Wednesday, March 11, 2009

Ásta orðin sextán ára!!!!

Innilega til hamingju með daginn Ásta mín, og kærar kveðjur til stoltu foreldranna. Allir, sem eiga börn, vita að það er hreinlega ótrúlegt hvað börnin stækka. Ekki er mjög langt síðan Ásta kom ein í fylgd með flugfreyju til okkar, kotroskin og hress, og þær frænkur sömdu alls konar leikrit með miklum tilþrifum. Það er þó nokkrar vikurnar, sem við höfum haft hana hér í gegn um tíðina. Unglingsárin tekin við, og mín helsta ósk er hún læri að lækka róminn þegar hún æsir sig upp. Verði mömmu sinni stoð og stytta, og þroskist jákvætt og verði heilsteyptur karakter, verði sterk og jákvæð kona. Efa ekki að hún á til nóg af góðum hæfileikum og orku til að gera sem mest úr þeim. --Gáfur og hæfileika til listsköpunar áttu sannarlega Ásta mín. Láttu barnaskapinn í poka og taktu fram skynsemina, og vertu Sweet Sixteen --Til hamingju.

Og hann léttfeti búinn að eiga afmæli. Ekki fékk hann nú afmæliskaffi enda ber hann nafnið Einar auminginn með réttu :) Aldrei hugsað um blessaðan aumingjann, híhíhí. Takk fyrir kveðjuna Maddý mín. Vona að hann hafi allavega fengið köku af kaffihlaðborðinu hjá kórnum:) Til hamingju með manninn og koss og knús frá okkur hérna og takk fyrir góðar stundir, þó að ekki sé um neina uppálegu að ræða lengur :):):)

Kvefið er búið að hrjá mig frekar mikið. Er enn full af þessum óþverra. Get þó sofið aftur. Margrét fór á mánudaginn í skólann. Maria vinkona hennar kom svo með henni eftir skóla, og ég eldaði handa þeim pasta og Tuliphænsnanagga. Fór svo með Mariu á vinnustaðinn hjá pabba hennar þegar hann hætti, og verslaði smá á eftir.
Í gær var píanótími, og þær eru í Ohof þennan mánuðinn. Skutlaði Margréti klukkan 18.00, og Klaus tók hana með á heimleiðinni. Kom loks í verk að laga til, og er búin uppi.
Verið að þvo og þvo, en ekki gengur vel að þurka úti. Skúrar alla daga, og maður alveg búinn að fá nóg. Skrapp samt út á sunnudaginn og rakaði laufi og tók til í garðinum þó að hann rigndi af og til. Enginn er verri þó hann vökni, ekki satt. Það var æðislegt að hamast úti, og ég get varla beðið eftir að fá að vera með puttana í moldinni.

Verst að mín bíður þessi óhræsis uppskurður. Það er svo sem ekkert við því að gera, en sannarlega ergilegt að vita að hefði kallinn í Berlin tekið meira af draslinu, þyrfti ég ekki aftur. Fékk tíma í viðtal mánudaginn eftir að fríið byrjar. Við eigum bara eftir eina viku fyrir utan þessa. Þá er páskafrí. Æðislegt. Þarf til Salzgitter í viðtalið, en það er sunnar en BS. Á eftir að kanna hvernig ég kemst þangað. Ekki eins auðvelt og heima þar sem allt er á einum stað, eða svo að segja.
Stefni að því að fara í þetta í júníbyrjun. Þá get ég tekið skurk í garðinum á undan. Ekkert hægt á eftir þar sem ég má ekki lyfta nokkrum hlut, eða hjóla, og aka bíl. ÓÞOLANDI.
Annað hvort verður Margrét að fara heim og vera þar, eða við fáum Arnhildi út til að hugsa um mig og gera eitthvað með systur sinni. Þetta þarf að kanna. Margrét verður allavega ekki ein hér hjá sjúklingi, híhí. Hún fær sumarfrí í lok júní. Byrjar í kring um viku af ágúst aftur.

Það var sólarglampi áðan. Líklega hefur honum þótt þetta vera mikil rausn, og skellti skýjum á aftur. Spáin ekki góð framundan, nema hvað hann á að fara í 14 stig um helgina áður en hann kólnar aftur. Þá ætti Ritter að fá gott veður í afmælishófið sitt á laugardaginn.

Vona að Kristín Dögg sé ekki orðin lasin. Framundan ferð með fimleikahópnum, sem væri nú verra að missa af. Já, hún hefur náttúrlega áhugann frá ömmu gömlu, eða þannig! Elsku rúsínan mín--hafðu það gott og góða skemmtun.

Nóg að gera í dag. Kira kemur klukkan 15., svo Lennart klukkan 16., og svo þarf að bruna til Gifhorn út af stykki, sem losnaði af tönn hjá Margréti. En hún reynir örugglega að ná í Ástu í kvöld, eða þá um helgina.
Hann er kominn með sól aftur , þvílík dásemd.

5 comments:

Anonymous said...

Já til lukku með daginn Ásta! Ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram... Mér finnst Hildur nýbyrjuð í Kvennó en hún er að verða hálfnuð þar!!

Margrét gæti nú alveg verið hjá þér og aðstoðað þig, hún getur nú mun meira en þú heldur... þó auðvitað væri gaman fyrir hana að koma til systur sinnar!

Bestu kveðjur í sólina úr súld og hálku í Kópavogi...

Anonymous said...

Ótrúlegt hvað tíminn líður, krílin orðin fullorðin áður en maður veit af. Var hjá m og p í gær, mamma eitthvað slöpp með blóðþrystingsvandamál og hjartarugl en orðin eitthvað betri. Fer í myndatöku og rannsókn í fyrramálið. Fylgist með þeim. Pabbi ótrúlega duglegur að læra á tölvuna,er að stúdera hvernig eigi að senda myndir í tölvupósti ofl.
Annars allt gott hér.
Kv affí

Anonymous said...

Er hjá pabba sem er lasinn, en hér kom læknir og gaf honum verkjastillandi´, einhverjar magakveisur, gæti verið bara pest. Alla vega er þetta allt í áttina. Mamma orðin betri, hjartað komið í takt og hún verður á spítalanum í tvo daga. Já svondan er nú livet. Annars bara vinna og líkamsrækt sem tekur tímann þessar vikurnar. Kv affí

Thordisa said...

Sakna þín systir og vona að ég geti komið til þín í sumar en það er enn allt svo óráðið. Var að fá 9 fyrir verkefni í þjóðhagfræði nokkuð sátt við það og tók líka próf í því í vikunni sem gekk vel svo ég er á góðu róli

Anonymous said...

Búið að ganga frá málum A.H. hún kom hér til pabba í dag, líta á heilsubælið... Var bara hress. Mamma öll að braggast og vonandi pabbi líka, er þó enn með einhverja verki sem vonandi fara þó að hverfa. Ætla að sjóða ýsu ofan í okkur hér í kvöld, best að hafa eitthvað létt í magann!
kv affí