Leggjum af stað á morgun klukkan 7. Vona að þeir segi ekkert við kvefinu mínu. Fari allt vel verð ég skorin upp á fimmtudagsmorguninn, og verð svo í eina viku. Hér er allt komið í besta stand. Allt pússað og þrifið, eða næstum því, híhí. Allur þvottur þveginn og straujaður, frystirinn fullur. Bakaði brauð í gær, og rabbarbaraköku líka. Búin að pakka niður í töskuna og mest pláss taka bækurnar, sem ég fékk lánaðar hjá Frau Kühle. Skrapp til hennar í morgun og við sleiktum sárin eftir þessa hræðilegu skóla-nánasa-skoðun. Með dótturina til tannlæknis og vonandi fer þessu að ljúka. Í danska rúmfatalagerinn og keyptum tvær þunnar sumarsængur áður en innrásin hefst. Og tvenn rúmföt á slikk, 7 evrur á settið. Heim að borða köku úr frysti, og horfa á sápuna. Drekka mikið te. Strauja og laga til.----Sit með rauðvínsglasið mitt og hugsa með söknuði til notalegra kvölda þegar ekkert skelfilegt var framundan!
Til hamingu með að vera með svona góðan smekk Malla mín! Mamma er í skýjunum , svo mikið er víst.
Ekkert að frétta af pakkanum frá mér? Fer að verða stressuð og óttast að hann hafi glatast. Sniff, sniff.
Doreen og Margrét voru saman á sunnudagskvöldið, og M. gisti þar. Kom ekki heim fyrr en undir kaffi. Þær fóru í gegn um kokkabækur og ætla að elda saman á fimmtudaginn. Margrét er svo í bólusetningu á morgun, alein, --stór stelpa! Og svo er frí eftir eitt á fimmtudaginn, og hún losnar við sund!!!!
Það voru tveir Barnaby þættir á laugardaginn og einn á sunnudaginn, æðislegt!!!!!!!!! Svo var sænsk/þýskur þáttur , Wolf, með Sólveigu Arnarsdóttur sem einni af genginu á löggustöðinni. Komin með stutt hár, vil nú frekar lokkana hennar.
Vona að þið hafið það sem allra best og njótið þess að vera saman og vera big big famely!!!!!!
Þið verðið vonandi dugleg að skrifa á netið svo Margrét geti sagt mér fréttir í síma.
Ástarkveðjur frá einni á leið í enn eina reynslu á lífsins leið.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Gangi þér vel frænka ;) Það kom bréf frá póstuhúsinu í gær, svo ég sæki pakkann í dag, spennandi!!!!
Þið sjálfsagt komin á leiðarenda þegar þetta er skrifað, gangi þér vel og vonandi verður þú fljót að ná þér...verður þá farin að njóta áhyggjulausra kvölda fljótt.
Bestu kveðjur og hlýjar hugsanir frá okkur, Svanhildur og co.
Rúllar þessari aðgerð upp og verður súper hress á eftir!!
Kv affí
Gangi þér glimrandi vel í aðgerðinni... ég hef allavegana engar áhyggjur af Margréti og Klaus á meðan og sendi þér fallegar hugsanir og góða strauma :o)
kv
Kristín að stelast í vinnunni :þ
Post a Comment