Wednesday, April 30, 2008

Löng helgi.

Miklu betra hljóð í mér í dag. Samt er ég ekki útsofin, og ekki gekk vel hjá Optiker í morgun. En ég þarf bara smá tíma til að melta slæmar fréttir og svo er þetta í lagi. Verst að þurfa að taka ákvörðun um hvenær, og hvort ég eyði fríi í þetta, eða taki skólastjórann á taugum, hí,hí. En hver veit nema starfið mitt verði lagt niður með þessu áframhaldi í skólamálunum hérna. Samt er það ekki enn á dagskrá. Var mætt til Gifhorn fyrir 9, og hann mældi augun í mér. Nú kom allt annað út en síðast. Svo var hann að mæla vinstra augað, og setti enn eitt glerið í. Og þá bara var allt óskýrt. Honum leist ekki á það. Svo nú fær ég tíma hjá augnlækni, -fyrr en "venjulegt" fólk út af þessu veseni. (21.5.) Þá kemur nú vonandi í ljós hvað sé með augun í mér.
Klaus fór á fætur klukkan 4 í nótt. Svaf illa og ég vaknaði oft út af því.. Hann fór svo klukkan 5. Ég á fætur klukkan 6. Ekki mikið um svefn. En veðrið er aftur yndislegt, og við Margrét hressar, enda komnar í langt helgarfrí. Klaus hringdi frá Paris klukkan 11, og þá hafði hann misst af fluginu vegna seinkun á vélinni frá Hannover. Átti síðan að fljúga klukkan 13.00. Við höfum svo ekki frétt meir. Hann ætlar að reyna að skrifa á bloggið--er það ekki hægt frá þessum Bandaríkjum?
Við mæðgur skruppum í gróðurhús, og keyptum nokkur blóm. Ætlum að setja þau niður á morgun. Svo jós ég eitri yfir eitt beðið því það var svo gjörsamlega morandi af maurum, úff ógeðslegt! Notaði tækifærið og þvoði sængina hans Klaus, og ætla að þvo hinar á næstunni.
and my tiny little nipples went to france -- Margrét er að flippa út--við vorum að horfa á Bruce Almighty, eins og sést á þessari uppáhaldssetningu hennar, hí,hí. ----
Lilla hringdi í dag. i do da cha cha-- held að ég hætti--Margrét er bara að trufla mig!
Góða nótt, og gleðilegan fyrsta maí.

2 comments:

Anonymous said...

Gleðilegan baráttudag. Komin að Álftavatni og þar er sól og austanstrekkingur - en náttúrulega bara dásamlegt. En hvað er þetta með eitur og maura og tækifærið til að þvo sæng Klaus? Voru líka maurar í henni eða var hún þvegin úr eitri? Líst ekki alveg á þetta. Já það er þetta með blessaða heilsuna. Þú kemur bara hingað heim og nýtur þess að vera í veikindafríi þegar þar að kemur. Bestu kv. Diddi bró.

Kristín E. said...

HæHæ... gleðilega 1. maí :o) er með barnaafmæli í gangi og börnin eru svo þæg að ég er bara í tölvunni hehehe 3 stelpur og 3 strákar í heimsókn :D
Bið að heilsa