Tuesday, March 24, 2009

Er vor eða vetur?

Um helgina var fyrsti vordagur hér í landi. Það passaði vel á laugardaginn, en fór svo heldur betur versnandi. Rigning í allan gærdag. En svo kom þessi fína sól í morgun. Allir hamingjusamir. Þar til hann fór að snjóa og skella á okkur hagléli. Svo tóku við þrumur!!! Og svo er aftur komin sól eftir rigningu og endalausa stutta kafla með hundslappadrífu. Hvað er um að vera.? Maður bara spyr.
Mamma verður sett í aðgerðina á morgun svo framarlega að ekkert fara úrskeiðis. Við hugsum öll til hennar, og hún er bara hin hressasta. Það er æðislegt að Sigurður sé fyrir norðan, og mér skildist á pabba að þeir feðgar hefðu vakað lengi í nótt við spjall (og fleira :) ?)
Gott hjá Affí að fara í eina af mörgum frystikistum í Litluhlíð og ná í kvöldmat þar. Enda þegar hún eldar er sko í lagi að pabbi leggi til matinn. Mætti bjóða Arnhildi líka, og Arnhildur gæti nú séð um uppvaskið í staðinn. Hópvinna :)
Hvað var þetta nú með þig Malla mín--smá blæðingar--vonandi ekki neitt, sem endurtekur sig. Við hugsum hlýlega til ykkar og vonum að allt gangi vel.
Arnhildur er dugleg að hringja í okkur, sem er æðislegt. það birtir yfir deginum þegar maður er búinn að tala við hana. Þær mæðgur duglegar að baka og allir bara hressir.
Ég tók loks törn í dag í tiltekt. Og sótti svo báða kassana með páskaskrautinu og setti upp. Nóg er nú til af dótinu :)
Margrét er frekar "léleg" í dag, en allt í eðlilega gírnum. Sótti hana í skólann og er svo að fara með hana í píanótíma,--í hríðinni!!!
Meira seinna. Takk kærlega fyrir kommentin.

3 comments:

Anonymous said...

Já, við hugsum til hennar í dag og vonandi verður hún fljót að jafna sig eftir þetta alltsaman!!

Anonymous said...

Skilst á mömmu að aðgerðin á Hillu hafi gengið vel í dag :o) mikill léttir.
Bið að heilsa öllum
kv
Kristín E.

Anonymous said...

Er í borginni. Gengur bara vel með nemendahópinn, búin að fara í ótal heimsóknir til listamanna, í skóla og fyrirtæki. Var að koma af sýningu hjá Gumma, hitti allt liðið af Grenimelnum. Er hjá VÖ og við borðuðum öll saman hér í kvöld , Aldís sá um matinn. Allt gengur vel fyrir norðan. KV affí