Ekki var nú mikið mál að fara á fætur eftir að hafa farið snemma í rúmmið um helgina. Mér er það alveg óskiljanlegt hvernig er hægt að snúa sólarhringnum svona við eins og gert er heima. Það hlýtur að vera hryllingur að vakna á mánudagsmorgni. Það er það eina, sem mér myndi falla verulega illa við að búa á Íslandi.
En annað er þar að sjálfsögðu allt fullkomið. T.d. fólkið!
Margrét var bara til 12 í skólanum. Kom heim með þá beiðni að mæta í næsta þýskutíma (sem er ekki fyrr en á fimmtudaginn, þar sem þau verða með rökræðukennslu í 2 daga) með Eddu á íslensku, og lesa fyrir bekkinn. Hér á bæ er ekki til neitt slíkt.- Ég efa ekki að það sé til hjá ykkur öllum lesendur góðir, og daglega lesið fyrir börnin! - Hringdi í pabba, sem sagði að vonlaust væri fyrir Margréti að lesa úr Eddu. Allt á fornmáli. En ætli séu ekki til þessar sögur af guðunum á nútímamáli? Ekki það að hún þurfi endilega að lesa þessa bók. En gaman væri að fá sent eitthvað á netinu, ef einhver á svona ritverk og gæti skannað það ( bara nokkrar blaðsíður, þó það væri ein)--og hún kynnst þessum bókmenntum. Við vorum ekki með gömlu guðina á hreinu. Freyja jú, ástargyðjan. og Þór þrumuguðinn. Óðinn var æðstur, --en hvað var hann? Freyr landbúnaðarguðinn. Baldur tákn fegurðar og hreinleika eða? Og hvað var svo Frygg. Voru þeir ekki fleiri? Og svo var það hann Loki. Hann var tröll, var það ekki? Pabbi tók "rosalega "vel í það (eða þannig) að pikka nokkrar línur um guðina. Ef einhver annar hefur tíma, væri gaman að finna hér í blogginu fróðleik um þá. --Eða ætli sé hægt að finna upplýsingar um svona á netinu--hvar þá???
Margrét mundi eftir því að hafa séð þátt með Gunna og Felix um Þór. Var nú sótt spólan, og við horfðum á nokkra þætti með þeim kumpánum. Skemmtum okkur hið besta.-Og í leiðinni komumst við að því hvað Dagur Elis hefði lært þessa fleygu setningu sína--ég er ekki vinur þinn---Það var náttúrlega af þeim. Fleyg setning Rikarðs Attenborrow(veit ekki hvernig þetta er skrifað) (íslenska þýðingin er ansi góð, en man hana ekki lengur) við manninn, sem var að gefa Lagarfljótsorminum. Segið svo að sjónvarpið geri fólk heimskt.
Í leiðinni var sótt Árbók ferðafélagsins um Mývatnssveit. Flett hér og þar. Kannski Margrét lesi bara upp úr þeirri bok, og sýni myndina af ömmu sinni og móðurbróður og ömmubróður. Og í lokin fann ég gömlu myndböndin með þáttunum um Nonna og Manna. Margrét hafði víst aldrei séð það. Tilvalið að setjast niður við þá þætti þegar lítið er í sjónvarpinu. Eins var ég að hugsa um að sýna krökkunum þetta í gæslunni. Við erum með færanlegt sjónvarp, sem ég hef aldrei notað. Hef verið að segja þeim frá Íslandi, frá gömlu bæjunum, og þau hefðu þá náttúru og byggingar í allri sinni dýrð á skerminum.
Affí mín. Þú þarft sem sé ekki að vera með samviskubit þó að þú horfir á sjónvarpið. Það er okkur bara til góðs.-
Og svo er það veðrið.
Slydda, skítakuldi og hvasst. Drungalegt og ekki hundi út sigandi.
Margrét er komin upp á sófa með Harry Potter, ég á leiðinni að horfa á sápuna mína, (hennar ömmu), og held ég að ég hreiðri síðan líka um mig á sófa og lesi í Árbókinni.
Áslaug -----------sem merkir ------- Sú, sem er helguð gömlu guðunum------ bara spurning hverjum helst? Var einhver þunglyndisguð??????????
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Farðu inn á þessa hér slóð http://www.fsu.is/vefir/erlingur/
gizur4.htm og þá getur þú lesið um þá alla kv Þórdís
Hæ, ætlaði að vísa þér á slóð en sé að þórdís er búin að því. Hefur þú uppástungu um hvað ætti að skoða helst á Mósel svæðinu? M og P hafa víst ekki verið þar svo ekkert á þeim að græða. KVeðja affí
Það væri gaman að hafa ykkur hér á sunnudag þegar halda á upp á útskrift mína, loksins!! Eins væri gaman að sjá norðan-heiða-fólk, en svona er þetta víst, væri gott að hafa svona klefa sem hægt væri að stíga inn í og óska eftir að lenda í Þýskalandi já eða Akureyri ;) Rosa hentugt ef hægt væri. Kveðja Malla
Já það værir líka gott að þurfa ekki að borga undan sér rassgatið við að fljúga á milli með hinu dásamlega Flugfélagi Íslands :(
Malla litla systir - þú situr bara uppi með sama pakkið á sunnudaginn - hehe... Lofa að borða vel og mikið.
Áslaug... þið Margrét getið líka kíkt á wikipedia.com og skoðað þar eitthvað um gömlu goðin, meira að segja á þýsku sýnist mér :o)
Gaman hvað þið systur eruð duglegar að blogga... ég ætla að hætta í tölvunni í bili og horfa á amerískt sjónvarpsefni :þ
Post a Comment