Nokkrar línur svona þegar maður má ekki gera mikið annað en sitja :) Hér er sól og nokkur vindur. Hugsum heim til Norðurlandsins, og vonum að Álfhildur litla sé vær og góð að vanda. Og að Kristján Örn hafi nú fengið pönnukökur svo þetta sé nú almennileg veisla!
Margrét er vinnukona í dag. Búin að setja í 3 vélar, taka til í eldhúsinu og uppþvottavélin malar. Þurka af í sínu herbergi og þrífa klósettið! Klaus sló grasið, og vann við reikninga í tölvufærslunni sinni. Ég skoða uppskriftir og les blöð síðustu daga, og slappa af í sólinni.
Sonja var ekki lengi að koma þegar hún heyrði í okkur áðan. Af hverju ég héldu undir magann vildi hún vita. Henni þótti þetta eitthvað undarlegt. Og af hverju ég gat svo gengið nokkur skref án þess að halda undir hann. Já, við sjáum nágrönnunum vanalega fyrir umræðuefni, híhí.
Margrét sauð pasta og bjó til pakkasósu með. Í kvöld á að gera kartöflu-blómkálsrétt í ofni, og á morgun er meiningin að elda canneloni með laxfyllingu. Hún lærir verulega mikið þessa dagana.
Það verður auðvitað gerð áætlun fyrir hverja viku þegar Arnhildur kokkur mætir, og svo er líkamsræktin á dagskrá. Allir læra grindarholsæfingar-þó svo ég megi ekki gera neitt næstu 6 vikurnar. Já, við tökum þetta með stæl, þó að Margrét sé eitthvað efins um að okkur takist að standa við fast prógramm :):):)
Notalegt að sjá kommentin frá ykkur Kristín mín og Svanhildur. Bestu þakkir. Við Margrét kíktum á myndirnar frá London í gær og vorum að deyja úr Englands-þrá!
Kveðjur úr sól og letilífi.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Jæja komin heim eftir törn í þýska heilbrigðiskerfinu - sem greinilega var full af óvæntum ánægjustundum. Já, svona er lífið. Ég var í skólanum að vinna fram að kaffi, síðan á fundi uppi á Kjalarnesi um umferðaröryggismál og kom í sæluna um miðnætti. Trjáfellingar í dag og moldarmokstur og alls konar frágangur. Þú ættir bara að vera hérna í sveitinni til að fá í þig heilbrigði aftur. Farðu vel með þig og njóttu þess að láta Margréti snúast við þig.
velkomin heim. Taktu lífinu með ró og láttu þér batna hratt og vel. Kveðja héðan úr sólarlausu sumarveðri, Affí
Post a Comment