Monday, March 2, 2009

Kannski vorkoma.

Mánudagsmorgunn, og smá þoka. Hitinn um 7-8 stig. Túlipanar og snjóklukkur að gæjast upp úr moldinni, og krókussarnir alveg að springa út. Spáð samt kólnandi straks á miðvikudaginn. Veðrið á fö. var reglulega leiðinlegt og ekki betra á laugardaginn. Rigndi og rigndi. Við Margrét létum það ekki hafa áhrif á okkur. Renndum til BS að redda hinu og þessu. Keypti tvær bækur eftir íslenska höfunda til að gefa Ritter í afmælisgjöf. Hef aldrei heyrt um annan höfundinn, Jón Hall Stefánsson, "Vargurinn". Hitt var þriðja bók Yrsu. Fann buxur á mig í H&M, og Margrét fékk sér topp. Verslaði í Karstadt matvörudeildinni þar sem m.a. fæst BettY Crocker, súkkulaðisósan frá Hershey og góðar tegundir af kaffi og tei. Margrét sannaði svo að það er þjóðverji í henni, hehehe. Við gáfum henni tölvuleik í jólagjöf. Vissum ekki að líka þarf að kaupa mottu til að nota við dansinn. En hún bara fæst ekki. Þetta var keypt í lok nóv., og eiginlega ekki sjens að fá þessu býttað. En mín maldaði í móinn og sagði að til lítils væri að eiga leikinn og geta ekki farið í hann. Og verslunin getur ekki pantað þetta, --víst erfitt að fá vöruna. Svo blessaður maðurinn spurði yfirmanninn hvort hún væri til í að láta okkur fá innleggsnótu, og það gekk! Ég náttúrlega hefði aldrei reynt að fá þessu skift. Hún keypti svo diska með Pushing Daisies, og ætlar að kenna mömmu að læra að meta það. :):):)
Engin kaffihúsferð í þetta skiftið. Við voða sparsamar :) Fegin þegar heim kom. Táin ekki góð.

Um helgina var svo þvegið og eldað. Lært og lagað til. Sem sé allt hið vanalega. En sunnudagurinn var hinn besti! Það komu um tíu stig og fólk flykktist út úr húsunum. gangandi og á hjólum, börnin sóttu hlaupabretti og hlaupahjól, og hér var glatt á hjalla.
Ég fór út í garð og vann í tvo tíma. Með fingurna í moldinni og var alsæl. Hreinsaði lauf og klippti af visnuðum blómum, og fór með tvær fullar hjólbörur út á óbyggðu lóðina, sem er ruslahaugurinn okkar! Alls staðar eru túlípanarnir að koma upp og tími var til kominn að hreinsa laufið frá svo maður gæti notið þess að horfa á vel snyrtan garð og hlakkað til vorsins.

Við hringdum í þau gömlu og i Arnhildi. Fréttum af ferðum Affíar, -takk fyrir að vera svona dugleg að skrifa elsku frábæra systir !--og að Maddý væri fyrir sunnan og Lilla uppi í sveit. Arnhildur var að æfa sig að detta á skíðum :), og amma að verða búin með lopapeysu á Arnhildi. Dugnaðurinn í liðinu. Við gáfum Arnhildi pening fyrir námskeiði í glervinnslu, sem hún hlakkar mikið til að komast á. Hún veit náttúrlega ekki að hún verður þá að búa til jólagjafirnar í framtíðinni fyrir mig, híhíhí.
Kristin Dögg í sveitinni, sem mér finnst svo frábært. Einhvern veginn liggur leið okkar oft út í sveit. Það hljóta að vera einhver sveitagen í okkur öllum. Ekki bara í Einari Erni, Ástþóri og Didda, heldur mætti lengi telja. Gott að heyra frá Möllu, og góða skemmtun við bókina hennar Möggu Pálu. Pabbi er að lesa hana. Það er nú alveg met! Spennt að frétta hvað hann segir um svona "svæsna" bók :)
Fegin að Aldís ætlar ekki að taka íbúð á leygu.Það er nóg annað að borga. Verst að Affí hefur ekki gert neitt af viti í borginni, --ekki þrifið eða eldað, híhíhí :)

Ég er enn ekki nógu hress og er með verk í hálsinum, en það þýðir ekki að vera með neitt múður. Er að fara til tannlæknis á eftir að láta undirbúa þessa brú. Ekki get ég sagt að ég hlakki til.
Sat lengi með P.G.Wodehouse í morgun og hressti mig andlega. Á bara 3 bækur og ætti bara að fá bækur pabba, sem er löngu hættur að lesa nokkuð á ensku. Óborganlegar bækur með típískum breskum húmor.
Fer að styttast í vinnuna. Best að fá sér heita mjólk og hunang í hálsinn. Vona að þið hafið það öll sem best. Skilst að betra ástand sé í fyrirtækinu hjá Sigyn, Mundi design og væri gaman að frétta af því. Mamma kunni ekki vel að segja frá því. Gott að Davíð var komið í burtu. Þetta hlýtur að lagast með hækkandi sól.

2 comments:

Anonymous said...

Sæl systir. Hér er allt gott og fagurt, enda snjór og dásemd. Verst að komast ekki á skíði. Áttum flotta helgi við Álftavatn, síðar brustum við EH í bæinn með Eiríki eldri, hann að fara í æskulýðsmessu en ég á kynningarfund á fulltrúum í forvali. Nú eru ýmsir vinir og ættingjar að skrá sig í VG-reykjavík til að geta stutt mig og mér þykir vænt um það. Alltaf gott að finna að fólk vill styðja við bakið á manni. Svo þarft þú að fara að koma þér á Trýnu (feisbúkk) systir sæl til að fylgjast með öllu og öllum, sjá myndir og fá fréttir. Láttu Margréti hjálpa þér.
Hafið það gott, Diddi

Anonymous said...

Getur þú ekki skráð mig Diddi, hún Guðfríður sá um það síðast fyrir okkur og ég lofaði svo bara að mæta í forvalið... Viltu tékka á þessu, því ég er að drukkna í tómstundaskutli eftir vinnu!!
Annars allt þokkalegt hér, vonandi búin að reka streptococcana út af heimilinu í bili!
Þrennir tónleikar framundan, þ.á.m. Sköpunin eftir Haydn með Sinfó svo það er nóg að gera...
Gott nafn - Trýna!!