Ég er komin med bloggsídu ! Nú er Margrét ad reyna ad kenna mömmu gömlu ad skrifa. Tad tarf ad ýta á dálítid marga takka og spurning hvort ég gleymi ekki sumum. En mér líst mjög vel á tessa nýju daegrastyttingu. Tad er allavega skemmtilegra en ad strauja skyrtur af Klaus og ganga frá í eldhúsinu.
Fór og keypti mér blóm til ad setja á silluna framan vid eldhúsid. Nú brosa bláar og hvítar stjúpur vid mér tegar ég stend vid uppvaskid. Eftir tiltektina fengum vid Margrét okkur bleika marsípanrjómatertu frá Sverge, med hvítu hjarta í tilefni af valentínsdeginum á morgun.
Rétt fyrir kvöldmat var hringt á dyrarbjöllunni. Tad voru herra og frú Posselt, sem byggdu húsid okkar. Tau eru búin ad selja sinn hluta. Og komu til ad takka fyrir góda samvinnu og óska okkur alls góds. Gáfu okkur blómvönd og rosa fínt raudvín. Nýju nágrannarnir eru víst frá Póllandi.
Ég aetla ad fara til Braunschweig á morgun og fara í klippingu. Er aftur ad fara verda eins og kona á fjöllum. Svo saeki ég bók handa Margréti, sem hún bídur mikid spennt eftir.
Bid ad heilsa öllum !
Bless
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Var búin að skrifa komment en það kom ekki hummm... til lukku með bloggið hlakka til að lesa það gott framtak hjá þér. Kveðja þín litla systir.
Post a Comment