið um rólegheit.
Hefði gjarnan viljað vera heima í öllum veislunum. Það verður bara seinna.
Vissi ekki af konudeginum, enda ekki með íslenskt dagatal.
Jæja. Þarf að búta niður þykkan pappir, sem ég keypti í gær handa liðinu mínu í gæslunni. Meiningin að útbúa dós með héra fyrir páskana, og þar sem við eigum bara eftir þessa vikuna og næstu, er eins gott að koma þessu í verk. Mikið hlakka ég til páskafrísins. :)

4 comments:

Kristín E. said...

Já.... það hlakka fleiri til páskanna :o) ég er komin með mikla norðurlands-fráhvarfssýki :S ætlaði norður fyrir páska en það bara gekk ekki því miður, en stefni á norðurlandið á miðvikudegi fyrir páska vonandi.
Bið að heilsa Margréti og Klaus

Anonymous said...

Páskarnir alveg að koma svo það er svo sem ekki vitlaust hjá pabba að vera byrjaður að telja dagana til jóla! Fer í mikla vinnutörn í mars,og svo er skólaferð strax eftir páska sem ég þarf að undirbúa núna næsta hálfan mánuð, hringja í fólk og fyrirtæki og sníkja heimsóknarleifi. Er búin að vera slæm í bakinu, en annars gengur allt o.k, hef þó ekki getað farið á Bjarg vegna baksins sem er slæmt þar sem aðrir líkamspartar þurfa verulega á æfingunni að halda, en sodan er livet! kveðja héðan úr miklum snjó sem hellist úr lofti. Affí

Anonymous said...

Ég er svvooo stolt af múttu minni, bara komin til að vera á gervihnattaöldinni!! En á ekki blogg að vera svona smá spjall, en ekki bókaflokkur...hvað er þetta með ykkur Affí..hí hí!! þín STÓRA dóttir Arnhildur

Anonymous said...

Mikill misskilningur þetta hjá Arnhildi að hér eigi aðeins að kommentera á smáatriði dagsins, hér er upphafið að miklum ritverkum að líta dagsins ljós.... bara svo það sé klárt! Við systur stefnum ótrauðar fram á ritvöllinn!!!!Kv affí