Monday, April 7, 2008

Mánudagur.

Mikið voruð þið væn að kommentera hjá mér. Gaman þegar Affí og Þorgerður eru báðar að skrifa! Þetta eru svo hressar konur. Og Malla er alltaf jafn trygg. Meira að segja min lasna dóttir búin að pikka. Í dag er mánudagur í mér. Þess vegna var ég rosalega glöð að finna kommentin. Vaknaði grútsyfjuð, í hríðarslyddu, og dimmu. Lagði mig aftur, sem er enn verra. Fæ alltaf martröð--náttúrlega út af því að ég er með samviskubit að vera ekki að GERA eitthvað, ekki satt. Svona er maður. Rigning eftir kaffið. Maður er alveg að fara að fá nóg.
Sótti Margréti og Mariu í skólann, og þær undirbjuggu verkefni. Maria var svo sótt um 4. Það eina, sem ég kom í verk, var að ryksuga uppi, þrífa klósettin, --Maria þurfti sem sé ekki á óhreint klósett, gott, ekki satt! Pasta og hænsnabitar í hádeginu, og salat og brauð í kvöld. Að ósk dóttur minnar með eplum og ananas.- Er svo að fara að horfa á sjónvarpið. Þetta er nú meiri dagurinn. Talaði reyndar við pabba, sem er hinn duglegasti við að mála. Flott, og áfram með það.
Hlýt að verða eldhress á morgun, og tek þá til á loftinu. Veðrið á að fara batnandi, en hvort það stenst.- Vona að vikan hafi byrjað betur hjá ykkur. Dauðöfunda Maddý af ferðinni. Hlakka til að fá fréttir. Líklega hegðar hún sér betur með Léttfeta í för með sér, hí,hí.
Tek morgundaginn með trompi---áfram með smjörið.

5 comments:

Kristín E. said...

Gaman að fylgjast svona vel með þér... þú ert svo dugleg að blogga :o)
Er voða hress í dag :o) er að fara á ráðstefnu eftir vinnu á morgun og svo í mat á eftir... allt á Hótel Holti... og svo á að senda mig á ráðstefnu til norður Svíþjóðar í lok maí... til Luleå.. bara spennandi.
Bið að heilsa Margréti litlu frænku og Klaus

Anonymous said...

Pabbi og mamma búin að senda sms - komin á hótel í Norge og eiga vonandi eftir að haga sér vel!

Thordisa said...

Enginn hefur sagt mér neitt um Maddý og hennar ferð veit ekki hvar hún er né hvað hún er að gera????

Anonymous said...

Kristín - þú ferð þá í H&M og verslar fyrir okkur systur í leiðinni - hehehe...

Anonymous said...

Kristín veistu hvar Lulea er?? Lengst norður í rassgati og örugglega allt á kafi í snjó langt fram á sumar.... Nei nei,örugglega H&M þarna eins og allsstaðar í heiminum, mjög gaman að koma þarna,fór á síðustu öld þangað og hafði gaman af. Einar Jan vonandi glaður með sitt viski meðan Magga móða syngur fyrir norsarana.Væri alveg til í að skreppa til spánar núna í nokkra daga í sól og hita. Kv affí