Klaus var að gá að pósti á netinu. Hjartans þakkir fyrir bréfin, Malla, Kristín , Sigyn og Affí.
Má til að óska Möllu til hamingju með frábæra einkunn fyrir lokaritgerðina. Ertu þá kannski til í að TRÚA okkur að þú sért þrælvel gefin!!!!!!!!! Ekki var ég með 9, man reyndar ekki hvað ég fékk, en það getur ekki hafa verið merkilegt. Frábært. Skál fyrir þér í síðasta glasinu úr flöskunni frá því á Valentínsdeginum.(þetta endist vel þegar bara einn drekkur!)
Þetta er þrælgott kaup,sem þú færð. Held ég myndi halda fast í það um tíma. Þegar strákarnir eru stærri finnur þú draumastarfið, enda veistu örugglega ekki í dag hvað þér þyki skemmtilegast.
Tók mynd af rauðu sólarlaginu út um gluggann og kertahenginu með. En Margrét á ekki orð yfir þessari móður sinni. Hvað ég haldi. Að einhver hafi gaman af að sjá þetta. En ég er alveg viss um að allavega Lilla hefur gaman af því að sjá hvernig er hjá mér, ekki satt!
Þá er ég hætt í dag. Meira á morgun.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Hæ hæ. Hvað ertu að tala um lokapróf Möllu?? Engin segir mér neitt snuff snuff. Merkilegt ef hún hefur fengið 9... Einhver hlíiiiiiiiitur að hafa hjálpað henni! Hún er alveg brilliant og tími til komin að hún fatti það. Ertu nokkuð búin að finna tákn fyrir hana, ég hef ekkert nægilega markvisst í huga. Þorgerður var ekkert mál hí hí, hveðja affí
sammála þér Affí... kannski fer litla systir mín að fá trú á sjálfri sér núna!!! þegar utanaðkomandi sýnir henni fram á það :o) við höfum alltaf vitað þetta.
Ég held að Hallgerður Langbrók sé táknið fyrir Möllu :þ ekki spurning.
Takk fyrir að vera svona dugleg að blogga Ádda og vona að Margrét verði ánægð með rjómabollurnar :o)
Post a Comment