Monday, June 15, 2009

Til Arnhildar, pabba og Þórdísar.

Veit ekki hvað var að e-mailinu. En skrifa bara hér um farangur og fleira.

Það, sem mig langar i að heiman er :
Vínarbrauð, Elitess handa Klaus, hunangsserios handa M., --vantar vanilludropa, og lyftiduft, og sætt danskt sinnep.
Spariskórnir, sem gleymdust, þurfa að komast með, og svo sokkarnir til M., og legghlífarnar.
Brún sósa væri æði, en bara ef hún er ekki lengur með nsg. Svo er alltaf jafn æðislegt að fá skyr, rúgbrauð, flatbrauð, mysing, -- kleinur og þannig. En þið ath. bara hvað er mikið pláss. Ekki hefði ég neitt á móti nokkrum Hjemmet, en sem sagt--fer eftir plássi. Svo er draumurinn svona "horn" á útidyrnar til að setja blóm í, og sama með það--fer eftir plássi.

Alveg óþarfi að taka með er eitthvað eins og sturtusápa, sjampó, ilmvatn og þannig dót. Nóg til hér.

Muna að taka með :
Passa, farseðla, tryggingarskírteini ? -, ökuskírteini, -- meðöl, handavinnu, ----
góða skó til að ganga á, sandala, flíspeysur, regnstakka eða vindstakka, stuttbuxur, kvartbuxur og gallabuxur fyrir köldu dagana, skyggnishúfur ef til eru, sumarkjóla og pils til að vera sætar :) , náttföt, bolir, nærföt, sundföt, --dettur ekki meira í hug.

Svo er það netföng fyrir pabba------

ritter_b @t-online.de (það á ekki að vera bil á milli b og @ )

heim-pullach@web.de

Rak mig í einhvenr takka og gluggginn er pínulítill--vona að þetta birtist á venjulegan hátt.

1 comment:

Thordisa said...

ok við förum í að versla inn. Það ætti að vera nóg pláss þar sem ég sendi Guðnýju ekki út með mikið en læt hana frekar kaupa sér úti