Við Margrét erum enn kvefaðar og latar. Liggjum og lesum í bókum, og nennum ekki miklu. Rákum Klaus út í göngutúr því hann er ekki í þunglyndi út af veðrinu og kvefinu:) Og viti menn--það kom smá sólarglampi rétt áðan! Verð bara dugleg á morgun, og tel mér trú um að ég sé jafn fljót að öllu og Affí,híhíhí. Ekki langt í laufið á runnunum, og kominn smá litur á sum trén. Það verður líklega sprenging bráðum og allt breytir um svip.
Í gær kom Doreen í enskutíma til mín. Hún ætlar að koma vikulega. Bjó til heitu eplaköku Stínu og við gæddum okkur á henni bæði í gær og áðan. Það var nú bara pakkasúpa í hádeginu, og stendur til að gera kartöflulummur í kvöld. Annars nenni ég ekki að vera til, -en á slíkum stundum er bara best að stinga nefinu ofan í bókina. Er að lesa vampírubækurnar hennar Margrétar. Hressilegar bækur og slatti af rómantík.
Hringdi í afa, sem var einn heima og vissi ekki mikið um hlutina :) Mamma farin á sýningu, hjá Gumma, en ég hélt að þetta væri útsala??? Og hann vissi ekki hvort Gummi væri fyrir norðan. En ætli maður heyri ekki fljótlega í þeirri gömlu. Þarf að senda pabba netfang Ritters, sem verður sjötugur á þriðjudaginn.
Mér finnst að þið ættuð ekki að kjósa Didda nema hann lofi að styðja sérstaklega skólann hennar Möggu Pálu, sem er ekki snobb skóli, heldur skóli eins og Walddorfskólarnir. Hahahahaha Diddi minn! Og svo þarf hann í danska kúrinn til að geta farið á þing!!!! Þú sérð elsku bróðir að ég hugsa mikið til þín--ótal kossar og bestu kveðjur og góða helgi til þín og ykkar allra.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Látið ykkur batna sem fyrst. Hér er mokhríð og mjög jólalegt um að litast. Já mamma snaraði upp einu stykki afmælisveislu fyrir Ella minn, ekki í vandræðum með það. Hér komu yfir 20 manns og mjög gaman. Er að drukkna í vinnu, en dreif mig í ræktina í morgun kl hálf 10 og fer aftur í fyrramálið, þarf svo að fara í skólann að vinna eftir hádegi og klára ýmislegt sem ég komst ekki yfir í vikunni. Keypti prjónakjól/síða peysu frá Gumma, er rosa ánægð með hann og treð upp í fermingu Eiríks í MUNDI design eins og almennileg listaspíra, hvað annað. Veit ekki hvort diddi fékk kosningu, held það komi í ljós á morgun. Nóg í bili, kv affí
HæHæ... er bara heima í rólegheitum, ætlaði með börnin í fimleika en treysti mér ekki fyrir ógleði :S
Varðandi súkkulaðisírópið, ekki vera að senda mér svoleiðis í pósti... alltof dýrt :o) en þakka samt góðar hugsanir til mín... ég bara nota Nesquik og svo var uppskrift af súkkulaðisírópi í síðasta Gestgjafa sem ég ætla að prófa :o)
Heyrumst
Hér er allt á kafi í snjó,Tinna veðurteppt á Húsavík og mætti því ekki í dag.Ég bara að hafa það huggulegt.Einar minn fékk enga afmælisv.í gær því það voru kaffit.hjá kirkjuk.í gær og komu um 60 manns þrátt fyrir ófærð.Reykjav.ferð um sl.helgi var fín.Ég gat aðeins stoppað hjá dætrunum og var það ljúft að venju.Við sungum svo við setningu búnaðarþings(Kiddi segir að það hafi verið af því að við séum mest sveitó af öllum kórum landsins)En við vorum mjög góðar með okkur og ánægðar yfir að vera keyptar suður!! Best að hætta þessu grobbi.Kveðjur til allra.Magga móða.
Post a Comment