Friday, April 24, 2009

Góða helgi.

Föstudagur, og ég var vöknuð klukkan 5 í morgun. Veit ekki hvað fj---vesen það er á mér að geta ekki sofið á morgnana. Líklega stress, eða? Margrét þurfti á fætur klukkan 6. Hún fór með árgangnum til Berlinar , á þremur rútum. (hún bara í einni!) Spennt að frétta af ferðinni, en engin hringing enn.
Margrét hlakkaði rosalega mikið til, og ég vona að þau verði ekki í marga tíma í teppu sem er nú oft á þessari leið. Sótti hana í gær í skólann. Hún var með svo mikla verki. Tók í morgun með verkjatöflu, vatn og glas---við erum sko góðar í skipulaginu :) Hún ætlaði að hressa sig við í gær með spjalli við Arnhildi, en þá var hún enn í bælinu, frekar slöpp og lasin. Ástand á þessu liði. En þau gömlu eru aldeilis hress finnst mér.
Hér er aftur sól og blíða. Spáð rosalega góðu veðri á sunnudaginn. Ég fór upp í skóla til að aðstoða Frau Kühle í kennslu, og búin að fara í sturtu og er orðin ný og betri manneskja.
Við Klaus skreppum á morgun í grill til Gregors, í hádeginu. Mágkonu minni þykir betra að borða heitan mat í hádeginu. Þessir þjóðverjar :) Margrét ætlar að sofa vel út og taka lífinu með ró.
Góða helgi og vonandi góða niðurstöðu úr kosningunum !!!!!!!

5 comments:

Malla said...

Mér finnst best að borða heitan mat í hádeginu OG á kvöldin, hehehe. Góða helgi ;)

Anonymous said...

Þú ert líka ekki komin út af brauðætunni honum séra Erni! En ég get svo sem borðað hvenær sem er og hvar sem er og hvað sem er.
bestu kveðjur Ádda.

Anonymous said...

ég er ekki með brauðætu genin en ég er með brötchen genin..hmmm hvernig sem nú stendur á því....

Anonymous said...

Elsku Áslaug.
Ég kíki stöku sinnum á síðuna þína, en ég er ekki komin með neina bloggsíðu eða face-book eða hvað þetta heitir allt, svo ekki get ég sent þér fréttir þá leiðina. Ef þú getur ennþá lesið tölvupóst, þá sendi ég þér fréttir þá leiðina.
Já, kosningar, ég vona svo sannarlega að við verðum bænheyrð og Íhaldsflokkurinn fái frí eftir að hafa komið okkur í þessar aðstæður sem við erum föst í núna.
Annars allt gott að frétta af mér og mínum, læt heyra frá mér.
Kv. Hildur.

Anonymous said...

Góða helgi til ykkar! Við sitjum hér spennt og fylgjumst með kosningum og sem betur fer virðist íhaldið koma jafn illa út og kannanir bentu til. Vonandi að fólk sé að láta af leiðinlegum vana að kjósa það. Svo er bara að sjá hvað gerist í nótt. Hafið það gott. Bestu kveðjur héðan...þið sendið okkur kannski nokkrar gráður hingað upp!!! Svanhildur