Thursday, March 5, 2009
Komin á Trýnu!
Alveg er þetta makalaust. Ég er orðin meðlimur á facebook, sem Diddi kallar Trýnu. Er það hans uppfinning? Komin í samband við Sigrúnu "á Heiði", sem ég hef ekki séð í svo ótrúlega mörg ár. Bryndísi Ivars, Kristinu Draheim og bara hina og þessa. Margrét er lasin heima. Hún var að kenna mömmu á þetta og mér virðist að ég geti bara lært þetta án mikilla erfiðleika. Og loksins ætti ég þá að komast í samband við t.d. Sigyn, sem kommentar aldrei á bloggsíðuna, og les líklega ekki heldur. Affí, þú getur spjallað við mig í þessu "horni". Var að skrifast á við Björgu Þórs., sem er alsæl, kasólétt. Og Kristín Einars orðin ólétt. Það eru aldeilis fréttir. Mikið erum við öll happy með það. Hér er þoka, og helmingi kaldara en í gær. Við mæðgur latar og liggjum í sjónvarpinu, og ætlum að gera sem minnst í dag. Hafið það gott. Við sjáumst á Trýnu!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Veit svo sem ekki hvort ég fann þetta upp en tók það alla vega upp hjá sjálfum mér. Fór yfir alla vini mína og merkti við að þeir sem ég taldi að þú þekktir gerðu þig að vini. Þú átt vonandi eftir að njóta þessa og skoða myndir hjá fólki og sjá hvað menn eru að gera.
Post a Comment