Friday, June 26, 2009

Klaus kominn í stutt frí.

Þá er kallinn kominn í frí í næstu viku. Ekki hefur tekist að fá upp úr honum hvort hann ætli sér að gera eitthvað. Svo það eru engin plön. Á morgun er svo dagur, sem "markar tímamót" í veðurfarinu. Veðrið verður eins næstu 6 vikurnar ef gamlar spár standast. Og spáin er hiti, þrumur og eldingar og rigningar til skiftis. En allavega ekki kuldi. Og næstu dagar eiga að einkennast af akkurat svona veðri. Bara mismunandi hvar eldingarnar koma niður og hvort sumir staðir sleppi við rigningu. Í dag rigndi í BS en hér kom ekki dropi.
Við erum búnar að þvo og þvo. Ekki síst nýju fötin, sem dömurnar keyptu í gær í BS. Þær fóru af stað um hálf 3, og komu heim undir 9. Skruppu á McDon, en voru mest í H&M og C&A. Þetta var víst æðislega gaman. Mátað og mátað, og mikil lukka. Það eru útsölur um allt. Fínt verð á flestu.
KD fékk bikiní, kjól með tilheyrandi stuttbuxum, sokka, bol--Guðný keypti sér voða mjúkan morgunslopp, sem hún er í jafnt að degi sem kvöldi :), bol, kjól, sokka, gjafir handa Ástu og Úlfi. Arnhildur fékk sér bol, pils og topp. Og Margrét keypti hettupeysu og stutt náttföt. Eitthvað fleira var það sennilega, og allavega voða gaman. Þær fóru þrátt fyrir rigningu, sem hætti fljótlega.
Ég fór í kaffið, og það var ágætt þó að Frau Kühle sé svo langt niðri út af þessari skólarannsókn og ýmsu í kjölfari hennar að það er ekki beint upplífgandi að vera nálægt henni. Sú, sem við heimsóttum á litla stelpu, 3 ára, og sú stutta var ekki ánægð að fá litla athygli og var með hávaða og vesen mest allan tímann. En samt gaman að fara út úr húsi og sjá alveg nýtt hverfi og nýjan garð. Allt mjög sætt og snyrtilegt.
Bjó til ávaxtasalat er heim kom og það var kvöldmaturinn á línuna.
Í morgun vakti ég liðið um hálf ellefu, og það var ryksugað og tekið til. Rosalega rakt loft úti og við áttum von á þrumum þegar við heyrðum í þeim í fjarska, en sluppum sem sagt.
Svo renndu þær systur eftir kaffi til BS í listaháskólann þar, sem er með opið hús, síðasti dagurinn í dag. Eru þar enn þegar þetta er pikkað. Ætlaði eiginlega með, en var ekki búin að koma mér í sturtu og svo vildu þær stuttu ekki með og ég var bara eftir og horfði á sápuna og fékk mér ís :)
Þær stuttu eru að horfa á DVD í herbergi Margrétar og eru hressar með það. Núðlubakstur í hádeginu og allir gátu borða það, en þær stuttu vildu ekki ostinn! Eitthvað dularfullar. Er nokkuð betra til en bakaður ostur, 45 % !!!!!
Í dag er svo veislan mikla í Oslo, hjá Hildi og Ásgeiri, sem ég kemst ekki í. Hefði örugglega ekki farið þó að ég væri frískari þar sem maður er ekki lengur fær í að taka þátt í veislustandi. Alveg búin að detta út úr gleðskap, og það þarf langan tíma í aðlögun --skyldi maður flytja heim. Svo þið fáið þá heldur betur verðugt verkefni að kenna mér að taka þátt í gleðskap. En ég treysti ykkur alveg fullkomlega til þess--ekki satt!!!!!!!

1 comment:

Anonymous said...

Er ekki nógu mikið partí í kringum þig núna systir? Veit ég vel að þú óttast skemmtanir og kannt ekki að njóta þeirra lengur - um það efast enginn sem þekkir þig - eða þannig. Veit fáa sem njóta sín betur í veislum en þig og það er ekki af vankunnáttu á því sviði sem þú ferð ekki í fjörið, miklu frekar af ótta við peningaleysi að hætti Arnar Friðrikssonar. En gott að heyra að allt er í fjöri og látum þarna hjá ykkur þessa dagana og þið skulið njóta þess. Skoðaðu svo feisbókina mína, myndirnar þar og segðu Margréti að fara á skype.
Diddi Gjástykkisfari