Tuesday, April 14, 2009

Litli brói á afmæli!

Ótrúlegt en satt. Hann litli bróðir minn hann Sigurður Ágúst er orðinn 35 ára ef ég kann að telja. Við hér á Vorfeldweg sendum honum okkar bestu afmæliskveðjur og meiningin er að reyna að ná honum í síma í dag eða morgun. Innilega til hamingju elsku Sigurður minn. Vonandi færðu gott veður og mörg bros. Það seinna er öruggt, en þetta með veðrið er víst óvisst :)

Við þurfum ekki að kvarta. Hér er enn þrusuveður. Man ekki eftir svona aprílveðri. Spáð aftur einum 23 stigum í dag. Svo "bara" 15 á fimmtudaginn, en fljótlega aftur heitara. Klaus sat í Strandkorb í gær og las, ég hreinsaði lauf og kongulóarvefi í ruslatunnuhorninu. Hugsaði til ykkar heima þegar ég reyndi að drepa risa kongulærnar!!! Allt út í vefum sama hvert litið er, og jafnt inni í húsum sem úti. Það er víst nokkuð, sem ég mun ekki sakna ef ég einhvern tíman flyt heim aftur. Svo dundar maður við að vökva. Loks að koma aftur gras eftir mosatætinguna. Það lá við að ekkert væri eftir nema mold :) Byrjaði að hreinsa mosa milli steinanna á veröndinni og tók eina törn í fíflauppstungum. Já, eitthvað önnur vinna en hjá ykkur heima í snjó og kuldanum.

Við grilluðum aftur á páskadaginn. Í gær fékk Klaus graflax í morgunmat. Annars var ekki gert mikið af því að elda eða baka. Bjó þó til pönnukökur í kaffinu á páskadag, og sykurbollur í leiðinni.
Doreen kom í gær, og færði okkur kökur frá mömmu sinni. Þær Margrét voru hressar og mikið hlegið. Klaus var settur í að bora fyrir snögum, sem Margrét keypti í Ikea. Vantaði snaga bak við hurðina. Svo setti hann sápuhaldara í sturtuklefann. Og festi grind fyrir sturtudrasl. Það er með þessu nýja kerfi-skrúfa án þess að bora. Æðislegt. Hann sótti líka sólhlífina og setti upp. Það var bara ágætt að sitja í smá skugga-ótrúlegt. Ég skrúbbaði svo hvítu steinana, sem voru orðnir grænir og ógeðslegir. Þeir eru settir í kring um "tjörnina" okkar. Þið hefðuð örugglega sagt að ég væri klikk :) :) :) Já, svona er nóg að gera og inni er allt í ryki og drasli.

Klaus fór í vinnuna á morgun. Ég dreif mig á fætur klukkan 8. Margrét komin fyrir 9, og er að horfa á Scrubs, -og svo er meiningin að nota næst síðasta daginn til að renna til BS í blíðunni og kíkja á kaffihús og rölta um bæinn.
Nágrannarnir komu frá Póllandi á sunnudaginn. Þau voru í burtu í viku og við vökvuðum blómin. Held að íbúðin sé sú tómasta, sem ég hef séð um dagana. Eins og klippt út úr Hús og hýbýli. Þau urðu voða glöð að frétta að þau eiga ein millivegginn á veröndinni. Maju líkar hann ekki-hún er svona perfektionisti. Nú er meiningin að taka hann í burtu, setja 3 einingar í staðinn og taka líka girðinguna í framhaldinu. (milli garðanna) Svo ég lofaði að vera til staðar fljótlega að klippa festingarnar af veggnum og losa um klifurblómin mín. Ekki nógu hentugur tími til að gera þetta, þar sem allt er að springa út, en ég bauðst til þess. Það er allavega gaman að sjá fólk, sem hefur áhuga á að gera eitthvað. Ha, nokkuð skot á Klaus, nei,nei :)
Þau færðu okkur Prince Polo og kryddjurt frá Póllandi. Alltaf voða indæl.

Það voru margar ágætar myndir um páskana í sjónvarpinu, aldrei þessu vant. Og eins og vanalega er þá allt sýnt í einni bunu. Það voru 4 krimmar kvöld eftir kvöld eftir Gunnar Staalsen með "úlfinum" , Varg Veum, sem er einkaspæjari. Rosa spennandi og svakalegar senur. Gerist i Bergen í Norge. Þekkið þið þessar myndir?????

Jæja. Margrét komin í sturtu og ég fer svo næst. Svo er bara að bruna til BS. Hafið það öll sem best. Vona að vorið fari nú að koma af krafti til ykkar.

4 comments:

Anonymous said...

Gaman að sjá að allt er á fullu hjá þér í góða veðrinu. Páskafríið var mjög ánægjulegt, bæði gert ýmislegt til skemmtunar og einnig var eitthvert gagn af manni. Ekki leiðinlegast að vera á 100 ára afmæli Jóns Sigurgeirssonar í gær. Þau gömlu bara hin hressustu þegar ég talaði við þau í morgun, endurnærð eftir frið og ró síðan kl. hálfsex í gær.
Bestu kveðjur
Diddi

Anonymous said...

Vildi vera í sólinni hjá ykkur. Hér er alltaf smá hríð og ekki orðið vorlegt. VÖ kominn suður, ferðin gekk vel, hann keyrði einn suður og vegurinn auður mest alla leið en smá hríð. Aldís var hjá m og p að laga til í dag, fer aftur á morgun að gera meira. 'Eg var í skólanum allan seinni partinn að taka til og undirbúa kennsluna sem byrjar á morgun aftur. Annars allt gott, gott að hafa Aldisi heima og söknum VÖ strax, en styttist í vorið. Kv til allra, affí

Þorgerður said...

Milt og 7°C hér í dag. Frábært páskafrí, Helga fór á skíði 7 daga af 9, færri heimsóknir í staðinn en mikið borðað. spilað og hlegið! Gaman að hafa Möllu út af fyrir okkur í Steinahlíðinni - hehe, fór meira að segja með okkur upp í fjall, sat í Fjarkanum og sólaði sig í Strýtunni!!
Í dag jarðarför, hans Sigga Rikka mannsins hennar Lóu systur pabba. Pabbi og mamma komu með okkur suður og mamma flýgur aftur til baka í dag en pabbi er að fara að spila hér um helgina.
Bestu kveðjur frá okkur í blíðunni í Kópavogi...

Anonymous said...

Vorið komið hér mjög skyndilega, vonandi endist það eitthvað. Núna er 13 stiga hiti, er búin að hreinsa mesta ruslið ofan af blómabeðum, Elli að saga greinar af einu tré, búin að fara þrjár ferðir með kerruna fulla af rusli eftir smiðavinnu vetrarins auk garðúrgangs og greina.Mamma og p komu í morgun, mamma hress en pabbi enn talsvert slappur enda enn á meðulum, settist þó út í garð. AD, AH og kristin löguðu heldur betur til hjá m og p, munaði um það. Styttist óðum í skólalok, er farin að telja niður... Kv affí