Thursday, June 25, 2009

Vatnsleysi.

Í morgun var vatnið tekið af og við fáum það ekki fyrr en undir eitt. Fötur til að bjarga málunum :) Verið að gera við lagnir. Liðið á fætur um tíu í morgun. Sólin að hverfa og gæti rignt í dag. Spáð þrumum, en maður veit aldrei hvar þær nú lenda. Við sleppum oft hér við verstu veðrin. Ekki hefur verið notalegt í Bæjaralandi og Austurríki undanfarið. Hellidemba og allt á kafi.
Í gær var æðislegt veður. Við sátum lengi úti og dúlluðum við lestur, illgresisplokkun og hlustað var á músík. Þæt stuttu flögruðu um í hvert skifti sem vespa kom nálægt okkur. En þar sem við eldri erum svo voða afslappaðar fóru þær að róast. Og undir lokin snéri Guðný vörn i sókn og tók flugnaspaðann og fór að elta þær. Var bara eins og amma gamla þegar hún fer á flugnaveiðar í Meinersen!
Margrét kláraði skólann í gær og var ein af þremur efstu í árgangnum. Allt stelpur. Hún var alveg að drepast í gær og fyrradag út af verkjum, og ég er að spá í hvort ég ætti að fá pilluna handa henni til að laga þetta. Hvað segir hjúkkan okkar við því?
En hún dreif sig í skólann og allt gekk vel. Arnhildur skrapp á bílnum með stelpurnar til að sýna þeim baðsjóinn, sem bekkur Margétar var við á mánudaginn. Þeim leist vel á og stefnt er á ferð sem fyrst. Verst að Margrét er ekki alveg fær um sundferðir, en þetta tekur enda.
Svo renndum við í Nettó, og litlu fengu að kaupa nammi fyrir helgina, og flögupoki lenti "alveg óvart" með :), eða þannig. Það eru margar óskirnar, og ég í því að neita og neita. Segi að bata verði keypt eitt í einu og óskir verði uppfylltar smátt og smátt.
Við Arnhildur steiktum svo fisk, og útbjuggum salat, og allir voru sáttir við það. Guðný borðaði tvær kartöflur--hver segir að hún smakki þær ekki! Sko hana.
Svo sátu þær systur yfir Greys Anatomi -veit ekki hvernig maður skrifar það--og við gömlu yfir góðri mynd, og jarðarberjatertan rann ljúflega niður í kvöldkaffinu :)
Guðný borðaði smá af henni, en þeim stuttu þótti hún ekki spes, og Klaus vill "annað hvort ostaköku eða jarðarberjaköku"--þessir kallar. Hann minnir óneitanlega oft á pabba með sínar kenjar :) Þetta var ekki eins og mamma gerði!!!
Í dag fer ég í kaffi til einnar, sem er að hætta hjá okkur í skólanum. Fer með Frau Kuhle og tveimur öðrum. Fer eftir veðri hvað liðið hér gerir.
Doreen kom loks í gær með hundinn og KD himinsæl. Var heldur betur búin að bíða eftir að hitta hana og hundinn.
Jæja. Tók skorpu í illgresinu áðan, og fer voða varlega og tek ekkert, sem er fast. Maður getur bara ekki gert ekki neitt. Arnhildur hlær að okkur með sápurnar okkar og fór bara að skokka út í skóg í gær í staðinn fyrir að horfa á þetta með okkur! Þær ætla svo að skokka reglulega og við förum að einbeita okkur að líkamsæfingum og koma hjólunum í stand.
Lofa að vera dugleg að setja myndir inná. Hafið það gott.

4 comments:

Malla frænka said...

Hvað gæti verið betra en ostakaka með jarðarberjum, tvær flugur í einu höggi??? Margrét til lukku með góðan árangur og mikið er Arnhildur dugleg að skokka bara, ég er líka byrjuð að skokka en kemst ekki langt, vegna meiðsla í hnéi..... hundfúlt!!!

Anonymous said...

Við á Garðslofti erum fegin að Margrét varð fjölskyldunni ekki til skammar með frammistöðuleysi í skólanum. Erum líka á þeirri skoðun að ef kakan ést ekki hjá ykkur þá getið þið bara sent hana til okkar. Við sunnanmenn mættum hérna rétt fyrir hádegi og erum að ná okkur niður í sæluvímunni sem fylgir því að koma í sveitina. Bestu kv í bili.
Diddi

Kristín E. said...

Hættiði að tala um þessa jarðarberjaostaköku.... myndin færist smám saman neðar á skjáinn og þá kannski get ég hætt að hugsa um hana hehehhehe

Varðandi Margréti, hvaða verkjalyf tekur hún þegar þetta ástand er í gangi??? Þorgerður systir mælti með Naproxen og Paratabs (Paracetamol) fyrir mig þegar ég er slæm og það svínvirkar, ein Naproxen og ein Paratabs, það hlýtur að vera til eitthvað sambærilegt í Germaníu.

Sendi Arnhildi hrós yfir hafið fyrir skokkið og sendi á hana áskorun... að kenna Margréti að stinga sér og kafa fyrir sumarlok :o) treysti henni fyrir því :D

Anonymous said...

vá ég öfunda guðnýju svo mikið þegar ég sé þessar myndir haha! mátt skila til hennar að ég sakna hennar ótrúlega mikið:) - ásta;*