Þá erum við komnar í páskafrí við Margrét báðar. Klaus tekur frí eftir viku. Það var sprettur að klára föndur og ég sat við að klippa út bylgjupappír og líma á dósir með límbyssu í lengri tíma. Svo var límdur héri framan á og þetta var voða fint. Krakkarnir fengu svo smá nammi í dósirnar og allir voru ánægðir.
Margrét fékk frí síðasta tímann, og við fengum okkur pizzu í hádeginu. Horfðum á gömlu góðu Mash, og skemmtum okkur vel. Fór svo að ná í nótur fyrir Margréti. Hún er að spila æðislegt lag úr vampírumyndinni. Kom við í bakaríi og við fengum okkur svo te þegar Klaus kom heim. Notaleg byrjun á fríi.
Í morgun hringdi Maria Heim í mig. Hún var búin að reyna oft að ná í mig, og var viss um að eitthvað væri ekki í lagi. Ég sagði henni að ég hefði ekki verið verulega hress undanfarið. Kvef, tannvesen og svo áhyggjur af fólkinu mínu. Hún bað voða vel að heilsa mömmu og pabba og ætlar að biðja fyrir þeim. Ekki verra að fá fólk til slíkra verka.
Fór í gær til Gifhorn að ná í tilvísun á sjúkrahús, sem ég þarf með á mánudaginn þegar ég fer að hitta þessa lækna. Svo er að sjá hvað kemur út úr því. Einhvern veginn ekki alvöru frí með þetta hangandi yfir sér, en það verður víst að gera eitthvað í þessu. Skrapp smá í bæinn, og færði Margréti "bát" frá Subway. Hef ekki komið inn fyrir dyr hjá þeim í marga mánuði. Margrét auðvitað ánægð með hádegismatinn, híhí.
Það var fundur á miðvikudaginn hjá stjórninni í foreldrafélaginu. Enn eitt æðislega húsið. Maður með smá minnimáttarkennd út af kotinu hérna, en það er víst fleira en útlit sem skiftir máli. Hress fundur og alltaf gaman að hitta fólk. Það voru teknar myndir af okkur til að setja á heimasíðuna, og ég skal segja ykkur þegar þær verða komnar. Þá farið þið bara inn á menntaskólasíðuna. Slóð seinna.
Frábært að mamma fari til Lillu, en vonandi er það samt ekki of mikið fyrir Lillu. Skilst að sú gamla sé frekar pirruð á tólunum og hversu mikið það taki í sárið. Þetta er sjálfsagt ekki sérlega spennandi, en gengur yfir.
Svo var ég að skoða fínu myndirnar af sýningu Gumma. Voða fínt og æðislegar myndir af honum og Sigyn. Vonandi að þetta gangi nú vel með fyrirtækið. Við óskum þeim alls hins besta.
Ekki alveg eins ásátt með útlitið á Aldísi Dagmar með skallann. Hún, sem er reglulega hugguleg að gera sig svona ljóta. Hár er svo mikil prýði, en það finnst víst sumum ekki. En unga fólkið verður víst að fá að reka sig á og gera það, sem það vill. Og einhvern tímann vex þetta aftur :)
Góða helgi og hafið það gott.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Ég segi nú bara iss piss, ef hárið væri nú mesta málið !! Það kemur nánast alltaf aftur ;)
Annars kalt hér á fróni, en fallegt gluggaveður, ég les og les og sauma út, væri samt til í að mega gera eitthvað meira, eins og ráðast á skápa og geymsluna uppi, en ég reyni að vera góð og gera nánast ekkert!!! Á ekki alveg við mig samt.....
Góða helgi og njótið þið frísins saman.
Mig hefur alltaf langað til að raka á mér hausinn en hef aldrei þorað :S Finnst Aldís svo huguð að drífa sig í þetta... hárið kemur svo bara aftur :þ
Vona að Hilla hressist sem fyrst, hugsa mikið til þeirra hjónanna þessa dagana.
kv
Kristín E.
Já það er þetta með hárið. Ekki finnst mér það merkilegt umræðuefni og spurning um hvort einhver er ljótur eða fallegur er svo afstæð, að oft er gott að spá í eigið fegurðarmat þegar maður veltir fyrir sér hugmyndum annarra. Ég hefði svo sem ekki gert þetta sjálfur en það breytir svo sem engu, ég geri þá bara eitthvað annað sem fólk getur talað um. En Sigyn er búin að vera á fatamarkaði í Norræna húsinu í dag en við strákarnir vorum aðeins í kökunum á meðan. Gott að frétta að norðan. Annars lítið fréttnæmt í bili - nema fertugsveisla á eftir, eins og í gær. BK. Diddi
Vonandi gengur betur hjá mömmu þinni, gangráðurinn lagar svosem ekkert hjartsláttaróregluna, en gerir það að verkum að hægt er að stilla hana almennilega inn á lyf sem henta. Vonandi verður hún ekki send of snemma heim og svo þarf að undirbúa heimkomuna vel, Þórdís rýkur í það mál!
Aldís er nú alltaf sæt sama hvernig hárið er, það vex aftur...
Enn óviss hvenær ég fer norður yfir páskana, og hvort ég missi af fermingu Eiríks skemmtilega frænda, ætla að láta veðurspánna ráða ferðinni!!
Verð víst að viðurkenna að það er mér að ,,kenna" að Aldís rakaði af sér hárið, hún var að hugsa um að setja permanett í það til að reyna að fá einhverja fyllingu en ég hvatti hana til að raka það af og safna nýju, góðu hári. Þetta tekur ekki langan tíma að vaxa og hun verður miklu ánægðari á eftir. Mamma á heimleið í dag, veit ekki hvort þórdís og pabbi keira þar sem mikill snjór er úti, alger jólahríð núna, sér varla milli húsa. Ég verð heima með mömmu og fer ekki suður. Annars allt under control hér. Kv affí
Post a Comment