Saturday, June 27, 2009

Skýrsla dagsins.

Hlýtt en ekki sól. Liðið svaf lengi-- nema ég. Skrapp í bakaríið og morgunmaturinn beið þegar liðið kom á fætur upp úr 11. Dæturnar versluðu, og ég gerði lítið í dag. Doreen og Margrét elduðu svo kvöldmatinn, sem var æðislegur. Makkarónu-spaghetti með hakksósu og ostasósu, með osti ofan á. N.k. lasagne. Var rosa gott. Doreen borðaði auðvitað með okkur og svo horfðum við öll á mynd í sjónvarpinu. Nema þær stuttu, sem voru í tölvunni. Rigndi um tíma, og Klaus var of seinn að slá grasið, en það koma dagar eftir þannan. Reyndi að ná í mömmu og pabba og í Lillu, en enginn heima.
Hjólin græjuð í dag og stelpurnar fóru í stuttan hjóltur, sem reyndist Guðnýju "afskaplega erfiður" þar sem mikið var af pöddum :) Arnhildur skokkaði með þeim.
Frekar skondin sýningin í gær. Furða hvað kallast list. En upplifun að sjá nútímalist og spá í hvað sé list! T.d. súkkulaðispor á gólfi, sem lágu að baðkeri, fullu af volgu súkkulaði! Video af manni að raka á sér punginn, og á eftir brenndi hann hárin. Já, þetta er mikil kúnst!!!!!!
Þær skruppu svo stutt í bæinn á eftir og fengu sér mangódrykk hjá McDon, sem var það besta í ferðinni! -- Kláruðum skyrið í dag. Takk Þórdís mín. Við vorum að treina okkur þetta sælgæti. Smakkaðist vel. Hafið það gott.

3 comments:

Anonymous said...

haha guðný er allveg eins og ég var, hrædd við pöddur:') en heyrðu þótt þú trúir því örugglega ekki áslaug þá er eg allveg hætt að vera hrædd við pöddur eftir að vinna i unglingavinnunni, reyndar ennþá hrædd við geitunga en þeir stinga lika heh:D skilaðu kveðju til allra:) - ásta

Anonymous said...

Gaman að lesa fréttir af ykkur í Meinersen. Greinilega verið að bardúsa margt skemmtilegt. Þórdís leit til okkar í dag, gaman að sjá hana. Vonum að þið hafið það gott áfram, held ég fari að taka Arnhildi mér til fyrirmyndar og skreppa út að skokka. Kraftur í henni :o)
Hafið það gott. Bestu kveðjur, Svanhildur

Thordisa said...

Fleiri myndir takk :-) Ég skal fara að setja sjálf inn nokkrar. Eins og Svanhildur sagði þá fór ég til þeirra í gær og átti með þeim góða stund. Strákarnir eru æði og þetta var rosa gaman. Hér er hlýtt en ekki sól og ég er á fullu að læra undir þessi fjármál hvernig svo sem það gengur. Hringjum í ykkur í dag. Ef Guðnýju vantar pening og þú þarft að lána henni þá skrifar þú það samviskusamlega niður.