Laugardagskvöld, við erum náttúrlega á fullu að skemmta okkur og úti á lífinu--not!- Eins og dætur mínar segja. Nei, hér er tilveran eins og vanalega. Tiltekt, innkaup, heimilisstörf. Ég vona að stíflurnar hafi eitthvað losnað, og er í fullri alvöru að spá í að borga konunni 60 evrur, og fara í 90 mín. meðferð til að losa um andlegu stíflurnar. Arnhildur segir að ég eigi að losa um þær allar! Og auðvitað hlýði ég henni. Spurning um stíflurnar í Klaus, hm,hm.
Við erum bara hress þrátt fyrir geðveika rigningu, og slydduspá fyrir morguninn. Margrét fór til Mariu í dag að gera verkefni í Politik, og líklega kemur Maria svo með henni eftir skóla á mánudaginn svo þær geti klárað. Þær eru nefnilega svo klókar að ljúka við þetta meðan veðrið er svona og ekkert hægt að gera nema hanga inni. Við gömlu kláruðum að rúlla "fljótandi veggfóðrinu" og svo er stefnt á að mála á morgun. Daniela kemur eftir hádegið með tölvuna sína. Klaus ætlar að laga eitthvað.
Vona að dóttir mín og barnabarnið séu að verða frískar. Þetta er nú meira með veikindin í famelíunni. Vona svo sannarlega að Svanhildur, Sigurður og synir séu nú hætt að fá einhverja kvilla. Svo vona ég að Maddý verði okkur ekki til skammar úti í löndum, kyssandi einhverja ítali á veitingastöðum. Eða var það aðallega Þorgerður, sem stóð í því!!! Væri henni líkt.
Vona líka að Léttfeti fái að drekka marga bjóra, og geti skokkað sem mest. Tekið nokkrar hláturs-innsogs-tarnir! Sem sé elsku Maddý--góða ferð og skemmtið ykkur bæði alveg rosalega vel.
Svo eru hér afmæliskveðjur til litla, ljóta heimska frænda-- nei, bara grín. Elsku fallegi ljóngáfaði og skemmtilegi frændi minn, Örn hinn yngri,-- til hamingju með daginn. Húrra fyrir þér!
Nú ætla ég í rúmið með henni Lese Lotte. Það er nýjasta vinkonan mín. Hún er rauð, eins og koddi í laginu, með frönskum rennilás. Á henni liggur svo krimminn minn, í rauðri kápu, með frönskum rennilás, og er festur á hinn rennilásinn. Nú liggur bókin án þess að vera þvæld í sænginni, og þarf maður bara eina hendi til að fletta blaðsíðunum. Þvílíkur munur fyrir gamlar konur.
Hafið það gott og skemmtið ykkur vel á þessu laugardagskvöldi.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Var að koma úr frábærri sumarbústaðaferð með 6 kellum úr vinnunni, mikið hlegið fram undir morgun!
Pabbi og mamma komin í borg óttans, fara svo út á mánudagsmorguninn. Engu að treysta hvað gerist ef hún hittir Ítala, jafn gott að ég verð ekki með...
Eigðu sömuleiðis afslappað kósý laugardagskvöld!
Sit hér og les bloggið fyrir mömmu og pabba, sem eru gleraugnalaus hér við tölvuna. Mamma og pabbi þreytt í kvöld, enda voru þau með partý á Ak fyrir Giljaskólalið til rúmlega 3 síðustu nótt!!! Þú verður bara að skella þér og bjóða skólaliðinu í partý, þá verður fjör hjá þér líka. Kv. Malla,léttfeti og syngjandi hlass :)
Takk fyrir afmæliskveðjur til Arnar. Drengurinn bara skilinn eftir foreldralaus á afmælisdaginn því foreldrarnir þurftu að fara að Álftavatni að taka á móti Leikhúsmógúlsliði í hádegismat í bústaðnum og svo í matarboð hjá Signýju. En hann var sæll og glaður með þetta, nýja bassagítarinn sinn og bræður og vini. Stefnum á afmæli næstu helgi. Hér er áfram kalt en gott veður í dag. Er að fara út að hjóla áður en við lendum í fermingarveislu hjá Gunnsu frænku Sigynar. Bestu kveðjur Diddi
Post a Comment