Þriðjudagur, og píanótími niðri. Sólarlítið þessa dagana en besta veður fyrir því. Klaus fór til Frankfurt í morgun og kemst vonandi heim á skikkanlegum tíma. Margrét er þessa viku á námskeiði að læra að skrifa umsóknir út af vinnu. Fékk ekki það, sem hún bað um í þemavikunni. Fór í morgun til Gifhorn og þarf aftur í fyrramálið. Ég ók henni í morgun og sennilega fer hún á morgun með Klaus. Ekki mikið úr leið. Það gekk vel að aka. Mér fer daglega fram, og maður á jú að nota líkamann. Bara ekki að ofreyna sig og ekki að lyfta neinu þungu. Ekki beint líf, sem mér líkar við, en ætla ekki að lenda aftur á sjúkrahúsi ef ég get komið í veg fyrir það.
Rétt heyrðum í Arnhildi áðan, sem er að laga til í íbúðinni og finnst það voða gaman , eða þannig:) Hún verður voða glöð að fá að laga til hérna, hehe. Allt í ryki og rusli.
Í gær fórum við mæðgur til lækna í Gifhorn. Maðurinn, sem býr með Frau Kühle, ók okkur á sinn hvorn staðinn. Ég fór til míns kvennsjúkdómalæknis. Hann var feginn að ég væri hress. Var búinn að fá hringingu út af þessu með blóðmissinn og breyttu aðgerðina í framhaldi út af því, og þótti það leitt. Eins sagði hann að þetta hefði líklega verið sárt, svona að láta toga leghálsinn upp og festa draslið við hann. Já, þetta var sárt, en nú er þetta vonandi afstaðið allt saman.
Eftir 6 vikur á ég að gera æfingar og ætla mér að taka það alvarlega.
Margrét fékk þær fréttir að hún losni við spangirnar á afmæli Klaus, þann 1.7. Hún er heldur betur fegin. Fær lausan góm, en það er miklu minna vesen en að vera með þetta alltaf.
Hún kom heim í hádeginu frá Gifhorn með strætó og ég hitti hana svo í Nettó þar sem við versluðum saman. Er búin að setja í vél og taka eldhúsið í gegn. Dugleg stelpa. Örugglega íslensku genin!!! :)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
7 comments:
gleðilegan þjóðhátíðardag frænka!
Já þá er kominn 17 júni, tíminn líður allt of hratt. Hér rignir samfellt og ekki mikið útiveður. Pabbi og mamma fóru á útskriftina í MA, voru í tæpa tvo tíma en fannst bara gaman. Svo fara þau að borða með hópnum í kvöld. Ég hef ekki gert handtak í allan dag, nenni engu, er að lesa krimma á ensku, og ætla að reyna að finna létta franska bók að lesa í sumar. Ætlaði út að hlaupa, en veðrið ekki heppilegt, svo þessi blessaði dagur líður við ekki neitt he he. Annars allir bara hressir. Þú ferð varlega með þig, kveðjur til allra, Affí
Þjóðhát.dagur að kvöldi kominn.Hér rigndi mikið en samt ekki kalt.Einar byrjaði að blása kl.10 í morgun og var að langt fram á dag.Ég fór í Lystig.í þjóðb. mömmu (Lillu)og var það ekki gott fyrir pilsið sem var allt í mold og grasi.Malla og Össi fara á morgun en ég hef Helgu mína eftir og förum við fljótlega í sveitina.Gerði móður þína rosa flotta áður en hún fór út að borða í tilefni 60 ára stúdentsafm. föður þíns.Keyrði þau inn á Friðrik v og Malla sótti þau áðan svo þau skiluðu sér heim!!Gott að þú ert að hressast.Magga móða.
Gott að heilsan er að koma aftur, og verður gaman fyrir ykkur að fá liðið í heimsókn! Hér sól en frekar kalt, vona að veðrið haldist þokkalegt um helgina. Fæ Möllu grasekkju, Kristján Örn og Álfhildi Ester í pizzuveislu í kvöld, hlakka mikið til að knúsa litlu frænkuna aftur eftir dvölina á Akureyri. Helga í góðu yfirlæti hjá ömmu á Akureyri, Hildur aldrei heima svo prinsinn hefur foreldrana nánast útaf fyrir sig!
Bestu kveðjur með ósk um góðan bata!!
Sá að þú varst eitthvað að segja að netfangið þitt væri í skralli. 'eg skrifaði þér bréf og sendi í tölvupósti, spurning hvort þú hefur fengið það, láttu mig vita á fésbókinni ef það hefur ekki skilað sér. Kv affí
Kominn laugardagur, grátt og á að fara að rigna í dag eftir bjartan og vindasaman dag í gær. Fór út að hjóla, vita hvort mjöðmin þyldi það og hún gerði það í sjálfu sér. Heimsótti líka Sigga og Mörtu frá Heiði og þar var margt gamalt og skemmtilegt rifjað upp. Enduðum svo í fjölskyldugrilli með gömlum samnemendum úr jarð- og landafræði í Hafnarfirði, mjög gaman. Svo þetta var fínn dagur. Nú styttist í að liðið komi, að friðurinn sé úti í Meinersen. Ekki slæmt það fyrir ykkur. Verðum í sambandi og kannski kemur Margrét inn á skypið.
Kveðjur í bili. Diddi
Hæ hæ, gott að þú ert að hressast. Ég er komin heim eftir velheppnaða ferð til Ak. 60 manna skírnarveisla afstaðin og mikið gekk allt vel ;) Mamma bakaði helling, Gígja líka og mamma þín gerði pönnsur. Ég gerði svo HELLING af bollum sem Þorgerður mótaði og ég bakaði svo + pastasalat sem slóg í gegn. Nú erum við ÁE + KÖ hér "ein" um helgina þar sem Össi og EÖ fóru í gærmorgun á fótboltamót á Akranesi og koma á sunndag ;) KV. Malla
Post a Comment