Wednesday, April 22, 2009

Hellidemba.

Loksins, loksins er komin rigning. Hér er allt að skrælna. Blómaryk á bílunum og um allt. En að sjálfsögðu fylgir þessari rigningu smá vindur, og hver veit nema þrumur og eldinagar fylgi í kjölfarið. Það var smá næturfrost í fyrrinótt. Svalur vindur í gær. En annars er veðrið alveg frábært, og sól dag eftir dag. Við Ines fórum með báða hópana okkar í gæslunni í góðan göngutúr í gær. Ekki slæmt.

Er að baka brauð. Hef ekki komið því í verk lengi, og allt tómt í frystinum. Margrét fer til Berlinar á fö. Með rútu--klikkaðir þjóðverjar þegar hægt er að fara með lest, og spara akkurat helminginn af tímanum. Og jafnvel meira ef þau lenda í teppu. En þá er líka gott að vera með heimabakað brauð frá mömmu :)

Hér er bara vinna og vinna. Var að strauja 15 skyrtur í morgun og 5 í gær. Tók íbúðina í gegn í gær og fyrradag. Alltaf nóg af ryki og drasli. Svo er það garðurinn enn og aftur.
Við Margrét máluðum nýja vegginn eins og sést á myndunum. Erum bara ánægð með árangurinn. Var svo að stinga kanta meðfram veröndinni og þvo fellihlerana og byrja að þrífa gluggana. Fjör!!!! Klaus fór með mér í byggingarvöruverslun um helgina. Blómamoldin bíður mín, og sílikon, sem fara á í gluggana, þar sem það er farið að verða svart. Óttast að það sé komin mygla í þetta. Hér er silikon um allt. Ekki gúmmí-listar á gólfunum heldur silikon. Og meðfram öllum gluggum. Völdum málninguna á milliveginn og straks er heim kom fórum við Margrét í þetta. Svo bar ég á síðasta garðstólinn, munurinn!

Fékk tíma í aðgerðinni þann 3. júní. Fer þá í skoðun og blóðtöku og allt það sem fylgir þessu. Svo er uppskurður morguninn eftir. Þið hugsið nú hlýlega til mín. Sniff, sniff.
Þetta er straks eftir Hvítasunnu , á að vera mætt klukkan 8 á miðvikudagsmorgni. Það er reiknað með vikudvöl. Ég kem svo ekkert aftur í vinnuna fyrir sumarfríið.

Það eru dásamlegir frídagar framundan. Fyrsti maí er löng helgi, svo eru 4 dagar í kring um Uppstigningardag og 4 dagar um Hvítasunnuna. Svo ég verð vonandi búin að gera allt húsið tipptopp áður en ég leggst í kör :) Mikið vildi ég að ég væri nærri ykkur. Við erum að vonast eftir að Fúsi og Arnhildur komi í sumar, en það fer aftir atvinnuleysisbótum, tíma og fleiru slíku. Það eru allir alltaf velkomnir og við getum vel fætt og hýst góða gesti þó þröngt sé. Ég má ekki fljúga einhverjar vikur eftir uppskurðinn. Það er eins og hér séu mun strangari reglur, en kannski hefur maður bara aldrei heyrt um það heima. Kannski hjúkkan leggi orð í belg!

Eru bara að koma kosningar? Ég er að fara að horfa á sjónvarpsþátt klukkan 18.00 um kreppuna heima. Það er víst spennandi efni , og ég þarf víst að snúa mér að brauðinu.

Við áttum að fá hraðtengingu í gær, en hún kom aldrei. Vonandi veður nú ekki eitthvað vesen með það. Þið megið leggjast á bæn að þetta takist. Sólin komin fram. Engar þrumur í þetta skiftið. En sjálfsagt ekki langt í slíkt veður.

3 comments:

Anonymous said...

Á bæn. Vonandi liggur þú líka á bæn og biður fyrir afhroði sjálfstæðisflokksins í kosningunum. Það er það eina sem hann á skilið, fyrir spillinguna, hræsnina og hrokann. Einnig fyrir ómerkilega kosningabaráttu á lágu plani, neikvæða og óheiðarlega þannig að slíkt höfum við ekki upplifað fyrr hér á landi. Þú ert heppinn að hafa ekki sjálfstæðisflokk í Þýskalandi.
kv. diddi

Anonymous said...

Hér væri líka gott að fá hellidembu eftir hitann sem búinn er að vera síðustu tvær vikur! Í gær var ég úti í garði og gerði tilraun til að búa til tvö ný beð en það var eins og ég væri að stinga upp gangstéttarhellur - allt grjóthart! Annars eru mamma og pabbi nýfarin frá okkur eftir tveggja vikna mjög ljúfa dvöl, hálf tómlegt þess vegna finnst manni. En við ætlum heim um hvítasunnuna í tvær vikur þannig að það er stutt í að maður sjái fólkið sitt aftur...
Bestu kveðjur kæra Áslaug og hafðu það sem best, Aldís

Kristín E. said...

HæHæ.... er að kíkja hér inn í fyrsta skiptið síðan fyrir páska, er bara frekar þreytt almennt á kvöldin... nenni ekki að kveikja á tölvunni en er búin að lesa 7 bækur, yfir páskana og eftir páskana... les frekar hratt hehehe og svo fór ég að leggja kapal aftur fyrir norðan eins og í sumarfríinu og hélt áfram eftir að heim kom... orðin gömul eða heheheh
Bið að heilsa Margréti og Klaus og óska ykkur öllum gleðilegs sumars (þó það hafi verið skýfall hér í allan dag!!! börnin skilja ekkert í að guð sé að pissa svona mikið hehehe)