Gleymdi að ég lofaði mömmu að setja uppskrift Pettýar, ömmu Arnhildar, á bloggið. Hún kenndi mér að gera pottþéttar vatnsdeigsbollur. Lilla gerir einhver mistök, skilst mér :)
VATNSDEIGSBOLLUR PETTÝAR.
3 dl kalt vatn, 100 g smjörlíki, 125 g hveiti, 3 egg.
3 dl kalt vatn og 100 g smjörlíki hitað í potti. Hitað á hæsta straum þar til suðan er komin upp. Þá er potturinn settur á kalda plötu, hveiti sturtað úti, (125 g.)--- hrært smá, , lækka hitann á heitu plötunni og setja svo pottinn á heitu plötuna. Og nú skal hræra af lífsins og sálar kröftum þar til deigið er alveg laust frá börmunum. (með sleif) Þá er það þungt og glansandi. Kæla ALVEG niður.
Þeyta eggjunum saman við, (3 egg)---bara eitt sett útí í einu. Sem sagt þeytt með þeytara, ekki handpíski. Búa til bollur með skeið. Ég nota desertskeið, og hef þær ekki svo stórar. (vel kúfuð skeið)
Það tekur um 17-20 mín að baka þær. Hef 200 og blástur. (minn ofn er alltaf mjög heitur)
Pettý bakaði þær við 225° án blásturs, og var fyrst með hitann í 250°, og lækkaði svo í 225° þegar bollurnar fóru inní. Hún bakaði þær í 10-12 mín.
Það mikilvægasta er svo að taka ALDREI alla plötuna út í einu, heldur að ná varlega í eina bollu, setja hana á eldhúsbekkinn og sjá hvort hún fellur saman. Sé það svo þurfa bollurnar að vera lengur. En ef ekki, þá má taka plötuna út.
Úr því að ég get þetta hljóta allir að geta þetta :):):)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment