Það er víst kominn 2.4. Mikið er tíminn fljótur að líða. Og í dag er hugurinn heima eins og einatt á þessum degi. Það verða 25 ára í í haust frá því ég flutti út, og jafn langur tími frá því Dudí kvaddi þennan heim. Hún lifir alltaf í huga okkar, og við hugsum örugglega öll til Lillu og Jonna og vildum vera með þeim í dag.
Það hefur verið gott að geta treyst því að við eigum fjölskyldu, sem stendur saman í erfiðleikum. Það er aldeilis búið að vera mikið um að vera út af veikindum pabba og mömmu. Allir hafa lagt fram sinn skerf til að hlutirnir gangi sem best. Nú er Þórdís komin norður, og hefur lagt sitt af mörkum til að hugsa um þau. Og eftir að fermingin er búin kemur Diddi sjálfsagt norður og gerir sitt besta.
Það er ekki alveg hlaupið að því fyrir mig að komast í hvelli heim. Og svo er það ekki skynsamlegt að fara nema ef veruleg ástæða sé fyrir ferðinni. Því það gæti sannarlega skeð að ég yrði að fara allt í einu einhvern tímann og það fyrr en ég vil og mig grunar. Þar fyrir utan er það heilsan hjá mér, sem letur mig til ferða.
Fór í skoðun til læknanna í sjúkrahúsinu í Salzgitter. Læknirinn minn ráðlagði mér að fara þangað. Afskaplega elskulegt fólk. Lítið sjúkrahús. Ferðin heil heimsreisa, híhí. Því ég þorði ekki á bílnum alveg að lestarstöðinni í BS., -bæði erfitt að aka í gegn um bæinn og mjög vont að fá stæði. Svo ég lagði í Watenbüttel og tók gamla góða strætó. Voða gaman að fara aftur með honum. Svo fór ég með lest, 22 mín. Og labbaði loks síðasta spölinn. Þurfti að bíða í meira en tvo tíma þar sem töf var vegna uppskurða. En kaffivél á staðnum og þetta gekk allt.
Eftir því sem ég finn í orðabók er ég með---- Scheiden-wand-senkung = leggöng-veggur-sig.
Ég hélt að það yrði skorið í burtu eitthvað drasl, en það verður saumað upp. Þetta sé eins og "hengimotta", og spottarnir, sem halda þessu uppi, séu slitnir og verði að sauma fast.
Þetta er sem sé önnur aðgerð vegna sigs, og nú var mér tilkynnt að ég mætti ALDREI framar á ævinni taka upp hluti þyngri en 2-3 kíló. Það sé ekki hægt að gera andalaust við sig, og ég verði bara að breyta mínum lífsstíl!!! Svo mörg voru þau orð. Mér var nú lítið skemmt yfir þessum orðum, og taldi að ég væri þar með nokkurn veginn líkamlega fötluð. En fékk það svar að ég yrði líka líkamlega fötluð ef ég gæti ekki haldið þvagi framar. -En er ekki alltaf hægt að setja þennan hring í mann__??? Svona sem síðasta sjens.
Tja, ekki beint spennandi að mega aldrei lyfta tösku af færibandi, bera innkaupapoka, hlaða steinum í beð, dröslast með barn á armi og svona væri lengi hægt að telja upp. Meira að segja það að setja lak utan um þungu dýnurnar mínar er meira en að lyfta 3 kílóum. Væri ég komin yfir sjötugt væri þetta kannski ekki svo slæmt, en ég er nú ekki nema 53 ára. Sniff, sniff.
Aðgerðin getur beðið eitthvað, en þetta verður jú ekki betra með bið. Sjúkrahúslega í 6-7 daga. Veikindafrí í 2-3 vikur, og ekki gera neitt í 6 vikur, eða 6 mánuði eins og kvennlæknirinn sagði svo. Hún var verulega hörð á því. Glæsilegt útlit. Verst að þurfa að druslast með "handtösku" með þvagi með sér í 5 daga. Það finnst mér óþolandi. Sá það í Celle hjá konunni, sem lá við hliðina á mér. Hún var frekar pirruð á þessu.
Já, svona er það. Maður er bara lélegt eintak og best að fara á haugana. Híhíhí. Nei, ---ég held nú ekki. Þetta gæti víst verið verra. Við erum að spá í að ég fari í byrjun júní. Færi þá ekki aftur í vinnuna fyrr en í ágúst.
Margrét fékk tvær vinkonur til að gista á sunnudaginn og vera hér á mánudaginn meðan ég var í burtu. Þær fengu að sofa í stofunni, og horfðu á sjónvarpið fram til klukkan 5! Þá datt Lena út af en Margrét og Erika spjölluðu til 6, -heyrðu í vekjaraklukkunni hjá mér áður en þær duttu út af. Þær voru svo nýlega farnar þegar ég kom heim undir kvöldmat. Stansaði í BS og kíkti í búðir.
Í dag kom svo Maria og gistir í nótt. Þær eru búnar að panta pizzu og sitja yfir sjónvarpinu og láta fara vel um sig. Klaus fór til Fulda í morgun og kemur um klukkan 9 í kvöld. Þær fengu því stofuna aftur út af fyrir sig, og við gömlu horfum bara á sjónvarpið uppi.
Það er komið VOR. Loksins kom sólin. Það var æðislegt á mánudaginn að fá sól eftir næturfrost og dimmu. Það var ekki sérlega hlýtt til að byrja með, en í dag voru ein 12-14 stig. Auðvitað hressilegur vindur hér á Vindheimum. Og ég þvoði og þvoði þvott. T.d. dúnstakkinn minn og vetrarkápuna og úlpu af M. Teppin úr stofunni og sitt af hverju. Svo var neðri hæðin tekin í gegn og endað á að þrífa ísskápinn og skápinn undir vaskinum.
Við Margrét fórum til Gifhorn á þriðjudaginn. Hún fór til tannréttingarkallsins. Svo kíktum við í búðir og keyptum bol handa Alex í afmælisgjöf hjá H&M. Verslað í Real, og erum vel birgð af pakkamat og dósum :) Í gær var meiningin að skreppa í bíó í BS. En myndin var ekki sýnd í gær. Við fórum samt og hringdum í Danielu, sem kom í City Point og ég splæsti ís á dömurnar.
Við skildum svo við hana og röltum um í bænum. Gaf Margréti sumarkjól frá Zöru. Hún elskar sumarkjóla og toppa. Vonandi verður sumarið það gott að hægt verði að nota þannig föt. Við komum við í Ikea og keyptum efni til að setja á gamla stóla, sem eru uppi í vinnuherbergi. Og slatta af laxi, rækjum, snúðum og graflaxsósu.
Við fengum þennan blessaðan sumartíma á sunnudaginn. Svo það eru tveir tímar á milli okkar. Alltaf ergilegt. Það merkir að þið getið ekki hringt eftir hálf níu því ég er komin í rúmið hálf ellefu, og stundum fyrr. Og svo get ég ekki hringt fyrr en undir hádegið hérna þar sem fólk heima fer seint á fætur. En svona er þetta og til lítils að kvarta.
Það er ótrúlegt að hér sé komið vor og heima snjói hann. Mér skilst að veðrið haldi sér við það að vera aldrei eins nokkurn dag. En þið fáið líka sumar, -það kemur að því.
Skil Möllu vel að finnast lítið spennandi að mega ekki taka til hendinni eins og hún vill. En það er þó bara um stuttan tíma að ræða. Gaman að Ingigerður skyldi eignast stelpu á 105 ára afmæli Estrid. Skyldi Malla koma með þriðju stelpuna í þessari törn :):):)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Hæ, hæ. Ég var í skoðun í gær, allt kom vel út, engin bjúgur og allt eins og það á að vera. Ég spurði hvort ég mætti keyra norður, með strákana og einn annan fullorðin í bílnum (mömmu), þær sögðu að ég væri köld að keyra norður en ef ég treysti mér til þá mætti ég þetta. Svo ég er að fara á mánudag ef veðrið verður þolanlegt og Össi kemur svo eftir vinnu á miðvikudag. Fín tilbreyting fyrir mig, líka að þurfa ekkert að elda og stússa yfir páskana :) Góða helgi frænka
Post a Comment