Monday, June 29, 2009

Vel heitt.

Um það bil 25 stig núna. Klukkan er að nálgast 3, og dömurnar eru farnar í ferð að þessu sulluvatni. Með hatta, sólvörn, bolta og frisbí. Ég er heima að skemmta kallinum :) Afgangar af rétti Doreenar og Margrétar í hádeginu, og jöklasalat með. Guðný er alveg vitlaus í það, en vill ekki sósu :) Borðar það bara hreint. En KD kann vel að meta dönsku sósuna frá Estrid. Klaus tók törn í garðinum og stakk upp "vondar" plöntur, sem ekki er gott að nái að breiða úr sér. Ég fór í smá illgresisplokkun, M. og Guðný í badminton, og KD líka, en henni þykir það ekki eins gaman og hinum. Las svo í Hjemmet, og drakk kaffi lengi morguns.

Sunnudagurinn ekki eins heitur og dagurinn í dag. En ósköp yndislegur samt. Þær systur tóku bakstursdag, og bökuðu muffins, gersnúða og enduðu á vöfflum a la VÖ. Svo var grillað og það var nú hið besta mál. Aftur skokkað og hjólað, og svo var byrjað á að gera æfingar á gólfinu.
Heyrði í þeim gömlu i gær. Gaman að svona margir skyldu hafa verið í Garði um helgina. Fjör, og ekki spillir ef veðrið er gott.
Willy, pabbi Klaus, var fæddur 29.6., -- og svo er afmæli Helgu Margrétar á morgun. Við sendum okkar bestu kveðjur til hennar.
Jæja, svo er að sjá hvort dömurnar hafi fengið pláss við vatnið eða hvort allt sé pakkað þarna. Þær ætla að enda á ís hjá ítölunum hérna við aðalgötuna.

No comments: