Thursday, February 21, 2008

Bútasaumur

Fimmtudagur. Úti er dimmt og frekar kalt. Sluppum þó við frostið í nótt.
Reyndar er það hið besta mál. Ef ég fer með hitaflöskurnar í bílinn, og skef af rúðunum, er ég komin í föt, og orðin hress þegar liðið fer. Í morgun lagði ég mig aftur með bók, sem ég keypti í BS í gær, og nennti svo ekki á fætur fyrr en eftir tíu.
Var rifin upp úr letinni þegar síminn hringdi. Það var Frau Kremeike, ein sem er í kirkjukórnum. Hún er búin að bjóða pabba og mömmu tvisvar heim til þeirra hjóna. Afskaplega hress og dugleg kona. Með hjartað á réttum stað. Hún hringdi í mig nýlega af því að ég hef ekkert farið á kóræfingar eftir jól, nema í eitt skifti. Ég sagði henni að ég ætti erfitt að drífa mig. Væri með heimþrá og vildi helst flytja heim, allt eitthvað svo ómögulegt. Spjölluðum lengi í símanum.
M.a. kom ég inn á að það væri erfitt að vera með lítið pláss og geta lítið unnið frístundastörf. En meiningin væri að fara í það að klára háaloftið um páskana. Hún var alveg sammála því að maður þyrfti á því að halda að hafa sitt pláss, og aðstöðu. Vill ekki fyrir nokkurn mun að ég hætti í kórnum, og segir að ég eigi að koma til þeirra ef ég sé eitthvað einmanna.
Ástæðan fyrir því að hún svo hringdi í morgun var að hún er búin að fá Frank, son sinn til að hjálpa okkur við háaloftið--ef við viljum!
Svo það er til fólk, sem vill hjálpa mér, ---. Er þetta ekki alveg frábært!
Þessi Frank er arkitekt. Atvinnulaus. Mikill snillingur í garðinum, og það er mikið ævintýri að skoða garðinn þeirra. Ef Klaus er eitthvað seinn í þessu með loftið, þá bara fæ ég Frank til mín. Við verðum þá bara ein á loftinu, hí,hí.-------
(Hann er nú ekki mikið fyrir augað, og svolítið spes, en verulega indæll)
Já. Það er þetta með að leita eftir aðstoð.
Ég ákvað að það væri alveg kominn tími til að taka á málunum. Fara að gera eitthvað.
Hringdi í Helgu, sem er með leikfimi í íþróttafélaginu okkar. Spurði eftir bak-leikfimi. Hún benti mér á stað í næsta þorpi, og ég hringdi í konu, sem rekur sjúkraþjálfunarstofu. Ætla nú að mæta í leikfimi á miðvikudögum, klæukkan 9 um morguninn, kostar 5 ervrur hvert skifti. Og fara svo á biðlista til að komast í hóp, sem í eru nokkrar, sem ég þekki úr skólanum. Kostar líka minna, 3 evrur.
Ekki veitir af því ég þyngdist auðvitað um jólin að venju. Orðin 79, og það er ansi mikið.
En ekki var allt þar með búið. Allt er þegar þrennt er. (Þakherbergið, leikfimi--) Og vantaði bara hobby. Spurði Helgu hvort hún hefði ekki verið með mér á námskeiðinu hjá Angie vinkonu fyrir mörgum árum. Angie dó úr krabba. Ég kláraði aldrei teppið. Fór með það heim einu sinni, en við Maddý gerðum aldrei neitt í því meir. Helga er enn á fullu að sauma, og bauð mér að koma til sín með það, sem ég væri búin að gera. Hún hefði bara gaman af því. Það veit ég að er satt. Hún er opin fyrir öllu. Alveg frábær kona. Minnir mig mest á Lillu frænku.
Svo ég fer í fyrramálið til hennar og svo er bara að vona að ég gefist ekki upp. Þið verðið sko að hvetja mig, og skamma mig ef ég er ekki dugleg, hí,hí.------
Ég held bara að ég sé að komast upp úr vetrardoðanum.
Ekki síst er hressandi að finna kommentin ykkar. Ástarþakkir. Eins og ég sagði er alveg nóg að segja bara bestu kveðjur, en alvöru komment er bara 6 í lottó.
Eigum við ekki bara að segja að þetta sé allt að verða bjart og fagurt.
Við mæðgur fórum í bíó í gær. Sáum þýska mynd með Till Schweiger, Keinohrhasen.
(Sem merkir héri án eyrna.) Við skemmtum okkur frábærlega. Fyndin mynd með alvarlegu ívafi. Fullt af krökkunm, sem leika, því myndin gerist að miklu leiti á leikskóla. Sem er í æðislegu húsi í frábæru umhverfi í Berlín. Það var bara yndislegt að vera næstum einar í salnum klukkan 15.15, -með kók og popp.
Rétt skruppum í bæinn. Keypti mér krimma, og páskagjöf handa henni Arnhildi minni.
Jæja. Margrét er að fara til tannlæknis. Meira á morgun.

8 comments:

Kristín E. said...

Gott að eiga góða að :o) ekki spurning... þú átt greinilega góða að í Meinersen :o) Flott hjá þér að halda áfram með bútasaumsteppið, ég fer í meiri handavinnu þegar ég hætti að vera svona þreytt hehehe eða þegar börnin verða eldri... þá ætla ég líka í kór og að læra skriðsund eins og Lilla :o)
Farin að horfa á amerískan þátt í sjónvarpinu (eins og Affí hehehe)
kv
Kristín

Anonymous said...

Þetta er lagið !!! Bara að rífa sig sjálfur upp á rassinum og af stað ;) Ég kem til með að spyrja um teppið og leikfimina ef engar verða fréttirnar af því. KV. Malla

Anonymous said...

Sendu Margréti oftar til tannlæknis ef það hefur svona góð áhrif á þitt sálartetur, bara allt annað hljóð i þér! og sammála Þorgerði Hat gesagt Einarsdóttur, þetta er einhvern veginn ótrúlega findið. Kv affí

Thordisa said...

Flott hjá þér systir það er gott að rífa sig upp úr vetrardoðanum. Ég er sjálf að reyna að gera það og mun brosa út að eyrum þegar hann Ingó minn kemur aftur frá Köben. Góða helgi elskan ég sakna þín svo mikið.

Anonymous said...

Hæ, prófa að senda athugasemd.Mér datt bara ekki í hug að ég yrði að vera anonymus. Það er ég aldrei.
Diddi

Anonymous said...

Hæ systir. Vorum að tala við Arnór og Sössu á Spáni í gegnum tölvuna, s.s. með skype- forritinu. Ert þú með það. Þá er hægt að hringja ókeypis tölvu í tölvu og fyrir mjög lága upphæð úr tölvunni í heimasíma og farsíma. Svo er líka hægt að vera með vefmyndavél og horfast í augu meðan talað er. Svo er auðvitað hægt að skrifast á eins og á msn og vera í sambandi þannig.
Ertu með svona, geturðu verið með svona og viltu vera með svona? Þessu er hlaðið niður af netinu frítt. Skoðaðu málið.
Diddi

Anonymous said...

Nýr dagur og ekkert nýtt blogg?? Ertu kannski að gera hreint í skápunum hjá þér....Diddi mættur í bæinn, er á skíðum með fj einmitt núna en kemur við á eftir. VÖ á leiðinni í námsferð, gistir með liðinu í YstuVík, er hér á ströndinni, en við fáum eitthvað að sjá framan í hann á morgun. Vonandi verður þessi dagur jafn jákvæður og gærdagurinn, halda áfram svona mín kæra sys. Kv affí

Anonymous said...

Kominn laugardagur og vö kominn í stutta heimsókn. Er bara hress og kátur, heljar dagskrá hjá honum í kvöld og svo farið suður aftur um hádegi á morgunn. Við Elli vorum á þorrablóti heima hjá háskólarektor í gærkvöldi, mikið sungið og gaman gaman. Sat heillengi og spjallaði við Ingveldi vinkonu Þórdísar sem er að vinna í HA. Hittum svo Didda og co einhvern tímann í dag. kv affí