Monday, April 14, 2008

Ætlar hann aldrei að hætta!

Mánudagur, og rigning. Ég held að skaparinn sé búinn að ákveða að hafa bara rigningu hvern dag þetta árið. Annars var laugardagurinn miklu betri en spáð var. En í gær var til skiftis þetta fína veður og rigning, m.a.s. hagl. Margrét sefur inni í rúmi. Hún var með kvef í gær, og syfjuð og þreytt. Ég hef ekkert á móti því að hún sofi út. Þá er rólegt hér og ekkert stress á morgnana.
Á fö. dreif ég mig til Gifhorn að panta gleraugu. Hringdi fyrst til að ath. um nýjan seðil. Veit ekki hvað hægt sé að kalla þetta annað en lyfseðil, já, hljómar skemmtilega, ekki satt. Hér fær maður sem sagt "Rezept" fyrir gleraugum. Líka fyrir sjúkraþjálfun, nuddi, heitum böðum, og dvöl á heilsuhælum. En hvað þetta kallast heima??? Nú, nú. Þar sem ég er ekki í Privat-Krankenkasse, má ég láta Optiker, svona "gleraugnakall" skoða mig. Eins gott því ekki er beint auðvelt að fá tíma hjá augnlækni. Klaus hins vegar er Privat-sjúklingur og verður að fara til læknis. Kerfið hér er að verða ein skriffinnska út í eitt. Síðast þegar ég fór út í apótek, stundi afgreiðslukonan yfir öllum nýjum reglunum. Þessi meðöl eru greidd, þessi ekki, þetta efni er greitt, hitt ekki.---
Ég var svo í meira en klukktíma hjá þessum fína Optiker, og valdi mér nýja umgerð. Hef ekki mikið til að velja úr þar sem glerin eru svo þykk. Þá skifir máli hvernig þau eru pússuð. Get t.d. ekki fengið þessi flötu löngu, sem eru í týsku. Þá væru glerin ofboðslega þykk til endanna. Svo ég valdi afskaplega óspenandi venjuleg silfurlit gleraugu, og fæ þau svo eftir tvær vikur. Ódýr umgerð, bara 35 evrur, en samt kosta gleraugun næstum 600 evrur. Inni í því er reyndar 2 lituð gler með krókum, sem eru sett yfir gleraugun. Loks á ég þá sólgleraugu, æði. Þessi gler eru mótuð eftir umgerðinni, og smellpassa.
Á laugardagmorguninn skellti ég mér á hjóli að ná í rúndstykkin. Svo sóttum við Margrét Mariu til Muden, og lögðum leið okkar til Celle. Þær vinkonur fóru í sund. Ég rölti um bæinn, og keypti fullt af brauði til að setja í frysti. Þegar þær komu úr sundinu, skruppum við aftur í bæinn, og ég bauð þeim upp á ís. Ætluðum reyndar á eitt af fáum kaffihúsum, sem ég þekki, en þar sem klukkan var að verða 5, gátum við ekki fengið að setjast niður. Þar er sko lokað klukkan 5, og það á laugardegi. Stundum er þetta ótrúlegt með opnunartímana. Nenntum ekki að leita að öðru kaffihúsi, og enduðum sem sagt á ítölskum ísstað. Og að sjálfsögðu fékk Margrét sér Spaghettiís, og við hugsuðum til Þórdísar og Arnhildar.
Sunnudagurinn fór í tiltekt í garðinum, milli skúra. Gróf upp 3 runna með rótum. Strembin vinna, en maður hefur gott af þessu. Klaus fór svo í klukkutíma göngutúr, en ég í hálftíma hjóltúr
Lélegur sunnudagskrimmi, en dágóður krimmi frá Bretlandi hjá keppinautunum á stöð 2 þar á eftir.
Klukkan er 10. Ekkert bólar á dóttur minni. Rigningin hætt, í bili.
Hafið það gott. Hlakka til að frétta af Léttfeta og Syngjandi hlassi! -- Voru ekki fleiri indíánanöfn fundin upp fyrir fjölskylduna, ég man ekki meir????

Samt kosta

6 comments:

Kristín E. said...

Alltaf gott að fá ný gleraugu... en erfitt fyrir gleraugnagláma að velja umgjarðir :þ Hér fékk ég umgjörðina lánaða heim og átti að taka digital mynd af mér með nýju umgjörðina til að sjá þetta!! Frekar fyndið en virkaði ágætlega.
Við fáum vonandi að sjá mynd af þér með nýju gleraugun þegar þau skila sér til þín :)

Anonymous said...

Hérna í suðurhlutanum er líka skýjað og rigning... Ofboðslega lítið spennandi, en fengum samt fínasta veður um helgina, svo það er best að vera ekkert að kvarta..
Og já það þurfa víst fleiri að fara að drattast til "Optiker" og fá sér ný gleraugu -verst að ég veit fátt leiðinlegra og vildi miklu frekar geta skellt mér í leiserinn....
Hafðu það gott kæra Áslaug og bestu kveðjur frá okkur hér í Mering, Aldís

Thordisa said...

Mikið væri ég til í að hitta á ykkur Áslaugu og Aldísi saman það væri bara snilld er löngu kominn tími á að ég heimsæki Aldísi þarna suðureftir

Anonymous said...

Hrykalega hljómar það flott að vera í ,,krankenkassen"-ótrúlega myndrænt.. Þú verður að taka mynd af þér með nýju gleraugun og smella hér á síðuna. Nóg að gera hjá mér svona i lok skólaárs, Elli í prófum í HR og Aldís hefur nóg að gera, erum að leita dauðaleit að vinnu handa henni, vonandi gegnur það á endanum. Kveðja úr 11stiga hita og sól á norðurhorni Íslands.
Affí

Anonymous said...

Mamma,skelltu þér nú í laser augnaðgerð, ég veit að Affí og Diddi eru ánægð eftir að þau fóru! En þú ert bara kannski með of brenglaða sjón til að láta laga..hí hí..Arnhildur

Anonymous said...

Hallo Margret og Aslaug,

bin nach allen Schwierigkeiten hier kurz vor Mitternach ins Bett gefallen, allerdings ohne Schlafanzug. Weshalb? Weil nach meinem verspäteten Abflug in Atlanta mein Gepäck verloren ging. Heute morgen war es jedoch ins Hotel gebracht worden und ich konnte zum Meeting doch noch neue Wäsche und Hemd anziehen. Meine Aufbruch zum Meeting verzögerte sich jedoch auch noch einmal um 1 Stunde, weil im Land der beschränkten Möglichkeiten kein Taxi mich nach Clearwater bringen wollte. Also bin ich ca. 45 Minuten zu spät gekommen. Ansonsten ist alles o.k. Ein Kollege aus der Schweiz erzählte mir, er - ebenfalls mit KML/DELTA bzw. AirFrance gekommen - habe ähnliches erfahren. Erst verspäteter Abflug, dann Gepäck weg! Man sollte sich also nich unbedingt immer den günstigsten Flieger heraussuchen. Probleme scheinen vorprogrammiert.

Hier ist es jetzt früher Nachmittag (3 Uhr). Ich hoffe ihr erhaltete diese Nachricht noch heute. Bis bald Klaus