Annar í heimsókn. Margrét í næst síðasta skiftið í skólann, klukkan 8.20. Ég á fætur með og bakaði æðisgengna ostaköku, með rjómaosti. Á botni kex í smjöri, í fyllingunni egg og sykur með ostinum,--sem sagt megrandi!!! Ofan á slatti af jarðarberjum í hlaupi. Þetta beið okkar eftir ferð til Gifhorn, sem hófst klukkan 12 með því að sækja Margréti í skólann og fara með hana til húðsjúkdómalæknis, allt í besta lagi. Á meðan kíktu hinar í búðir. Guðný ofur hamingjusöm að komast í H&M. Mátaði þar af miklum dugnaði og er greinilega ekki að versla föt í fyrsta sinn :) Hún keypti sér stutt vesti, topp og bol. KD fann stuttbuxur og fékk sandala, og spariskó á smá hælum, töff! Og Arnhildur keypti sér pena sandala, ekki alveg í hennar gamla klossaða stíl. Já, menn geta breytt um smekk :) Skórnir voru á tilboði, 26 evrur parið. Nú eru að skella á útsölurnar.
Svo var ís á línuna meðan gamla klessa rölti til að láta laga gleraugun, sem skekkjast með jöfnu millibili. :)
Síðasti píanótíminn, og á morgun fer Margrét í skólann klukkan 7.30 og fær einkunnablaðið. Verður í 3 tíma og er þá komin í sumarfrí, jibbí!!!!!!
Dömurnar eru úti, og leika sér með bolta. Í gær dóu þær næstum þegar þær sáu risa konguló í forstofunni, --o my --- og svo var maur á boltanum, o my----. En vonandi venjast þær þessu og verða hættar að kippa sér upp við þetta.
Margrét skrapp í bekkjarparty við vatn hér nálægt. það er hið besta "sulluvatn" og við stefnum á að fara þangað i sólbað og sull og leti sem fyrst. Hún var nú ekki lengi enda vel þreytt eftir stutta nótt.
Vona að hún hafi svo bráðum tíma til að setja inn myndirnar. Lofum að vera duglegar að mynda.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Hafið það öll gott og njótið samverunnar!
Þessi ostakaka lítur afskaplega vel út :o)
Bestu kveðjur, Svanhildur og co.
'Eg vil fá nákvæma uppskrift af þessari köku!! Getið þið ekki sett hana í skilaboðin í fésbókinni? Já og góða skemmtun öll sömun, líklega ekki leiðinlegt að vera í sól og sumarblíðu. Hér rignir en þó þokkalegt veður inn á milli. Allir að hressast eftir mikla kvefpest. Kveðjur, affí
Þá er maður kominn norður með Örn og Eirík. Upp í sveit á morgun og við verðum þar næstu daga. Það verður m.a. farið norður í Gjástykki til að skoða aðstæður. Greinilegt að allt er í sóma þarna úti, með búðarrápi og kaknaveislum. Til hamingju að vera komin í sumarfrí Margrét.
Bestu kveðjur Diddi
Post a Comment