Sunday, April 5, 2009

Er svoooo langt í burtu frá ykkur.

Í dag er afmæli Arnar yngra, og í gær var ferming hjá Eiríki. Við Margrét vorum að skoða myndirnar á Facebook, og vildum helst skella okkur í næstu flugvél og komast í afganga. Voða gaman að sjá myndirnar. Birthe nattúrlega flottust. Það sem hún er myndarleg og góðleg að sjá. En auðvitað er hún mágkona mín algjört bjútí, og ég er svo stolt að eiga svona flotta mágkonu /gildir líka fyrir hina! Við erum ekki enn búin að hringja i liðið, enda hafið þið örugglega ekki tíma til að tala í síma. Allt í fjörinu og gleðskapur örugglega langt fram á nótt.

Hér eru sömu rólegheitin og endranær. Margrét heldur betur fegin að Doreen er komin úr skíðaferðinni. Skrapp til hennar áðan. Svo fer hún til Póllands að kaupa sér kjól fyrir útskriftina í júní. En þau koma aftur annað kvöld. Við stefnum á ferð til Hamborgar á þriðjudaginn. Margréti langar i stórborgarloft.

Við höfum verið að vinna í garðinum. Það var algjörlega geðveikt veður á fö. Minni sól í gær, og í dag er skýjað, en hlýtt. Klaus sá aumur á konunni sinni og sagaði niður tré, sem fór í taugarnar á henni :) Var svo verið að saga það í búta og klippa niður. Enno mætti til að klippa með okkur. Vinir hans í ferðalögum. Bærinn er eins og svefnbær. Eldaði Ikealax í gærkvöldi. Hann var aldrei þessu vant frekar feitur. Svo var verið að setja utan um rúmfötin, ryksuga og hitt og þetta gaman:) Er búin að hringja oft í þau gömlu. Munur að heyra í mömmu í dag og gær. Vonandi fer þetta nú að lagast.
Sólin kíkir af og til i gegn um skýin. Þið vilduð líklega gjarnan fá smá part af henni ,ekki satt!
Vona að öllum gangi vel á ferðalögum sínum, sem hefjast í dag og morgun! Malla kallar ekki allt ömmu sína að ætla kasólétt á bíl um hávetur!!!! En hún er líka kvennskörungur.

4 comments:

Anonymous said...

kvitti kvitt... frá þreyttu konunni í Kópavogi
Kristín E.

Malla said...

Kvennskörungurinn (tihi) er að reyna að vera dugleg og pakka niður, en tölvan freistar meira ;) Held það verði ekkert mál að bruna norður á morgun, bara spurning hvernig ég verð til gangs á eftir :S En norður ætla ég !!

Anonymous said...

Búin hin besta helgi með dásamlegum drengjum sem ekki eru að heimta neitt en glaðir og ánægðir með allt sem fyrir þá er gert. Þvílíkt lán. Fór til Guðbjargar smástund í gær og hitti þar Dídí og Birthe, auk heimafólks og svo kom Geirþrúður með sitt lið. Mjög gaman. Svo þarf að skila dóti í Kvennó, bollum, stólum og borðum, plana norðurferð og eitthvað fleira. En sólin er björt og sinnið glatt, er hægt að biðja um meira?

Anonymous said...

Farið að snjóa hér, ekki gaman finnst mér sem er orðin hundleið á vetri og kulda. Vil fá sól og sumar og langar í garðinn til ykkar. VÖ og AD koma á þriðjud eða miðvikud, eftir því hvernig veður verður, er ekki spennt að vita af þeim á gömlum fíat á ferðinni, en það er hvergi pláss, allir með pakkaða bíla og þau með slatta af dóti sem þarf að komast norður. Já fegin verð ég þegar allir verða komnir.
Snjókveðjur héðan...KV affí