Klukkan er orðin meira en hálf eitt að nóttu. Sit ein heima og bíð eftir liðinu frá Frankfurt. Margrét fór með pabba sínum þó að hún ætli sér í skólann klukkan 8 á morgun. Það er nefnilega bekkjarhóf við vatn hér í nágrenninu og hún vill ekki missa af því. Svo það er eins gott að vera ekki "lasin" í skólanum.
Var að horfa á krimmana mina. Fyrst hinn hefðbundna þýska. Barnaby því miður hættur, en George Gently tekinn við. það eru ágætis þættir og þeir gerast á sjötta áratugnum og gaman að sjá fatnaðinn og bílana og tískuna almennt.
Við vorum að laga til í gær og dag áður en innrásin skylli á. Klaus dróg skrifborðið inn í svefnherbergið og tölvuborðið á eftir því. Sit núna við rúmmið mitt og það fer alveg ágætlega um mig þar við tölvuborðið.
Margrét ýtti svo rúminu í vinnuherberginu fram og til baka, og kommóðunni og hillunni, og við erum frekar hressar með árangurinn af flutningunum á húsgögnunum. þær þrjár ættu að geta látið fara vel um sig í sumar.
Svo var ryksugað og þvegið, og sett hreint á rúmin, og þrifið og þrifið. En ekki aldeilis allt orðið fínt og nóg eftir fyrir liðið að gera. Ég er nú mest í því að horfa og skipa og gera eitthvað, sem hentar svona vesalingum :) Strauja og elda og dúlla smá.
Við mæðgur elduðum lax í gær í rjómasósu, og Tagliatella-pasta með (langt og breitt ) Það var bara alveg æðislegt og ég skal setja uppskriftina á bloggið. Afar auðvelt.
Veðrið er ekkert spes, en besta veður fyrir því. Rignir af og til, og erfitt að fá þurran þvottinn. Spáin er hins vegar góð og eiga að vera ein 25 stig á miðvikudaginn. Þá held ég að liðið vilji fara í strandarferð að Tankumsee, -hjá Hannelore og Hildagard.
Ég er alltaf að verða hressari. Samt er ég með verki í þessu ef ég hreyfi mig snöggega og það er eins og drumbur inní í mér, sem er sjálfsagt þetta saumaða drasl. Skilst að það taki sinn tíma að verða alveg laus við verki. Maginn er enn aumur og má ekki við hann koma. En þetta lagast.
Á fö. skrapp ég í gamla skólann á kveðjumót, sem haldið var í tilefni af því að loka á skólanum alveg. Sennilega verður honum öllum breytt í leikskóla. Nú þegar er kominn einn hópur þarna inn. Frau Kühle var miður sín út af þessu og lá við gráti, og hún kom með mér heim og við fengum okkur glas af rauðvíni og bölvuðum stjórnmálmönnum og öðrum þýskum hálfvitum :) Ekki bætti úr skák að Margrét var nýkomin úr skólanum þar sem hún hitti fyrrverandi bekkjarkennara sinn, leikfimikennara, sem sagði henni að hún fengi ekki að fara í bekkjarferðir af því að hún er ekki komin með þetta vissa stig í sundi. Það á t.d. að fara til Ítalíu næsta vor, og hún á ekki að fá að fara út af því að hana vanti þetta stig. Eru þjóðverjar hálfvitar eða bara í því að leggja steina í götu annarra? Hverju skiftir sundkunnátta ef farið er í ferð til Rómar? Það er þá líklega klárt að ekki geti líkamlega fötluð börn farið i svona ferðir, - en kannski er þetta spurning um hvernig lagt sé út eitthvað, sem er í reglunum. Allavega ætlum við að kanna þetta betur.
Ef hún kynni alls ekki að synda gæti ég kannski skilið þetta, en það er ekki málið. Hún getur ekki stungið sér og ekki kafað.---
Takk fyrir kveðjurnar. Maddý líklega ánægð með að hafa nöfnu sina í sveitinni. Pabbi og mamma eiga von á Birnu og Sólveigu, líklega Veigari lika- í gistingu í kvöld. það er nú fínt. Þar voru Affí og Elli og krakkarnir í mat. Flott það. Heyrðum í Didda á netinu, og gott að hann sé að hressast.
Vona að Lilla fari nú að losna af Kristnesi og geti komið hnénu í lag. Já, Dagur líklega ánægður að hafa foreldrana út af fyrir sig, og Malla er örugglega eftirsótt í heimsóknir með litlu dúlluna.
Ástþór á sundnámskeiði, og orðinn fær í hestamennskunni. Það er bara nóg að gera hjá öllum.
Jæja. hallar i hálf tvö, og vonandi koma þau eftir einn tíma eða svo.
Affí - ástarþakkir fyrir langt og gott bréf. Það var æðislegt að fá alvöru e-mail aftur. :) Takk.
Bestu kveðjur ykkar Áslaug.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Þá er liðið komið til þín og sennilega nóg um að vera. Gott mál. Þetta með skólaferðina er með ólíkindum og þið skulið vera hörð á þessu. Þetta er mismunun. En Margrét verður líka að snúa á þessa skratta sjálf og sýna þeim að hún getur þetta alveg eins og aðrir, þó hún þurfi kannski að hafa meira fyrir því. Þú þarft að brýna hana, systir góð því það er mikilvægt vegarnesti að taka í hornin á nautinu og snúa það niður.
Skemmtið ykkur og verður á skypinu.+
Diddi
setja svo inn myndir :-). Ég er að byrja í skólanum í dag og ég held það verði bara allt í lagi allavega ætla ég að vera mjög jákvæö og hress gagnvart þessu!
Post a Comment