Sunday, April 12, 2009

Páskadagur.

Gleðilega páska ! Vonandi hafið þið það öll gott. Hér er þrusuveður og ég vildi að þið gætuð fengið eitthvað af sólinni. Heima er víst snjókoma af og til, eða hefur verið það undanfarið. Reiknað með einum 23 stigum hér í dag. Margrét komin með sólbruna á fæturna eftir að hafa setið í Strandkorb og lesið í lengri tíma í gær. Klaus orðinn brúnn í framan eins og hann verður straks þegar sólin skín. Hann sefur núna á sófanum svo ég kemst í tölvuna, híhí. Og Margrét er að horfa á mynd í sjónvarpinu. Ég búin að ganga frá í eldhúsinu, og sit með ískaffi við að skrifa þetta.

Við erum búin að hafa það gott í fríinu. Veðrið hefur leikið við okkur. Það er betra veður hér en á Spáni, og einna heitast hér í allri Evrópu. Við fórum í dagsferð til Hamborgar á þr., og vorum rosa ánægð með ferðina. Ókum til Hamborg Harburg, og settum bílinn í bílahús. Fengum okkur svo fjölskyldu- dagskort (ekki nema tæpar 9 evrur, gefið) og rúntuðum um borgina með lestum. Fórum fyrst niður að höfninnni, og horfðum á hafið og skipin. Svo til Blankenese, sem er æðislegt hverfi byggt ofan við ána Elbe. Húsin standa á hæðum, og er verulega bratt að ganga tröppurnar upp og niður að ströndinni. Þarna búa ríku og fínu íbúarnir, en líka aðrir, sem hafa átt þessi hús í gegn um árin. Fengið þau í arf frá sjómannafjölskyldunum, sem bjuggu áður fyrr á þessu svæði.
Svo lá leiðin til Alster, sem er töluvert stöðuvatn, við aðalverslunargötur Hamborgar. Þarna er ráðhúsið, og frægustu verslanir bæjarins. Jungfernstieg og Gänsemarkt, og flottustu hótelin. M.a. eitt, sem er með 4 eða 5 stjörnur, það flottasta af öllu flottu. Við fórum í 45 mín siglingu á Alster, og það var mjög gaman. Svo var labbað fram hjá frægu búðunum, og við reyndar kíktum inn í eina af uppáhaldsbúðum Margrétar, Urban, sem við fundum í Köben. En 38 evrur fyrir einn bol er einum of mikið!
Veðrið var akkurat passlegt. Ekki of heitt en nógu hlýtt til að vera léttklæddur. Sem sat perfekt.

Á miðvikudaginn skruppum við Margrét til BS í bíó. Sáum Shopaholic, sem er fyndin og létt saga af vandamálum nútíma kvenna :) :) :) Skemmtum okkur vel, og ég kláraði einn stóran skammt af sykruðu poppi, næst stærsta skammtinn :)
Á meðan var Klaus að kanna tilboð Telekom. Við getum nú loks fengið hraðtengingu!!! Það er reyndar enn eitthvað bilað í þessari nýju tengingu, en er allt að koma. Það verður ekki smá munur. Þá getum við talað við ykkur á netinu og notað kameruna og bara verið í miklu betra sambandi.

Margrét er búin að setja helling af myndum inn á facebook síðuna sína. En hvernig er það--geta Sigurður og Svanhildur nokkuð séð það??? Eða aðrir, sem eru ekki með síðu hjá facebook?????
Þessar myndasíður eru miklu betri en bloggmyndirnar því það er hægt að stækka þær.

Á skírdag ókum við til Tangermünde. Það er í norðaustur frá okkur, liggur við Elbe. Þetta er eldgömul borg, með virkisborgarveggjum niður við höfnina, sem eru mjög skemmtilegir. Hildegard er frá þessari borg. Ég hringdi í hana um kvöldið og sagði henni að við hefðum verið á heimaslóðum hennar. Það þótti henni gaman. Innbærinn er ekki sérlega skemmtilegur. Þessi borg var í DDR og fór illa eins og margar borgir í fátækt kommúnismans. Mikið af húsunum verulega illa farið. En perlur inn á milli. Við ókum svo um Stendal, sem er nokkuð stór bog rétt hjá. Og fórum aðra leið heim og sáum verulega mikið af bæjum og ökrum.

Svo höfum við verið að vinna í garðinum. Við Margrét keyptum okkur runna, sem heitir Sternmagnolie. Ætluðum að fá okkur tré, með krónu efst, en það kostaði 130 evrur, og við létum okkur þá nægja að kaupa runna á 25 :) Svo var þessu plantað, og gleður núna augað.

Susanne, Gregor og báðar dæturnar eru við austursjóinn svokallaða. Daniela var að fá nýja vinnu. Hún er fyrst í 3 mánuði að læra á ný verkefni, og er bara ánægð.

Við grilluðum í gær í fyrsta skifti í ár. Það var allt uppselt af öðru kjöti, og við ætlum bara að grilla aftur í dag. Það er ekki nein páskastemming hér, enda engin páskaegg, eða eitthvað, sem minnir á páska. Nema skrautið. Það er bara vorstemming.
Við Margrét skruppum út í morgun. Hún skokkaði og ég notaði göngustafina, og við vorum voða ánægðar með okkur að vera komnar í gang með hollustuna!

Mér heyrist vera fjör heima og ég vona bara að það sé ekki of mikið fyrir mömmu. En börnin hennar eru fullorðin og hugsa örugglega vel um hana. Veit að ég get treyst því.
Við sendum okkar bestu kveðjur til allra nær og fjær. Hafið það gott.
GLEÐILEGA PÁSKA.

No comments: