Tuesday, April 1, 2008

Sjúkraþjálfun.

Mætti í morgun í fyrsta tímann. Lærði nokkrar æfingar fyrir mjöðm og bak. Þjálfaranum þótti ég ansi stíf í hnakkanum. Það er víst ekki sérlega gott að ég sofi með krepptan vinstri handlegg út af hræðslunni að fara úr lið. Þessi fj.. öxl er það versta, sem hrjáir mig. Eða öllu heldur óttinn, sem fylgir henni. Svo ég ætti sjálfsagt að fara að koma mér í meðferð til að losna við óttann. Voða indæl kona, þó hún jafnist örugglega ekki á við hann Bjössa. Var að lesa í blogginu hennar Kristínar að hún sé með vefjagigt. Las um það á netinu, en er svo sem ekki mikið klókari, nema hvað þetta virðist ekki vera það sama og slitgigt, né heldur gigtin hans Klaus, Bechterif eða hvernig það er nú skrifað. Já, það er nú meira með okkur í þessari famelíu!!!!!
Í gær var bara ágætt veður. En bændurnir skemmdu ánægjuna frekar, því þeir voru að bera svínahland á akrana, og ilmaði vel. Samt setti ég þvottinn út, og eftir því, sem á leið, minkaði pestin. Þvotturinn ilmaði af hreinleika! Tók gærdaginn í vorhreingerningu á baðinu. Búin með næstum allt. Tvær skúffur eftir. En annars er allt glampandi flott. Þetta var góð törn, og ég frekar þreytt á eftir. Gott að eiga afgang af fiskirétt,og var hann hitaður upp í örbylgjunni þegar margrét og ég vorum komnar heim klukkan 1. Klaus fór í 3ja koretra göngutúr þegar hann kom heim. Ég nennti ekki, enda fannst mér ég vera buin að hreyfa mig nog. En ætla í dag að labba.
Sólin skín, en það var aftur næturfrost. Hringdi loks í Ritter, vin pabba og okkar. Hann átti afmæli daginn eftir Ástu. En var í burtu. Hann skrifaði hjá sér hvenær pabbi og mamma kæmu, og þau ætla að koma hingað í júní. Píanótími hérna í dag, og best að ryksuga niðri, og taka til í stofunni. Vildi helst bara fara í hjóltúr, en ekki dugar að sinna ekki heimilistöfunum eða hvað finnst ykkur! Klaus þyrfti að fá sér nýtt hjól, með dempara og betra stýri. Held að hann ætti að drífa í því. Fær 80 ervur í launahækkun frá næstu mánaðarmótum, sem konan hans og dóttir myndu annars bara eyða í vitleysu.---- Nýja fartölvan frá Dell var að koma inn úr dyrunum. Nú held ég að mín dóttir flippi út.

5 comments:

Anonymous said...

Þú átt miklu frekar að fara í hjóltúr en laga til, það verður þá bara aðeins meira þegar þú ferð næst að ryksuga ;) Kv. Malla

Áslaug said...

Þetta er alveg rétt hjá þér! :)
Bestu kveðjur Ádda

Anonymous said...

Sammála Möllu... alltaf betra að sinna sjálfum sér eða sínum nánustu en að ryksuga :þ þoli ekki ryksugur hehehe

Anonymous said...

Það eru komnar ryksugur á markaðinn sem rúlla um sjálfar. Hvernig væri að kaupa eina og sleppa henni lausri og hjóla bara á meðan?? Svo er fínt að vera með dökk sólgleraugu inni, sérð ekki eins vel rikkornið sem festist við sjónvarpsskjáinn...
Kv affí

Thordisa said...

já eða bara eyða ekki lífinu í að laga til þegar upp er staðið er það ekki það sem skiptir máli. Ég held ekki heilsu nema að hreyfa mig og til þess verð ég að fara eftir vinnu og þá hlýtur að vera staðan sú að ég geti ekki haft allt ofurhreint. Meira virði að hugsa um heilsuna og fjölskylduna og hana nú