Thursday, April 17, 2008

Fimmtudagur og enn rignir.

Klukkan að verða tíu um kvöld. Takk fyrir kveðjurnar á bloggsíðunni. Gaman að sjá líka Aldísi Björns þar á meðal. Hún skrifaði líka nýlega mail, og sagði m.a. frá veikindum hjá þeim. Það er sannarlega ekki bara heima, sem allir eru lasnir. Öðru nær. Margrét var heima í 2 daga. Rann úr nefinu, og augunum. Mér finnst þetta hins vegar meira lýkjast ofnæmi en kvefi. Kannski hún sé að fá einhverjar fleiri tegundir. Nóg er af þessu í báðum ættum. (Daniela er mjög slæm af ofnæmi) Arnhildur segir að ég ætti að láta gera aðgerð á mér út af lélegu sjóninni. En hér er ekki gert svona ef maður er með svona slæma sjón. Þá ku þurfa að skafa svo mikið af hornhimnunni, skilst mér. --En hefur Diddi ekki verið óhress með sína aðgerð???
Ég er nú loks að verða búin að kaupa allt í kassann, sem átti að fara til Arnhildar fyrir páska, hm,hm. framtakssöm kona. Nú er afmæli Alexanders í næstu viku. Og meira að segja ekki víst að pakkinn komist fyrir afmæli Arnhildar. Hér er svo pósturinn í verkfalli, og hver veit hvað úr því verður.
Í gærmorgun var vekjaraklukkan mín búin að gefa upp andann. Klaus stillti sína á 7, því hann þurfti með þann bláa til Gifhorn á verkstæði, og ætlaði seinna af stað en vanalega. Svo ég vaknaði korter fyrir 7, í stað 6.15. En við mæðgur redduðum þessu og mín kom á réttum tíma í skólann. (mamma ók henni náttúrlega) .Ég svo að borða morgunmat, og af stað til Gifhorn á eftir Klaus, án þess að komast í sturtu, hvað þá að mála mig. Sniff, sniff. Ók Klaus svo í vinnuna, og skrapp í bæinn í flýti því svo beið vinnan jú klukkan 11.55. Gat samt farið í H&M, og snúist eitthvað. Eftir vinnu var eldað af kappi. Þrifið og snúist. Og farið með Margréti til Gifhorn til tannlæknisins. Hann setti bláa plasthringi utan um einhverjar tennur að aftan, sem á að verka þannig að hringirnir myndi breiðara bil milli tannanna og hann komi draslinu betur fyrir. Hún fær tiltölulega litlar spangir, svokallaðar Speed Brackets, en þær eru ekki hvítar, eða ég held ekki. Og auðvitað neitar Krankenkasse að borga það, sem þær kosta, borgi bara hinar venjulegu. En þessi sæti læknir, sem er frá Sýrlandi, Guði sé lof ekki dæmigerður þjóðverji (hann segir t.d. látlaust eitthvað hressilegt og hlær og brosir!!!) ætlar að láta okkur fá þetta á sama verði og þær gömlu. Sætur í sér. Nú,nú. Við skelltum okkur smá stund í bæinn, stórbæinn Gifhorn, hí,hí. Og sóttum svo þann bláa á verlstæðið. Kostaði BARA rúmlega 800 evrur. (eitthvað, sem kallast Zahnriemen, tanna--eitthvað, sem var rosa dýrt) Skildum þann rauða eftir. Með Margréti heim, og svo að ná í Klaus í vinnuna. Við svo frá BS til Gifhorn að ná í þann rauða, og Klaus ók beint heim, en ég skrapp að versla í matinn í Real. Klukkan var um 7.30 þegar ég kom heim, og var alveg eins og sprunginn sundhani. Fór ekkert að hjóla í gær, og í dag er þessi eilífa rigning.--En ég var LOKSINS komin niður fyrir 80 i morgun. (þegar ég er komin í 79 ætla ég að fá mér danskan negrakoss, sem bíður svo girnilegur í geymslunni!)
Er búin að vera slöpp í dag. Með hausverk, og þreytt. En ekkert alvarlegt. Kom ekki í verk að hringja í mömmu og pabba og óska þeim til hamingju með brúðkaupsdaginn þeirra í dag. Geri það bara á morgun.
Keypti hettupeysu í H&M, sem reyndist með smá galla. Stefni á að fara með Margréti í bæinn í BS á morgun og býtta. Og rölta smá um. Gæti verið að rigningin verði norðan við okkur um helgina, en maður gerir sér ekki miklar vonir.
Alveg fór það fram hjá mér að Þorgerður væri komin í kór. Ég gleymi öllu.-- Hvað var Malla að vesenast með 3 tertur á hjóli í vinnuna? Er hún að drígja tekjurnar með sölu á bakkelsi, --frekar líklegt að hún myndi taka fyrir bakstur, hí,hí.
Vona svo að allir þessu veiku,-- synir Didda, Arnaldur, börn Kristínar og hver veit hverjir hafi bætst í hópinn--séu nú að verða frískir. Gaman að heyra að Guðný hafi svona gaman af söng. Það veit ég að Margrét hefði haft ánægju af svona námskeiði. Já, maður fer á mis við ansi mikið hér úti í eyðimörkinni Þýskalandi. En allt er gott á Íslandi, ekki satt!

6 comments:

Anonymous said...

Hæ. Nóg að gera eins og oftast hjá þér. Sama hérna. EH og FAF komnir í skólann síðustu 2 daga en Örn enn heima en er loks að losna við þessar leiðindakommur sem hann hefur verið með á kvöldinn - ásamt með hóstanum. Stefnir í flott veður um helgina og eftir kórahátíð í kvöld verður farið austur á morgun. Í gær fórum við í gönguferð upp á fjall sem heitir Bláhnjúkur og er aðeins austan við Litlu-Kaffistofuna. Þarna var hífandi rok en við fórum samt flest upp. Þetta var lítill hópur frá Símanum sem Bjarni vinur okkar bauð okkur með í. Mjög gaman nema rokið sem var alvöru. Annars allt gott og við látum heyra frá okkur. Kv. til Þýskalandsbúa sunnan til líka.
Diddi

Anonymous said...

Bíð spennt eftir fréttum frá þér frænka ;) Kv. Malla

Anonymous said...

Sól og blíða á Akureyri, verst að það er enginn tími til að fara í garðinn og blómin byrjuð að vaxa upp úr sinu, flugeldarusli og örðum huggulegheitum eftir veturinn. Elli farinn suður í þrjár vikur svo bloggið verður ekki lagað...fékk magapest um helgina en er að hressast, annars allt gott, kv affí

Anonymous said...

Aðeins að líta við... er að vinna :þ
kv
Kristín

Anonymous said...

Engar nýjar fréttir, hvernig er þetta?
Vona að þú sért orðin hress Affí - rekur Ella í að laga þetta þegar hann kemur til baka...

Thordisa said...

Sólin að reyna að skína gott að fá frí á fimmtudaginn og svo tek ég langa helgi þar á eftir og fer norður. Er búin að tilkynna yfirmönnum mínum að ég sé að sækja um í Háskólanum í Reykjavík og ætli ég hendi ekki inn í HÍ líka umsókn. Þeir tóku vel í þetta vilja ekki missa mig en skilja mig vel en komist ég ekki inn vilja þeir endilega hafa mig áfram. Er dugleg í ræktinni og allt gengur bara vel nema að muna að láta Ástu velja sér afmælisgjöf híhí