Tuesday, April 8, 2008

Heldur betur hressari.

Í dag líður mér sko miklu betur en í gær. Takk fyrir kvittanir í dag. Hvernig er þetta með hana Þórdisi, hún segist ekki vita um ferðina hennar Maddýar. Er þetta ekki þjóðinni ljóst--hún er með Emblunum, og þær ætla að syngja og töfra Norðmenn! Einar og Kiddi fengu að fara með til að drösla farangrinum, híhí. (Þórdís-viltu láta Ástu skoða toppinn, sem Margrét er í á myndinni. Frá Vero Moda. Kannski Ástu langi í svona. Til í mörgum litum. Arnhildur á líka að skoða þetta.)
Margrét setti svo Drakula myndina af mér til að láta ykkur hlægja. Verði ykkur að góðu!
Hér er búið að vera hið besta veður. Reyndar mikið um ský, en sólin kemur oft fram. Búin að hamast á loftinu. Taka plastdraslið, sem var til hlífðar, þrífa gólfið. Bæði ryksuga og skúra, liggjandi á hnjánum. Rutta til húsgögnunum. Og nú er bara eftir öll smáatriðin, sem taka samt mikinn tíma.
Margrét er í spilatíma. Ég búin að fara í sjúkraleikfimi. Var aftur hjá henni með "stíflurnar. " Hún segir að vinstri hliðin á mér sé ekki nógu sterk. það er víst kvennhliðin. Karlhliðin fari með ráðin. Sú kvennlega á t.d. að sjá um að fyrigefa, láta það liðna eiga sig, taka ákvarðanir, og fleira slíkt. Ég ligg t.d. ekki jafnt. Heldur dreg vinstri fótinn að karlhliðinni. Já, maður er enn að læra, konan orðin háöldruð!

3 comments:

Anonymous said...

Fékk SMS frá Noregsförum í gær... fyrstu tónleikar búnir og gekk vel og svo komst hún líka í H&M í gær :o) sem er auðvitað alltaf gott.
Fínar myndir af vorinu í Þýskalandi... kveðja Kristín í fallega páskahretinu á Íslandi :D

Anonymous said...

Hæ, hér er snjór og fremur svalt þessa stundina, ekki svona vorstemning eins og í Germaníu. Annars var hér fallegt vorveður um hádegi í gær þannig að þetta fer allt að koma. Örn með bekkjarafmæli í gær, ég á fundi í Umhverfisráði og svo söngæfingu um kvöldið. Hvort tveggja bara gaman. Veit ekki hvernig verður með austurferð um helgina en ég vona að hún verði möguleg. Annars erum við líka að spá í fjölskylduafmæli fyrir Örn um helgina, en það er ekki komið lengra en á vangaveltustigið enn.
Bestu kveðjur.
Diddi

Anonymous said...

Snjór hér í morgun en sól og flott veður um fjögurleytið. Ég skellti mér með orkuboltana í sund og sólaði mig + safnaði freknum ;) Kv. Malla