Tuesday, June 30, 2009

Vel heitt.

Mælirinn í bílnum sýndi um 29 stiga hita í dag. Til allrar hamingju var ekki alltaf sól, og því vel þolanlegt. En hitinn á að fara hækkandi. Þetta er nú meira landið. Viljið þið fá ein 6 stig allavega!
Dagurinn byrjaði vel eða þannig. Klaus fór í sturtu, og sturtuhausinn hreinlega brotnaði af! Ég fór því í sturtu með slönguna eina saman! Í gærkvöldi losnaði önnur festingin af setunni á klósettinu og Klaus var lengi að baksa við að festa þetta aftur :)
Vakti liðið um tíu, og við vorum komnar til BS fyrir hádegið. Mín flinka dóttir náttúrlega undir stýri og mamman er bara afslöppuð--miðað við persónu með bílhræðslu á háu stigi. (fj----Vestfirðir)
Og svo settust allir mínir afkomendur, allir þessir mörgu þrír-- :) á stofu og létu klippa sig. Kristín vildi fá styttur, Margrét lét taka neðan af hárinu og gera skáa í það að framan. Og mesta breytingin var hjá Arnhildi, sem fékk loksins síðara að framan og stutt að aftan. Og--gott á hana-- konan skifti hárinu ekki í miðju eins og hún gerir alltaf, og hún var með skátopp----algjörlega æðislega fín. En hún pirrast nú við að fá þetta framan í andlitið, og sennilega mun hún breyta þessu. En við tókum slatta af myndum, og þegar Margrét er hlætt að pakka inn gjöfum handa Klaus, aðstoða Guðnýju i tölvu eða hvað það er sem hún er að gera, kemur hún og setur myndir inn.
Á eftir var farið á McDon , en grimma amma ætlar að taka með nesti næst því það er nokkuð dýrt að splæsa mat á veitingastað þó að ekki sé það nema á skyndibitastað. Hægt að kaupa bol og fleira fyrir 20-22 evrur, eða hvað finnst Möllu !!!!!!!
Liðið var í 45 mín í H& M og gamla konan sat á fínasta sófa frammi. Lét fara vel um sig. Aðalega var verið að máta föt handa Ástu. Guðný stjórnar í því. Arnhildur fann svo bikinítopp, og við skruppum í Bodyshop. Neðst niðri var fullt í gangi fyrir krakka. Blöðrur, húlahringir, stórir boltar og sitt hvað fleira. Þar voru þær stuttu um tíma.
Klaus fór í leikfimi á gamla bílnum því við náðum ekki að koma í tæka tíð. Enda getur hann nú líka farið á honum af og til.
Eldaði svo graut er heim kom. Guðný skeptisk, en fékk sér tvisvar og svo grillað brauð með.
Í fyrramálið þarf ég af stað með Margréti til Gifhorn klukkan 8. Hún er að losna við spangirnar. Þvílík sæla.
Arnhildur að hamast við að laga til og stefnir á að ryksuga á morgun eftir að allt fylltist af grasi eftir að stelpurnar fóru undir garðúðarann í gær :) Og það í fötunum.

3 comments:

Anonymous said...

Greinilega fjör og læti. Láttu þetta stelpustóð ekki alveg valta yfir þig systir sæl. En svona án gríns, það er greinilega glatt á hjalla hjá ykkur ekki síður en var hjá mér og drengjunum í norðurferðinni. Erum á Akureyri og leggjum af stað suður einhvern tímann á eftir. Hafið það sem best.
Diddi

Malla said...

Ég myndi pottþétt fara með nesti suma daga, það gerir líka meira úr skiptunum sem farið er í dekur á mac eða álíka ;)

Anonymous said...

Hvernig fer maður í leikfimi á gömlum bíl??