Wednesday, March 18, 2009

Eintómir sjúklingar

Loksins læt ég heyra í mér. Eitthvað er maður búinn að vera domm undanfarið. Með áhyggjur af hinu og þessu. Það hefur nú líka ýmislegt gengið á. Mamma farin aftur á sjúkrahúsið. Verið að skoða blóðið betur, sem er ekki alveg í lagi, en hvað sé að, er enn á huldu. Og pabbi kominn líka á sjúkrahúsið! Með annað hvort sýkingu eða bólgur í gallblöðrunni. Hver munur sé á sýkingu og bólgum veit ég ekki. Hann fær sýklalyf, en dugi það ekki, verður hann skorinn upp. Og þetta allt stuttu áður en hann Eiríkur blessaður verður fermdur. Hvort þau komist nú suður er vissulega spurning.
Í gær kom loks sólin fram, og okkur létti mikið. Það er samt nokkuð svalt, en það gerir nú ekkert. Aðalatriðið að sólin láti sjá sig af og til. Ég fór því að huga að vorhreingerningunni, sem ég gerði hlé á þegar Maria kom. Tók húsgögnin í gegn í stofunni og bar á tekkolíu. Fann í leiðinni tenginguna við vídeóvélina, sem er búin að vera týnd frá því fyrir jólin! Svo það getur verið gott að laga til :) Fór með teppið af gólfinu út á verönd, og dúllaði við hitt og þetta.
Svo fór ég til Tankumsee, og fékk kaffi og kökur hjá þeim vinkonum okkar, Hildegard og Hannelore. Þær báru líka fram brauð eins og á Íslandi. Það fannst þeim svo frábært. Lærðu þetta af Maddý. Þær eru enn í skýjunum yfir dvölinni heima, og hversu yndislegir allir séu í þessari fjölskyldu, hver trúir!
Margrét var með kennslu, og komst ekki. Hún er annars alveg til í að heimssækja þær.
Annars fátt í fréttum. Vonum bara að mamma og pabbi verði ekki lengi sjúkrahúsmatur, og hressist sem fyrst.
Vona líka að allt gangi vel hjá þessum óléttu, sem eru að fara að eiga.
Góða nótt.

3 comments:

Anonymous said...

Já þetta er sko ekki gott með Hillu og Örn, ég talaði við Jonna í gærkvöldi og hann sagði að þau væru bæði hundslöpp!! Úlfur greyjið með skrúfu í tánni og allt hvað eina. Ég er nokkuð hress, búin að bæta aðeins í gubbustandið aftur.... en vonandi eru bara 8 vikur eftir að þessu veseni :S Hlakka allavegana mikið til þegar þessu líkur ;)

Anonymous said...

Hilla hressari í dag, ræddi við Lillu áðan. Vonandi fara þau nú að hressast!!
Ég á fullu í kórastandinu, rosa gaman en ég er alveg að verða búin á því!
Hildur búin með bóklega bílprófið, rúllaði því upp og þarf svo að drífa í því verklega svo hún geti farið að hjálpa til í frístundakeyrslunni - hehe...

Kristín E. said...

Sendi líka batakveðjur hér til Hillu, Arnar og Úlfs.
Vona að þau hressist sem allra fyrst. Reyndi að hringja í Hillu um daginn en komst svo að því að þá var hún að leggjast aftur inn á sjúkrahúsið.
Sýking veldur bólgu en er vegna bakteríu en svo er hægt að vera með bólgur án bakteríusýkingar... skilurðu muninn?? Ef ekki þá reyni ég að útskýra betur :o)
Er aðeins að hressast, ælulaus nú í 2 daga og alveg í skýjunum með það enda komnir hátt í 2 mánuðir í þessu ástandi.
Bið að heilsa Klaus og Margréti