Friday, April 25, 2008

Gleðilegt sumar!

Vona að þið eigið nú öll yndislegt sumar í blíðu og ró. Það var nú gott að þið áttuð frí heima í gær. Við Margrét vorum reyndar líka í fríi, en af öðrum ástæðum. Hún fékk spangirnar í gær. Það gekk allt vel. Hún er ekki með þessar litlausu, en henni þykir það ekkert slæmt. Vinkona hennar er með þær, og með tímanum verða þær víst gular. Hún þarf svo á 3-4 mánaða fresti til tannlæknis til að láta fylgjast með burstuninni. Ef hún stendur sig ekki í því, gæti jafnvel endað með að spangirnar verði teknar af. En Margrét hefur verið dugleg að bursta, og ég hef litlar áhyggjur af því máli. Verst er að efri tennurnar lenda ofan á spönginni á neðri tönnunum. Gengur illa að loka muninum. Ef hún skyldi bíta stykki af þarf að setja hækkun á tennur svo hún geri það ekki aftur. En vonandi losnar hún við það. Var brött í gær, en tók svo töflu með kvöldinu. Rosalega slöpp í morgun, og ég sendi hana sko bara aftur í rúmmið.
Fór svo sjálf til Gifhorn, mætt korter yfir 8. Var hjá beinasérfræðingnum, sem vill kann hvort ég sé með beinþynningu. Það var tekin blóðprufa. Ég fæ líka 6 tíma í viðbót í sjúkarþjálfun. Það væri eftir því að ég hefði nú erft beinþynninguna frá dönsku ættinni, (eins og Dídí) svona á eftir slæmu slitgigtinni, hnakka-háls vandanum ( er eins og Quasimodo, hí,hí) og svo lofthræðslunni! Það væri örugglega efni í kvikmynd að setja mig, Dídí, Geirþrúði og Bibbu saman í bíl og aka eftir vegum á snarbröttum fjallavegum, hí,hí. Þessu til viðbótar erf'ði ég sívölu-feitu-klossuðu kálfana, og brjóstaleysið. Finnst ykkur ekki að mér sé rosalega vorkunn.:) :) :)
Þær dætur mínar kvarta stundum yfir hinu og þessu, sem ég hafi arfleitt þær að. En ég get víst lítið gert að þessu. Það er skaparinn, sem leggur þetta á okkur. Og ætli það væri ekki hægt að hafa það verr! Best að vera þakklátur fyrir það, sem er þó í lagi.
Við tókum Doreen með, þar sem hún vinnur í blómabúð í innbænum. Í dag skrapp ég til hennar og keypti tvö blóm, svona til að hún hefði eitthvað að gera. Margréti leist svo vel á tvílitar Geraníur í gær. Nú, nú. Svo sótti ég gleraugun í gær. Setti þau upp, og fannst eitthvað ekki í lagi. Gekk um með þau í klukkustund. Settist svo við borð á kaffihúsi meðan ég beið eftir Margréti, og fannst þá að borðið hallaðist. En það eru þá gleraugun, sem eru eitthvað ekki rétt. Allt, sem er nálægt mér, er kolskakkt. Taki ég blað í hendina, teygist það til hægri, en smá lengra frá er allt hallandi niður ttil vinstri. Mig svimaði bara. Dreif mig aftur í búðina, og mér var sagt að eðlilegt væri að ég þyrfti að venjast þessu. Neðri mörkin hefði breyttst. Og Hornhaut-- ?hornhimna? væri mikið breytt. Á að reyna að vera með þau í nokkra klukkutíma, en lagist þetta ekki, fer ég aftur á mánudaginn með gleraugun. VESEN. Get ekki ímyndað mér að þetta sé í lagi svona. Þeir ætla að endurtaka mælinguna. Sjá til hvað kemur út úr því.------
Veðrið var æðislegt í gær. Svo kom rigning í nótt, og hvessti mikið um tíma. Vaknaði látlaust. Núna er að koma sól, og spáð er 20 stigum um helgina.
Við Margrét röltum í bæinn eftir að hún var búin. Kíktum á Doreen, og litum inn í H&M. Ég splæsti á mig litríkri mussu, í appelsínugulu og rauðu, og hvítum kvartbuxum. Og Margrét fékk tvo sumarkjóla í safnið, sem er að verða hið myndarlegasta. Er víst að verða komið nóg af fötum í bili. En það er svona þegar kjóll kostar 10 til 20 evrur. Manni finnst það svo lítið. Og ef kíkt væri í suma skáp er þetta víst ekki mikið.
Klukkan að verða 11. Margrét að vakna til lífsins.
Styttist í vinnuna. Góða helgi.
Alexander á afmæli í dag. Til hamingju með strákinn Arnhildur mín og Vigfús. Saknaðarkveðjur.

5 comments:

Anonymous said...

Til hamingju með afmælið Alexander ;) Kv. Malla

Anonymous said...

Ekki vildi ég hafa þig handalausa elsku systir,hvernig færirðu að ef þú gætir ekki þrifið allan daginn, hver ætti t.d. að skeina þig?? það gæti lent á dætrum þínum og þá fyrst yrðu þær alvarlega brjálaðar.. svo ekkert meira svona he he! Brjálað að gera í skólanum, en styttist óðum, vorsýningin um hvítasunnuna-jibbí og þá er frí framundan.. eða réttara sagt ferð til Rvíkur að hjálpa gulldrengnum að flytja, og svo styttist í næsta íbúðar-extreme makeover. Aldís búin að fá vinnu í listigarðinum..
2xjibbí, innan um vini sína flugurnar,enda flugnavön eftir að hafa fengið hunangsflugu í næturheimsókn í rúmið sitt með tilheyrandi áverkum og áföllum. Já alltaf gaman hjá okkur. Kv affí

Kristín E. said...

Fínar myndir, greinilega komið sumar í Þýskalandi... þetta er allt að koma hér, grasstráin að stingast upp úr sinunni, lóan komin í hverfið mitt og kiðlingar í Húsdýragarðinum :o)
Gleðilegt sumar og til lukku með afmælið Alexander frændi :Dx

Anonymous said...

Síðbúin afmæliskveðja til Alexanders!
Verður extreme makeover á nýju íbúðinni í Reykjavík Affí?
Já handalausa viljum við ekki hafa þig Áslaug, það er alveg á hreinu...

Thordisa said...

Kommóðufætur fara um leið og þú hættir að gúffa í þig heilu tonni af kökum á viku og ferð að hreyfa þig og borða meira af ávöxtum og hollum mat! :-) Mikið vildi ég vera komin til ykakr í sumar og sól get ekki sagt að Ísland sé uppáhalds landið mitt hummm.. Saumó í kvöld svo þá hitti ég uppáhalds frænkurnar mínar og vinkonur í kaffi og meðlæti. En mest langar mig upp í flugvél og koma bara til þín!!!!