Friday, April 4, 2008

Þetta með þrifin.

Já, sitt sýnist hverjum um þrifin. Vissulega er það satt að mikilvægara sé að hugsa um heilsuna en tiltektina. En það að lifa í skít er ekki lausnin, og maður verður að halda uppi meðalstandard á heimilinu. Hér er ekki alltaf spikk og span, og það sést að hér býr fólk. En mér finnst mikilvægt að taka skurk af og til og gera grunnhreingerningu svo ekki verði of mikið af góðum skilyrðum fyrir rykmaura og bakteríur. Ég var t.d. fegin að hafa gert hreint niðri þegar Susanne píanókennarinn kom, og þurfti að nota snyrtinguna. Hugsa að ykkur þykji það líka. Málið er að nota tímann vel, og skifta honum niður þannig að allt verði gert án stress. Og það hefur ekki gengið upp hjá mér. En batnandi manni er best að lifa.
Ég tók svo hjólið fram-eftir tiltektina-og fór að versla meðan Margrét var að spila. Er svo búin að fara daglega á hjóli út í búð. Er bara stolt af mér. Svo eru salötin aftur komin í kvöldmatinn, og kornin útá. Annars er það mesta vesen að fá hér spennandi kornablöndu á salöt. Ekki þetta fína úrval eins og heima. Líklega verð ég að fá Sigyn til að senda mér bæði granateplafræ--hvað er nú það--segir fólk hér--og svona blöndu í bauk. -- Það mætti fylgja með nokkur Hjemmet og Alt for damerne.--- Auðvitað skal ég borga fyrir flutning og innihald.---
Ætla að reyna að fá Klaus í hjólaskoðun um helgina, en það þarf líka að kaupa á hann skó, og hann GETUR ekki gert nema eitt í einu, blessaður.
Fór í annan tíma í dag, og lenti hjá konu, sem er öll í "andlegu stíflunum," og reyndi að losa um hræðsluna í mér. Rosa indæl, og ég fíla nú svona í tætlur.
Þoka úti, fremur kalt. Er að fara í vinnuna, og hef þetta stutt að sinni. Góða helgi.

4 comments:

Anonymous said...

Losaðu svo bara rækilega um andlegu stíflurnar!! Og svo geturðu tekið hinar stíflurnar í leiðinni..og tappað af Klaus greyinu..he he!!Kveðjur frá veiku mæðgunum í Ránargötunni, jors trúlí Arnhildur

Anonymous said...

Er þetta ekki bara eins með þrifin eins og allt annað " allt er best í hófi ". Kveðja Malla

Anonymous said...

Gott að pianókennarinn þurfti ekki að setjast á skítinn, það hefði verið skítleiðinlegt fyrir alla aðila. Er að vinna fram að kvöldmat alla daga fram yfir helgi og meira og minna þessa helgi alla. Er að kenna skúlptúráfanga, og gifs og einangrunarplast berst út um allan skóla. Jafn gott að ekki er kennt á píanó þar... Lítill tími í blogg eða heimsóknir til p og m, bæti það upp um leið og fer að róast. Kv affí

Anonymous said...

Hahaha... sé alveg fyrir mér ef píanókennarinn hefði þurft á skítugt klósett hjá þér (swem ég efast um að hefði verið mjög skítugt anyway...)
Satt með skítastuðulinn, hann er misjafn hjá fólki og verður hver að fá að hafa sinn háttinn á því. Maður má víst ekki gleyma sér í þrifunum en ég hinsvegar fer alveg í skít ef allt er í skít!!
Skítleiðinlegt Affí - hahaha...