Loks kominn föstudagur. Vikan var hundleiðinleg hvað veðrið varðar, og ekki er hann mikið skárri í dag. Smá rigning af og til. Þungbúið, og kalt. Ekki fer maður mikið út með gæsluliðið í dag. En ég hjólaði bæði í gær og fyrradag. Fór í hálftíma ferðir. Yfir lestarbrúna til Dalldorf, og svo hjólaði ég í þorpinu. Er búin að taka fram W.W.uppskriftirnar mínar, og nú er bara að byrja! Verst hvað það er leiðinlegt að þufa alltaf að hugsa um mat og elda eitthvað sérstakt. Að maður geti ekki bara svelt sig í viku og allt sé í fína. Klaus er með gesti í vinnunni. Fót út að borða með þeim í gær. Margrét þurfti ekki í fyrsta tímann í morgun. Mikið var það indælt að láta klukkuna hringja klukkan 7.
Á morgun fer ég með Margréti og Mariu til Celle. Þær ætla í sund. Kannski ég skelli mér líka úti.
Og svo þarf að halda áfram uppi á háaloftinu. Loks komið bréf frá báðum sjúkrasamlögunum, sem eiga að greiða tannréttingar Margrétar. Þeir gefa grænt ljós. Förum í undirbúningstíma í næstu viku, og svo fær hún spangirnar eftir tvær vikur. Ekki spennandi, en verður að hafa það.
Svo var önnur spöngin að brotna af gleraugunum mínum. Er búin að ætla að fá mér ný gleraugu síðan í júlí í fyrra, en átti nú ekki beint peninga til þess í fyrra. Þeir voru ansi margir mánuðirnir, sem við þurftum að borga vexti fyrir að fara yfir á reikningnum. En nú ætti þetta að vera í lagi. Verst að lyfseðilinn, sem ég fékk þá, er löngu dottinn úr gildi, hí,hí, og ég verð víst að fara aftur til augnlæknis. Fer svo til læknis út af marinu í brjóstinu í lok april, og líka aftur út af bakinu. Svo við verðum látlaust í læknastofum þennan mánuðinn.
Vona að þið hafið það öll gott. Gaman að heyra hvað liðið er duglegt í sundi og á skíðum.
Meðan ég man. Auðvitað get ég líka reddað fatnaði í H&M fyrir alla, sem vilja. Ef farið er inn á netið er bara að skrifa niður númer og stærð. Skrifa mér svo, og ég panta og pakka svo niður til ykkar. Það kostar 30 evrur fyrir að senda 5 kg, og 35 fyrir 10, og 45 fyrir 10 til 20 kíló.
Get auðvitað sent þetta sem gjöf. Bara að fara á hm.com.---------
Fæ alltaf af og til 10 % afslátt.
Góða helgi.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Kem því aldrei í verk að skoða með Ástu er alveg ómöguleg geri bara ekkert nema vinna og fara í Laugar hummm... Væri nú gaman að sjá þig sem fyrst sakna þín mikið
Góða helgi! Hafið það gott.
bestu kveðjur, Svanhildur, Ástþór Örn og Arnaldur Kári
Vonandi verður veður betra um helgina og sól úti og inni. Hér er svalt, engin Álftavatnsferð vegna veikinda Eiríks H. og svo eru jarðarfarir endalausar. Gunnar Örn listmálari og vinur Eiríks tengdapabba jarðaður núna á eftir og svo Bjarni Pétursson frá Gautlöndum á mánudaginn. Og Sveinn maður Gurru var jarðaður í vikunni. Þetta kemur svona í gusum. Var sjálfur eitthvað slappur í gær og fór í rúmið mjög snemma. Slepp vonandi við eitthvað vesen. En hafði það gott þarna úti.
Bestu kveðjur
Diddi
Lyfseðil vegna gleraugna, tihi. Gott að hlæja smá ekki satt?? Hér er nóg að gera, kom auka barn með af leikskólanum, verður til 19. Gígja kemur með krakkana sína um 19 og verða þau í næturpössun, svaka stuð. Stefni á rólegan sunnudag :) Kv. Malla
Fanney Margrét dóttir Siggu vinkonu var að fá spangir eftir jólin, er með glæra teina á framtönnunum og maður sér þetta varla. Skoðið vel hvað er í boði hjá ykkar tannsa. Góða helgi!
Post a Comment